Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Qupperneq 39
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981.
43
Sjónvarp
Þetta er sennilega siöasta mynéin sem tekin var af John Lennoe og Yoko Ono saman.
Tveimur dögum siöar var Lennon látirin. Mynd þessi birtist i bókinni „Bara Lennon”
eftir Illuga Jökulsson.
DAGBÓKIN, útvarp í dag kl. 14.00
Dagbókin
helguð minn-
ingu Lennons
Dagbókarmennirnir Gunnar
Salvarsson og Jónatan Garðarsson
helga þáttinn í dag minningu John
Lennon, en nú er liðlega ár liðið frá því
Lennon féll fyrir morðingjahendi.
Lennon er vart þörf að kynna.
Hann var einn frægasti, og á seinni
árum virtasti, tónlistarmaður þessarar
aldar. Hann var stofnandi og tals-
maður The Beatles, frægustu
rokkhljómsveitar allra tíma. Eftir að
samstarfi fjórmenninganna lauk, hélt
Lennon áfram á tónlistarbrautinni,
ýmist einn síns liðs eða með konu sinni,
Yoko Ono.
>að var aldrei nein lognmolla í
kringum Lennon. Hann var ekki bara
tónlistarmaður, heldur mikill baráttu-
maður. Helztu baráttumál hans voru
friður og jafnrétti, og beitti hann ýms-
um ráðum til að koma skoðunum
sínum á framfæri. Fræg varð vikudvöl
hans og Yoko Ono í rúmi í hótelher-
bergi, en ætlunin með þeirri legu var að
vekja athygli á andstöðu þeirra hjóna
gegn styrjaldarbrölti og vígbúnaðar-
kapphlaupi.
Það kemur fram i nýrri íslenzkri bók
eftir Illuga Jökulsson um Lennon,en
hún nefnist ,,Bara Lennon”, að þrátt
fyrir allt bröltið, velgengnina og
frægðina, hafi Lennon verið ónógur
sjálfum sér. Hann var alla tið leitandi
en virtist ekki finna sjálfan sig. Hartn
lagðist í óreglu, en þar fann hánnekki
svariðfrekar en aðrir.
Það var ekki fyrr en undir það allra
síðasta að Lennon sættist við sjálfan
sig, lífið og tilveruna.
ÞYRNIRÓS VAKNAR, útvarp í kvSld
kl. 21.10
VILL VEKJA ÞYRNI-
RÓS AF ALLTOF
LÖNGUM BLUNDI
Halli og Rós hafa verið gift í nokkur
ár og komið sér þægilega fyrir.
Atvinnurekstur Halla blómgast,
hann er sem einn þeirra sem hefur
„komið sér áfram í liftnu”. Fyrr á
árum hafði hann þekkt glæsilega
stúlku sem heitir Sonja. Hún er nú
orðin þekkt sýningadama erlendis, en
kemur í heimsókn til þeirra hjóna.
Henni virðist einsýnt að breyting
þurfi að verða á högum Rósar, mál sé
til komið að „Þyrnirós vakni”.
Þannig er í stórum dráttum
söguþráður i nýju íslenzkuleikritisem
flutt verður í útvarpinu í kvöld.
Leikritið er eftir Agnar Þórðarson
og nefnist „Þyrnirós vaknar”.
Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir.
Með hlutverkin fara Sigríður Þor-
valdsdóttir, Gísli Alfreðsson,
Guðrún Þórðardóttir og Hákon
Waage. Flutningur Ieiksins tekur 40
mínútur. Tæknimenn: Jón örn
Ásbjörnsson og Hreinn Valdimarsson
Agnar Þórðarson er fæddur í
Reykjavík 1917. Hann lauk prófi 1
íslenzkum fræðum frá Háskóla
íslands 1945 og stundaði síðan fram-
haldsnám í Englandi 1947 —48. Um
skeið dvaldist hann einnig i Banda-
ríkjunum. Hann varð bókavörður
við Landsbókasafnið 1951. Fyrsta út-
varpsleikrit hans var „Förin til
Brasilíu” 1953. Agnar hlaut miklar
vinsældir fyrir framhaldsleikritið
„ Víxlar með afföllum” sem flutt var
1958. Hann hefur einnig skrifað
skáldsögur og smásögur.
tandnf ||í)
Kínversk
veizla
í kvöld
KAFFIVAGNINN
VIÐ GRANDAGARÐ - SÍMI 15932
IRSé
Þetta er fyrsta bók höfundarins. Hún er ný-
stárleg, þvi enginn íslenskur ráðherra hefir
áður sett saman bók um ráðuneytið sitt.
Vilhjálmur kemur víða við og ræðir m.a.
stöðuveitingar, írafár á Alþingi, námsmanna-
hasa og kalda stríðið um peningana.
Gamansemi Vilhjálms gægist víða fram. Og
oft er seilst eftir svipmyndum utan dyra þótt
Hverfisgata 6 sé þungamiðja bókarinnar.
Frásögnin er opinská en laus við alla beiskju.
180 myndir eru í bókinni.
Verð kr. 320.00
ÞJÓÐSAGA
Veðrið
Veðurspá
dagsins
I Gert er ráð fyrir norðaustanátt um
lallt norðanvert landið og éljagangi j
] Þurrt og bjart á Suðurlandi. Fyrirj
Inorðan 8—10 stiga frosl en 6—7|
I stiga frost á Suðurlandi.
] Kl. 6 í morgun.
lAkureyri, snjókoma -8, Bergen I
| léttskýjað -7, Helsinki léttskýjaðj
-14, Kaupmannahöfn snjókoma -3,]
[Osló snjókoma -8, Reykjavík, létt-
fskýjað -6, Stokkhólmur snjókoma -
[; 5, Þórshöfn þrumuveður + 11.
Veðrið
hér
og þar
IKI. 18.00 ígær
I Aþena léttskýjaðl5, Berlin alskýjað j
11, Chicagoskúr -2 Feneyjar þoka 2,.
I Frankfurt snjókoma 0, Nuuk heið-
skírt -6, London þokumóða 0,
Luxemborg skýjað 0, Las Palntas |
skýjað 20, Mallorka skýjað 15,
iMonlreal él 0, New York snjó-
koma -3, París skýjað 9, Róm léti-
I skýjað 14, Malaga alskýjað 18, Vín
fskýjað 3, Winnipeg -9.
Gengið
GENQISSKRANING Nr. 236 -
1 10. desember 1S81 kl. 09.15. Ferðe
-----------------—------ manna
Eéninflkl. 12.00 Kaup Sala gjaldayrir
1 BandarfttjadoHar 8,157 8,181 8,999
1 Starlingspund 15,584 15,630 17,193
1 Konadadoilcr 6,889 6,909 7,599
1 Dönsk króna 1,1188 1,1221 1,2343
1 Norskkróna 1,4171 1,4213 1,5634
1 Sssnskkróna 1,4753 1,4797 1,6276
1 Finnskt mark 1,8717 1,8772 2,0649
1 Franskur franki 1,4317 1,4359 1,5794
1 Betg. Irankl 0,2126 0,2132 0,2345
1 Svbsn. franki 4,4259 4,4390 4,8829
1 HoSonzk florina 3,3165 3,3263 3,6589
1 V.-þý*ktmark 3,6261 3,6368 4,0004
11 ftöísk Ifcs 0,00676 0,00678 0,00745
jl Austurr. Sch. 0,5164 0,5179 0,5696
|l Portufl. Escudo 0,1262 0,1265 0,1391
1 Spénskur pasati 0,0849 0,0852 0,0937
1 Japsnsktyen 0,03735 0,03746 0,04120
[t Irsktound 12,880 12,918 14,209
j SDR Isérstök 9,5221 9,5502
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510
0110*
Sfcnsverl vegna gengtsskránlnger 22100.