Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 17
16
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEVÍBER 1981.
17
Rauðu djöfíamir fá sór te i einu af fjallahúsunum.
Snjórinn kemur ekki og fer. Hann erl
Kötturinn tírólski (fínn
köttur).
Þeir eru mokandi allan daginn...
Hvað stóð?
Sástuþað?
THhœgri?
Svona spurningar voru nokkuð
algengar á leiðinni enda varla nema
von, að maður sem ratar heiman frá sér
og upp i Síðumúla og þaðan heim aftur
(ef ekki er helgi framundan) þurfti að
spyrja dálítið. Kortasérfræðingnum
þótti þetta víst oftast hálfgerðar óþarfa
spurningarsérstaklega þegar maður var
rétt að segja búinn að keyra framhjá
þremur skiltum á stærð við Hótel
Sögu, sem sögðu rækilega til vegar. A
þessum árstima má gera ráð fyrir
snjókomu á þessum slóðum ver-
aldarinnar og eins og sagði áðan þá tók
að snjóa hressilega rétt eftir að komið
var inn í Austurríki. Kappinn fór út og
smellti keðjum undir vagninn og var
svona rétt passlega búinn að því þegar
óður maður á snjóruðningabíl
hreinsaði hvert einasta korn. Þá
slitnuðu keðjurnar auðvitað. Þegar
slíkt gerist er þrennt til. í fyrsta lagi að
taka keðjurnar undan og setja þær i
skottið. í öðru lagi að taka keðjurnar
undan og vefja þeim um sig miðjan og
segjast vera pönkari á hljómleika-
ferðlagi. í þriðja lagi má svo gera við
keðjurnar en það er óþarfi. Þær voru
settar í skottið (Skott og vel eins og
máltækið segir).
Bankað á höll
hjábarón
Það var orðið áliðið kvölds, þegar
billinn renndi inn i Kitzbiihel. Og þar
vantaði hreint ekki snjóinn enda eins
gott því annars er svo erfitt að renna
sér. Við höfðum fengið að velja okkur
rúm úr um það bil átta þúsund rúmum,
sem Kitzbtihel hefur upp á að bjóða.
Konan ákvað að búa i virðulegu húsi,
sem aðstoðarbæjarstjórinn í Kitzbúhel
áen leigir Flugleiðum. Sjálfur ákvaðég
að sofa við hliðina á konunni. Nefndur
bæjarstjóri er auk þess barón og
þannig atvikaðist það að drepa varð
létt á dyr hjá baróninum og spyrja
kurteislega hvort herr Von Horn væri
viðlátinn til að afhenda lykilinn að
„mínu” húsi.
Svolítill fróðleikur
Það var skrítið að vakna að morgni í
Kitzbuhel. Sannast sagna var eins og
maður væri dottinn inn í söguna af
Heiðu sem allir þekkja. íbúarnir eru
um átta þúsund en þegar mestur
handagangurinn er í öskjunni þá gista
bæinn tuttugu þúsund manns. Hver
einasti maður leggur sitt af mörkum til
að háannatímabilið lukkist vel og þvi
geta menn fengið að gista á venjulegu
týrólsku hcimili ef þeir kjósa fremur en
að dvelja á hóteli. Eins og sjá má af
þessum tölum um íbúafjöldann, þá er
Kitzbuhel nær eingöngu
ferðamannabær. Langflestir hafa
viðurværi sitt af ferðamannaiðnaði
eða einhverju sem tengist honum.
Bærinn skiptir algjörlega um svip eftir
því hvort sumar er eða vetur, ekki bara
vegna snjósins heldur skipta verslanir
um varning og íbúarnir snúa sér að
annarri þjónustu við ferðamenn að
vetri en sumri. En skíðasportið er samt
heldur alltaf númer eitt. 1 þeim efnum
eru innfæddir heldur engir aukvisar.
Skíðalöndin eru fyrir hvern sem er,
arma byrjendur og æfða afreksmenn.
Rauðu djöfíarnir
Skiðalyftunar liggja út um allar
trtissur og einhvers stðar matti lesa að
fræðilega gætu þær flutt 46 þúsund
manns i einu. Mig minnir líka að
lyfturnar séu 56 talsins. Maður verður
að mæla með rauðu djöflunum. Þeir
kalla sig það skíðakennararnir. Þetta
er góður hópur vænna drengja. Engir
töffarar, heldur margir hverjir
miðaldra menn með mikla kunnáttu og
reynslu í kennslu að baki. Líklega er
grín að mér? „Svo þarftu ekkert að
vera að öskra, þótt þú sért að detta, ég
skal alveg sjá um öskrin,” bætti hann
við glottandi. Detta? Ég var ekkert að
detta, ég var að kalla á manninn þarna
niður frá!
hverjum hollt að þiggja hjá þeim
nokkra leiðsögn. Að minnsta kosti
ákvað maður að láta sig hafa það að
fara nokkra tíma, ekki það að maður
byggist við að geta lært mikið meira
(maður er jú búinn að fara þrisvar í
Bláfjöllin) heldur frekar til að sjásvona
hvarerfiðast brautin væri.
En frómt frá sagt er eflaust rétt að
fara í tíma nema maður kunni þeim
mun meira. Kennsla í sex daga kostar
400 krónur og fyrir það fær maður
fyrsta flokks kennslu. Kennarinn fylgir
manni í hverri einustu ferð, frá morgni
til kvölds og leiðbeinir í smáatriðum
fyrir utan það að vera um leið
leiðsögumaður. Eftir skíðamennskuna
töltir maður svo með kennaranum á
naesta bar og lætur hann lóðsa sig um
bæinn og kíkja á skemmtanalífið.
Maður þarf nefnilega ekki endilega að
vera skíðamaður til að geta haft
ánægju af svona ferð því það er nóg af
öllu mögulegu öðru til að dunda sér
við. í Kitzbuhel er auðvitað sundiaug,
einhver sú allra flottasta, gufubað og
tilheyrandi, diskótek, skautasvell, bíó
og óteljandi barir (meira að segja í
miðjum skíðabrekkunum).
He/tekinn
Eftir þriggja daga kennslu hjá Pepe
hafði maður tekið miklum framförum
(hvernig sem það er hægt, eins góður
og maður var fyrir). Þá hringdi ég heim
í mömmu og sagði henni að ég væri
orðinn skíðasnillingur. Það væri auk
þess alveg óvíst, að ég kæmi heim i
bráð, því ég gerði ráð fyrir að mér yrði
boðið að dveljast í sérstökum æfinga-
búðum. Skiðabakterían hafði nú
heltekið heimaiNæ<jnn þolgæðismann og
eins vísi að litið yrði föndrað við
hefilbekkinn á næstunni. í svona skíða-
ferðum getur maður sameinað tvennt,
holla útiveru (heyriði í honum!) og
hraustlegt skemmtanalíf fram eftir
nóttu enda fljótgert að hrista eftir-
stöðvar næturinnar úr sér í skíða-
brekkunum morguninn eftir. En hvað
sagði ekki maðurinn þegar hann valt
inn fyrir þröskuldinn um nóttina
miðja: „Kitzbliheler klassi.”
Hvaða tegund
eru skíðin þín?
Pepe kallinn hét hann rauði
djöfullinn sem skyldi reyna að segja
manni svolítið til. Eftir fyrstu bununa
sagði hann góðlátlega: „Horfðu nú vel
á skíðin þin.” Jú, maður gerði það.
„Hvaða tegund eru þau?” spurði hann
í sama góðlátlega tóninum. Hvurn
djöfullinn er maðurinn að fara? Skyldi
maður ekki vera á nógu góðum
skiðum? Svo stundi ég upp nafninu á
skíðunum, skíthræddur um að verða
mér nú eilíflega til skammar. „Gott,”
sagði Pepe og mér létti stórlega, „nú
veistu hvað skiðin heita svo í næstu
ferð þarftu kannski ekki að horfa á
skíðin alla leiðina heldur fram á
brautina.”
Skyldi hann ekki hafa verið að gera
Kær kveðja,
ykka Ossían.
Ung skíöadrottning tekur
lótt spor.
Og svo byrjaði að snjóa.
íslendingurinn hélt traustum höndum
um stýrið og bíllinn óð áfram á
hraðbrautum Austurríkis. Nú skyldi
sýna þessum kónum hvernig aka á i
snjó. Það þóttist íslendingurinn gott
kunna. Bíllinn á skjön og stórvirkar
vinnuvélar æddu framúr. Snjórinn var
skyndilega horfinn af veginum.
Þetta gerist þegar maður ákveður
skyndilega að fara á skíði.hvað sem
raular og tautar. Engar skipulagðár
ferðir voru hafnar á skíðaslóðir út-
landanna frá íslandi, en Flugleiðir
fengu það (skemmtilega) verkefni að
teikna eina slíka ferð á augabragði.
Málið þoldi enga bið. Ekki var við þaö
komandi að sýna biðlund fram í
miðjan janúar þegar skipulagðar ferðir
hefjast héðan. Þannig flaug maður sæll
og glaður til Lux og settist þar upp í
bílaleigubí! og lagði á hraðbrautirnar
áleiðis til Kitzbilhel í Austurríki.
Tilgangurinn auðvitað sá að verða
mjög fljótlega skíðasnillingur.
Áfram veginn
Það er skemmst frá því að segja að
aksturshæfnin reyndist sist minni á
hraðbrautum Evrópu en á fjallvegum
islenskum. Konan klóraði sig ótrúlega
fram úr kortunum, enda þaulvön síma-
skrárkortinu væna. Til að komast til
Kitzbúhel frá Lux ku vera auðveldast
og beinast að keyra rakleitt í gegnum
Þýskaland. En fyrir þá sem eru farnir
að ryðga í svissneskunni er ljómandi að
velja frekar leiðina í gegnum Frakkland
og Sviss.
Hún er að vísu helmingi lengri
en gefur tvö lönd í kaupbæti og tvær
þjóðbúningadúkkur til viðbótar í
safnið. Eins og kunnugt er þá er
nauðsynlegt að hafa sitthvað smálegt
við höndina á svo löngu ferðalagi. svo
samferðarmönnunum leiðist ekki
hroðalega þegar maður situr
glaðbeittur við stýrið á hundrað og
fimmtíu og má ekki vera að því að
halda uppi samfelldri skemmtidagskrá.
Konan hafði einmitt tekið með sér
heklunálina og til að vera trúr jafnrétt-
inu tók ég hefilbakkinn með til að
dunda við þegar ég hvíldi mig frá akstr-
inum. Þessu er ekki skylt að trúa, en
heimilt.
r i -■ i
! ' I
MEÐ STOR AFSLÆTTI!
HANS PETERSEN HF 75ÁRA.
Á nœsta ári eru 75 ár liðin írá stoínun HANS
PETERSEN HF. Því viljum við hvetja ágœta við-
skiptavini um land allt að samgleðjast okkur við
þessi tímamót með því að nýta sér sérstakt
AFMÆLISTILBOÐ, og taktu nú vel eftir.
75% AFSLÁTTUR Á 75. AFMÆLISÁRINU!
Þetta einstœða AFMÆLISTILBOÐ felst í því að
þérbýðst að velja til stœkkunar,með 75% aíslœtti,eina
mynd, í stœrðinni (13x18 cm /13x13cm),aí sérhverri
KODACOLOR filmu sem heíur verið framkölluð
og kóperuð hjá okkur eða umboðsmönnum okkar
á aímœlisárinu.
SVONA FÆRÐU AFMÆLISSTÆKKUN
Ef þú vilt nýta þér þetta AFMÆLISTILBOÐ þá
velur þú þá mynd sem þú vilt íá stœkkaða um
leið og þú nœrð í íilmuna úr íramköllun.
Það er svona einíalt.
JÖLAMINNINGIN LIFIR MEÐ KODAK
Þetta er afmœli sem lengi verður í minnum
haft og þú býrð þig undir þátttöku strax með því
að taka jóla- og nýársmyndimar á KODACOLOR
filmu og íœrð síðan stœkkun á
best heppnuðu myndinni þinni
með 75% aímœlisaíslœtti.
TRYGGÐU GÆÐIN
-TAKT Á KODAK
HfiNS PETERSEN HF
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT!
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 91.1