Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 4
4 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. HELGARBLAÐS DV------------------------- / tílefni jólanna, þessarar hátíðar barnanna, kynnir Helgarblaðið nú bókina Dýragarðsbörnin sem Fjölvi gefur út. Þessi bók heitír á frummálinu „ Wir Kinder vom Bahnhof Zoo ” og er saga Kristjönu F., sem ólst upp í Gropius-hverfi BerUnar, nýtískulegasta háhýsa- hverfi borgarinnar. Kristjana varð eiturlyfjum að bráð á barnsaldri og þegar hún var 15 ára gömul varð hún á vegi tveggja blaðamanna, þeirra sem skráðu bókina. Þeir hafa lýst fundum sínum við Kristjönu á þessa leið: „Okkur varð Ijóst að frásögn Kristjönu gœfi skýrari mynd af vandamálum æskunnar en nokkur blaðagrein gæti megnað, hversu nákvœm sem hún yrði. — Við gerðum ráð fyrir tveggja stunda spjalli en þœr tvœr stundir urðu að tveimur mánuðum. Innan skamms höfðum við gleymtþví að við vorum blaðamenn en hlýddum aðeins bergnumdir á frásögn þessarar ungu stúlku. Þannig varð þessi bók til.”„Dýragarðsbörnin” vakti gífurlega athygli á sínum tíma í Þýskalandi og hefur verið efst á sölulistum allt frá því hún kom út fyrir nokkrum árum. í mörgum skólum hefur verið efnt til umræðufunda um efni hennar. En hér verður gripið niður í bókina rétt íþann mund er Kristjana er að brenna allar brýr aðbakisér: Á jólunum, 1975, þegar ég var 13 og hálfs árs, fannst mér samband mitt við mömmu vera orðið svo gott, einmitt vegna undanlátsseminnar, að það þyldi smáskammt af sannleikanum. Ég sagöi h'enni, að ég hefði oft alls ekki sofið hjá Kessí, þótt ég hefði sagt svo heldur eytt allri nóttinni í Soundinu, eftir að hafa misst af seinustu lest. Hún varð nátt- úrulega hálffúl og lét fjúka nokkur vel valin orð. En ég benti henni á, að það væri þó betra, að ég væri eina og eina nótt í Soundinu og kæmi svo aftur heim, heldur en ég hlypi að heiman og færi á fiæking eins og mörg önnur börn í Grópinsbæ. Svo bætt ég við, að það væri betra, að hún kæmist að því sanna i málinu og vissi hvar ég væri, heldur en ég skrökvaði að henni. Þannig not- færði ég mér hreinskilnina sem vopn gegn henni, enda lét hún sér þetta nú lynda. Annars hafði ég ekki lengur neina þörf fyrir að leita trúnaðar hjá mömmu. Hins vegar var ég orðin leiö á þessu eilífu lygum um, hvert ég væri að fara. Ég nennti ekki lengur að standa í því að skálda upp trúlegum sögum. Raunverulega ástæðan fyrir játningu minni var, að mig langaði að fara í Soundið yfir hátiðisdagana og á gaml- árskvöld, en til þess gat ég ekki spunnið upp neina líklega lygasögu. Enda leyfði mamma mér svo reyndar að vera í burtu á hverju kvöldi yfir hátíðina. Ég var alveg bit, en auðvitað hafði ég hald- ið áfram að ljúga að henni, hve vandað og meinlaust táninga-diskótek Soundið væri, og að allar vinkonur mínar færu þangað líka. Auk jjess benti ég henni á, eins og hún hlaut að hafa tekið eftir, hvað ég var orðin rólegíi eftir að ég fór að rasa svona fullkomlega út einu sinni 1 viku. En á sama tíma varð markaðurinn í Soundinu stöðugt svæsnari, og Heróín- ið dembdist yfir eins og sprengja. Við spjölluðum einnig mikið um það í okk- ar klíku. Eiginlega voru allir á móti því. Við vissum um nógu marga krakka, sem Heróinið hafði riðið að fullu. En svo reyndi hver af öðrum fyrstu spraut- una og flestir héldu því áfram. Heróin- ið eyðilagði klíkuna okkar. Þeir, sem einu sinni höfðu reynt það, tilheyrðu strax einhverri allt annarri klíku. Ég fylltist hryllingi, þegar minnst var á Heróínið. Það varð líka til að minna mig óþyrmilega á, að ég var ekki nema 13 ára. Samt var ég full af þessari lotn- ingu gagnvart liðinu, sem sprautaði sig. i mínum augum var það æðra okkur, sem ekki gerðum það. Enda litu Herón- inistar taumlaust niður á okkur hassar- ana og pillugleypana. Þeir kölluðu hass barnadópið. Sú tilhugsun að verða út- undan og komast aldrei í sprautuklík- una, hið æösta af öllu, fór að verða mér óbærileg. Mér fannst öll sund lok- ast mér, ég komst ekki lengra. En á sama tlma vakti þetta nýja eiturefni mér ólýsanlegum hryllingi, því ég vissi aö það bar dauðann í sér. Ég tók það þó ekki eins nærri mér, að klíkan okkar leystist upp vegna Heróínsins, því að ég hafði Detlef. Hinir voru mér ekki svo mikilvægir lengur. Samband mitt við Detlef varð stöðugt hlýrra og einn sunnudag á nýja árinu fór ég með hann heim til min. Ég vissi fyrirfram, að mamma og kær- astinn hennar yrðu ekki heima. Ég bjó til reglulegan mat handa Detlef, og svo sátum við að borði og átum sunnudags- matinn okkar saman eins og hjón. Það fannst mér ofsalega notalegt. Alla vikuna á eftir hugsaði ég um ekkert annaö en Detlef og hlakkaði æðislega til að fara í Soundið á föstu- deginum. Ég kom þangað alveg óvím- uð, en reglulega ánægð. Þar sat Detlef við hliðina á alveg útsukkaðri skvísu. Ég settist hjá þeim, en Detlef leit varla við mér. Ég fann, að hann var upptek- inn af einhverju allt öðru. Ég hugsaði með mér, að nú ætlaði allt að fara í vaskinn eins og með Adda, en það var auðvitað della með svona útlifaðri hækju. Þau töluðu fyrst alls ekki saman og síðan í eins atkvæðis orðum, sem enga merkingu höfðu í minum eyrum, en það var eitthvað viðvíkjandi Heróíni. Og þá fattaði ég allt í einu eitthvað. Detlef vildi fá H. hjá stelpunni, eða hún var að plata því inn á hann. Þá greip mig ofsahræðsla, og ég hrópaði upp yfir mig: „Ertu vitlaus, maður. Þú ert ekki nema 16 ára. Þú getur ekki lát- ið þér detta í hug að fara að taka H.” Hann virtist ekki einu sinni hlusta á mig. Svo að ég hélt áfram: „Gleyptu heldur þrjú tripp í einu í kvöld. Ég skal útvega þér sýru, en bara ekki þennan óþverra. ” Ég grátbað hann. Þegar hann sýndi mér engin við- Gropiusbœr, nýtískulegasta háhýsahverfi Vestuf-Berlínar. Það átti að verða fyrirmyndarbyggð nútímalistar og tækni. Sjálfur Willy Brandt lagði hornstein að því þegar smíði þess hófst 1962 og það var kennt við Walter Gropius, frægasta nútímarkitekt Þýskalands.Síðarvarð mönnum Ijóst að steinsteypublokkir þessar eru hið mesta andlega drep. Tœknin réð en ekki var hirt um þarfir fólks- ins. Börnin voru kúguð og hrakin af bönnum og boðum. Eiturlyfjaneysla og glæpir sóttu að unglingum. Þarna búa um 45 þús. manns og þarna bjó Kristjana F.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.