Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 1
BIADID&7.
9. TBL. — 72. og 8. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1982.
frjálst, úháð dagblað
Samningar ríkis ogfiskvinnslu „á borðinu”:
„Er ekki nauðsynlegt
að skerða verðbætur?”
— segir Steingrímur Hermannsson um ákvörðun f iskverðs og ef nahags„pakkaM ríkisstjórnarinnar
,,Menn eru vongóðir um að samn-
ingar í sjómannadeilunni takist í dag.
í gærkvöld miðaði talsvert undir
lokin. Menn tóku sér hlé í nótt til að
ganga frá tillögum. Úrslit ættu að
koma um hádegið. Við erum búnir að
hafa í nokkra daga á borðinu hugsan-
legt samkomulag við fiskvinnsluna
þar sem mínar tillögur eru lagðar til
Samningarað
takastísjó-
mannadeilunni?
Kemur
íljós
hvort
menn
ná sam-
an núna
—sagði sátta-
semjari í morgun
„Menn urðu sammála um það í
gærkvöldi að hvíla sig í nótt fyrir
lokaátakið. Ég þori ekki að segja
til um hvort tekst að ná saman
núna. Það verður að koma í
Ijós,” sagði Guðlaugur Þorvalds-
son ríkissáttasemjari í samtali við
DV í morgun.
Viðræður sjómanna og út-
gerðarntanna hófust aö nýju
klukkan níu í morgun, eftir að
fundi hafði verið frestaö skömmu
fyrir miðnætti í gærkvöldi. Þá
höfðu menn setið linnulitið á
sáttafundum frá því á mánudags-
morgun. Mestur tlmi mun hafa
farið í viðræður um helgarfri sjó-
manna.
Þótt sáttasemjari væri mjög
varkár 1 morgun og vildi ekki full-
yrða neitt um hvort samningar
væru i augsýn hefur blaðið það
eftir öðrum heimildum að menn
séu bjartsýnir á að lausn sé í nánd
og að samningar takist í dag. *SG
Úrsjötugs-
afmæli Sigurðar
Þórarinssonar
- sjá Fólk bls. 33
Ifiðskiptasíða DV
— sjá bls. 30
grundvallar. í dag ætti að reyna á
hvort unnt er að ná samkomulagi á
breiðari grundvelli. Fundur í yfir-
nefnd gæti orðið strax eftir að samn-
ingar tækjust í sjómannadeilunni.’’
Þetta sagði Steingrímur Hermanns-
son sjávarútvegsráðherra þegar DV
ræddi við hann í morgun.
„Það ber ekki mikið á milli,”
sagði Steingrímur um viðræður í her-
búðum stjórnarinnar um efnahags-
„pakka”. „Sutr.ir eru meiri niður-
skurðarmenn en aðrir minni. Sú leið
sem farin var í fyrra er inni í mynd-
inni,” sagði ráðherra, en þá voru
verðbætur skertar I. marz um 7%.
„Spurningin er: Er ekki nauðsynlegt
að skerða verðbætur og bæta síðan
kaupmátt lægri launa? Samdráttur
þjóðartekna leiðir til minni kaup-
máttar yfir heildina. Það er kreppa í
löndunum í kringum okkur. í fyrra
jókst einkaneyzla um 4—5% og
einnig samneyzla en fjárfesting dróst
saman. Það þýðir að við erum að éta
kökuna,” sagði Steingrímur
Hermannsson.
Steingrímur sagði að hinar ýmsu
tillögur sem stjórnarliðar ræddu nú
mundu kosta á bilinu 200—400 millj-
ónir á ári. Enn væri eftir að ganga frá
hvernig aðgerðirnar yrðu en vonandi
tækist þaðá næstunni.
-HH.
Brynjólfur Gíslason á Borgarspítalanum. DV-mynd: Bjarnleifur.
Skreið illa fótbrotinn og blautur tvo kflómetra:
„REYNDIAÐ H0RFA
EKKIA SARIД
segir Brynjólfur Gíslason, 15 ára strákur úr Grindavík
„Ég reyndi að horfa ekki á sárið.
Þetta var stórt sár og ég fann mikið til.
Ég reyndi bara að hugsa um eitthvað
annað,” sagði Brynjólfur Gíslason, 15
ára strákur úr Grindavík.
1 fyrradag skreið hann illa brotinn á
vinstra fæti tveggja kílómetra leið.
Hann hafði slasazt er hann kastaðist af
skellinöðru í grjóturð í hlíðum Bæjar-
fells í nágrenni Gríndavíkur.
„Það var hús ekki langt frá staðn-
um. Ég skreið þangað en það var eng-
inn heima þar. Ég hélt þá áfram. Svo
kom rigning og ég varð blautur. Þetta
varekkert þægilegt.
Ætli ég hafi ekki verið búinn að
skriða í einn og hálfan tíma þegar ég
kom inn í Þórkötlustaðahverfi. Og þá
kom bíll. Svo var ég fluttur með sjúkra-
bíl til Reykjavíkur,” sagði Brynjólfur.
„Þetta var óskaplegt afrek hjá strák-
um, það er óhætt að segja,” sagði
læknir á Borgarspíitalanum í sþfelli við
blm. DV. Brynjólfur liggur þar og er
óðumaðhressast.
-KMU.
Vinsælasta
popphljómsveit
Bretavillkoma
tillslands
- sjá bls. 5
Islenzkahand-
knattleiksliðið
eróslípaður
demantur
— sjá íþróttir
bls. 18-19
•
Fatlaðireiga
ekkimöguleikaá
aðaukatekjur
sínar
— sjá lesendur
bls. 16-17
•
Þúsundir nýrra
bfíabíða
í vörugeymslum
skipafélaganna
-sjábls.3
•
Meiraeftirlit
vantarmeð
mjólkinni
— sjá neytendur
bls.6-7
Garboersöm
viðsig
— sjá Mannlíf
bls. 32