Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 1
mmum 29. TBL. - 72. og 8. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. fijálst, úháð daghlað Hosthús og sumarbústaðir voru umffotnir í Víðidal og EHiðaárnar beljuðu fram kolmórauöar. / morgun var svæðið þama lokað aiiri umferð og bað /ögreglan ökumenn að virða það bann. DV-myndS. Miklir vatnavextir og flóð valda skemmdum og erfiðleikum: Feðgar úr helju heimtir —Um hundrað manns úr björgunarsveitum leituðu feðganna ogfunduþáíhesthúsiíVíðidal Faðir stúikunnar sem varð fyrir árásinniíÞverholti: MunduaðþHt bameöa ástvinurgetur orðiðnæsta fómarlambið — sjá lesendur bls. 14-15 Stóra helgardagbókin fylgirblaðinuídag: Sjónvarp- útvarp-leikhús- söfnin - íþróttir ogmargt margtfleira Spurtogsvarað um skattamálin — sjá bls. 2-3-4 Kennedylét líkahljóðrita samtölmeð leyndíHvfta húsinu — sjá erl. f réttir bls.8-9 Öryggisgæzlu þarfstrax — sjá leiðara bls. 12 Erutveir fiskistofnar fhættu? — sjá kjallaragrein bls. 12-13 Gafaldrei yfirdráttar- heimild — segir sparisjóðs - stjórinn áSkagaströnd — sjá bls. 11 Um eitt hundrað manns úr björgunarsveitum leituðu í gærkvöidi að feðgum, Sigurjóni Þorbergssyni og sjö ára gömlum syni hans, Þorbergi. Fundust þeir heilir á húfi í hesthúsi eftir um þriggja tima leit. Feðgárnir höfðu lent í hrakningum vegna flóðanna miklu í gær. Bifreið þeirra hafði farið út af vegi i Víðidal. Var allt umhverfið þar flotið vatni. Tóku þeir því það til bragðs að komast í skjól í nálæg hesthús. Svo mikið var vatnið að Sigurjón þurfti að vaða upp í mitti. Það var um klukkan tuttugu í gær- kvöldi sem lögreglunni var tilkynnt um að maður ætti í erfiðleikum með bif- reið sína. Fóru iögreglumenn á staðinn og fundu bílinn en engan þar hjá. Rúmri klukkustund síðar hafði eiginkona Sigurjóns samband við lög- regluna þar sem þeir feðgar höfðu þá ekki komið fram. Var þá farið að svipast um eftir þeim og um klukkan hálfellefu í gærkvöldi voru björgunar- sveitir kallaðar út. Bíllinn, sem er Lada-jeppi, var að hluta til í kafi. Voru kafarar því hafðir með leitarflokkum og óttuðust menn hið versta. Þungur straumur var í kringum jeppann og ekki gerði myrkrið aðstæður skárri. En betur fór en á horfðist. Feðgarnir fundust, sem fyrr sagði, rétt fyrir klukkan hálftvö í nótt, báðir við beztu heilsu. -KMU. — sjánánarum vatnavextina og flóðin á baksíðu Tveir sovézkir njósnarar reknir úr landi í Noregi Frá Jóni Einari Guðjónssynl i Osló i morgun: Norska utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt að tveir sendifulltrúar Sovét- rlkjanna 1 Osló séu óæskilegir i landinu og beðið þá um að verða á brott innan sjö daga. Fjölmiðlar segja I morgun að' Sovétmennirnir hafi staöið fyrir njósn- um i norskum iðnfyrirtækjum. Tvimenningarnir störfuðu i viðskiptamálanefnd sovézka sendiráðsins. Þeir hafa staöið i sambandi við fólk er vinnur I verk- smiðjum sem framleiða ýmsa hluti I vopn Natóríkja. Meðal annars eru vissir smáhlutir I bandarísku orrustuþotuna F—16 framleiddir í Noregi. Reynt hefur verið að kaupa fólk sem vinnur við framleiðslu á þess- im hlutum til að gefa upplýsingar. Einnig hafa sovézku njósnararnir reynt að fá norsk fyrirtæki til að kaupa bandarlskan búnaö, sem bannað er að flytja út til Sovétrlkjanna, og selja áfram þangað austur. -SG.%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.