Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 5
5
Sóknarnefnd heyrnarskertra á fyrsta fundi sinum ásamt biskupi. F.v. Vilhjálmur Vilhjaimsson, Uaniel Jensen, Myiako
Þórðarson, Hervör Guðjónsdóttir, Júlia Finnsdóttir, Kristín Sverrisdóttir, Jón Sætran og Pétur Sigurgeirsson
biskup.
DAGBLAÐIÐ& VtSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982.
Kirkjustarf heyrnarskertra byrjar vel:
Sálmar fluttir á táknmáli
Kirkjustarf heyrnarskertra hefur
farið vel af stað og gefið góða raun.
Séra Myiako Þórðarson starfar nú sem
prestur þeirra. Hún var vígð til þess
starfa skömmu fyrir jól.
Guðsþjónustur fyrir heyrnarskertra
og aðra eru annan hvern sunnudag
hvers mánaðar kl. 14.00 i Hallgríms-
kirkju. Sr. Myiako flytur mál sitt með
orðum og táknmáli samtímis.' ,,Kór”
flytur sálma á táknmáli, en heyrandi
fólk í söfnuðinum syngur með. Þá legg-
ur kórfólk á sig mikið starf til að ræða
inntak sálmanna og finna tákn, sem
hæfa og skiljast, enda er hér um braut-
ryðjendastarf að ræða.
Barnastarf er einnig reglulegt í Hall-
grímskirkju, síðasta laugardag hvers
mánaðar kl. 14.00. Þar eru bæði
heyrnarskert og heyrandi börn. Jón
Sætran og fleiri eru til aðstoðar.
Fjögur heyrnarskert ungmenni eru í
fermingarfræðslu hjá sr. Myiako. Auk
þess sækja þau fermingarundirbúning
hjá sóknarprestum sínum, þar sem þau
fermast.
Eðli málsins samkvæmt verður sitt-
hvað með öðrum hætti í starfi sr.
Myiako en í venjulegri þjónustu
sóknarprests. Á sama hátt og kórinn er
ekki söngkór, er sóknarnefndin í sjálfu
sér ekki sóknarnefnd þar sem um
ákveðna landfræðilega stærð er að
ræða, sem er sókn hinna heyrnar-
skertu. Sóknarnefnd kallast engu að
siður sá starfshópur frá félagi heyrnar-
lausra og foreldrafélagi heyrnarlausra
barna sem vinnur með sr. Myiako.
Viðtalstímar sr. Myiako eru tvisvar í
viku, á þriðjudögum og fimmtudögum
í Hallgrímskirkju.
-JSS
Framtalsaðstoð
ÓLAFUR ÞORLÁKSSON HDL.
LÖGMANNSSTOFA
Laugavegi 66 — sími 21211
Helgarsími 77949.
:
Í5T:
Smurbrauðstofan
BJORIMirMN
Njálsgötu 49 — Sími
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVÍKUR
Tvær stöður eru lausar til
umsóknar:
Bókavörður
Fullt starf bókavarðar í útlánsdeild aðalsafns Þingholts-
stræti 29 A.
Æskileg menntun: stúdentspróf eða sambærileg menntun
og vélritunarkunnátta. Óreglulegur vinnutími.
Skrifstofumaður
Fullt starf á skrifstofu safnsins Þingholtsstræti 27.
Menntun: stúdentspróf eða sambærileg menntun. Góð vél-
ritunarkunnátta nauðsynleg.
Launakjör skv. samningum við Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 25. febrúar 1982.
Blárefur drepinn
í Kelduhverfi
—Slapp af einhverju búanna í héraðinu
Blárefur var skotinn i Kelduhverfi í
fyrradag. Hafði dýrið verið á flæk-
ingi á þessum slóðum. Leikur grunur
á að það hafi sloppið af einhverju
þeirra refabúa, sem eru á þessum
slóðum.
Það var fyrst fyrir tveim vikum að
menn urðu varir við skolla. Höfðu
sézt slóðir eftir hann við sjóinn norð-
ur af Víkingavatni. Þar sem þetta
þótti hinn mesti vágestur, fór
Jóhann Gunnarsson bóndi á Víkinga-
vatni nokkrar ferðir út á reka til að
aðgæta þetta betur. Varð hann ekki
var við refinn á ferðum sínurn en
rakst á nýjar slóðir eftir hann svo og
fuglahræ, sem hinn óboðni gestur
hafði skilið eftir sig.
I fyrradag fóru svo Jóhann og Þor-
geir Þórarinsson bóndi á Grásíðu á
snjósleða út á reka. Óku þeir innan
skantms fram á skolla. Hann virtist
gæfur i fyrstu en hrökk svo undan
mönnunum austur undir Bakka-
fljótsós. Þar tókst þeim að vinna á
honum.
Við athugun kom i ljós, að þarna
var um að ræða karlkyns bláref, 12
pund að þyngd. Var það álit manna
að þetta hefði verið hvolpur frá því í
vor. Refurinn var ómerktur svo engin
leið var að sjá hvaðan hann hefði
sloppið. Nú eru fimm tófubú rekin í
Suður-Þingeyjasýslu og þykir fullvist
að refurinn hafi komið frá einhverju
heirra. Viðar/JSS
EigendurSteindórs:
KREFJAST 50 MILU.
í TRYGGINGARFÉ
—gegn lögbannskröf u Samgönguráðuneytis
í gær var þingfest hjá Borgarfó-
getaembættinu í Reykjavík lögbanns-
mál samgönguráðuneytisins á hendur
Bifreiðastöð Steindórs s/f. Lögðu
lögmenn málsaðila þá fram gögn sín
en búizt er við að munnlegur mál-
flutningur hefjist í miðri næstu viku.
Að sögn Viðars Más Mattíassonar
lögfræðings eigenda Steindórsstöðv-
arinnar, gerðu þeir kröfu um að 50
milljónir króna yrðu settar til trygg-
ingar lögbanninu.
Borgarfógetaembættið mun siðan
taka afstöðu til hvort orðið verður
við kröfu samgönguráðuneytisins um
lögbann á starfsemi Steindórsstöðv-
arinnar og einnig hvaða tryggingar-
fjárhæð farið verður .fram á. Ekki er
búizt við að sá úrskurður verði birtur
fyrr en eftir rúma viku.
FramsóknáSelfossi:
Tíu í prófkjöri
Prófkjör framsóknarmanna á
Selfossi fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar í vor fer fram 20. febrúar nk.
Að framboðsfresti loknum hafa eftir-
taldir gefið kost á sér:
Ásta Samúelsdóttir kaupmaður,
'Grétar Jónsson húsasmiður, Guð-
mundur Kr. Jónsson mælingamaður,
Gunnar Kristjánsson kennari
Hafsteinn Þorvaldsson forstöðu-
maður, Heiðdís Gunnarsdóttir full-
trúi, Ingvi Ebenhardsson aðalbókari,
Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri,
Jón Ó. Vilhjálmsson verkstjóri og
Kristján Einarsson húsasmiður.
Prófkjörið er opið öllum stuðn-
ingsmönnum Framsóknarflokksins
átjánáraog eldri.
-KMU/Kristján, Selfossi.
Borgarbókavörður.
Áður kr>MC:^W^ Nú kr. 599,-
ÚTSÖLUMARKAÐURINN II. H
Hringbraut 121 Sími 10600
a a a
ilSiii
LUL
-ÓEF