Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd VERÐUR ÍSRAEL VÍSAÐ ÚR SAM- EINUÐU ÞIÓD- UNUM í DAG? Búizt er við að samþykkt verði í alls- herjarþinginu í dag með miklum meiri- hluta ályktun sem felur í sér refsiað- gerðir gegn ísrael og hugsanlegan möguleika á því að vísa því úr samtök- unum. Stjórnir Bandarikjanna og ísraels hafa varað við afleiðingum þess ef ísrael verður svipt aðildarréttindum. Til aukafundar var boðað í alls- herjarþinginu er Bandaríkin höfðu með neitunarvaldi sínu hindrað samþykkt refsiaðgerða í öryggisráðinu eftir að fsrael innlimaði i lögsögu sína Gólan- hæðirnar þann 14. desember. Að ályktunartillögunni um refsiað- gerðirnar standa 39 ríki. Þar á meðal ýmsir bandmenn USA, eins og Jórdanía, Líbanon, Marokkó, Pakistan, Saudi Arabía, Súdan og Túnis. Einna mestan óhug hafa menn af þessari málsgrein tillögunnar: ,,Saga fsraels og aðgerðir staðfesta að það er ekki friðelskandi aðildarríki og hefur ekki fullnægt skyldum sínum sam- kvæmt sáttmála SÞ né samkvæmt sam- þykkt allsherjarþingsins númer 273 frá 11. maí 1949.” Þetta síðasttalda er einmitt ályktunin þar sem hið þá nýstofnaða ísraelsriki fékk inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar. Enn hefur engu aðildarríki verið vísað úr Sameinuðu þjóðunum enda þarf til þess samþykkt Öryggisráðsins, þar sem neitunarvald stórveldanna er í gildi. En Suður-Afríku var meinuð seta á alls- herjarþinginu í nóvember 1974, með því að bornar voru brigður á umboðs- bréf fulltrúa landsins. Hefur Suður- Afríka ekki náð sæti sínu aftur. Stjórnir Bandaríkjanna og ísraeis hafa ekki tíundað, hvcrnig þær mundu bregðast við, ef fsrael verður vísað úr samtökunum. En Bandaríkin leggja allra þjóða mest af mörkum til sjóða Sameinuðu þjóðanna og kynnu að skera framlög sín mjög niður. i" Til þessa hefur engu riki verið vísað úr Sameinuðu þjóðunum, en verður Israel fyrsta tilvikið? Háskólastúdentar undir ströngumaga ipólskum háskólum Kennsla hefst að fullu á nýjan leik i pólskum háskólum næsta mánudag. Sérstök herlagaákvæði munu þó um þá gilda. Verða stúdentar t.d. að yfirgefa háskólalóðirnar strax að kennslu lok- inni dag hvern. Aðgangur þeirra að fjölriturum verður takmarkaður. Sumar deildir, eins og læknadeildir, hófu kennslu að fullu i síöasta mánuði en nýjar reglur hafa verið í undirbún- ingi og tafið að starfsemi háskólanna hæfist að fullu eftir hléið sem varð þegar herinn tók völdin 13. desember. Svo er að sjá að ýmsar umbætur, sem stúdentar fengu samið um í fyrra í átt til meira akademísks frelsis, eins og óritskoðaðar útgáfur þeirra, frjálsan valkost á að læra eða ekki læra marxisma og rússnesku, hafi nú verið felldarúrgildi. Nýju reglurnar leggja á skólastjórn- irnar að halda uppi meiri aga og gæta útgöngubannsins í hvívetna. Brottvísun varðar ef stúdentum verður á aö dvelja of lengi í skólunum að kennslu lokinni eða gera eitthvað þaðan af alvarlegra af sér. Dauða- refsing — á ný á Indlandi Tveir menn sem dæmdir voru fyrir morð og nauðgun hafa nú verið teknir af lífi með hengingu í fangelsi i Nýju Delhi á Indlandi. Er álitið að þetta boði það að dauðarefsing verði á ný tekin upp í landinu en aftökur hafa ekki farið fram þar sl. fimm ár. Alls eru það 135 fangar sem eiga dauðarefsingu yfir höfði sér. Fangarnir tveir, sem hengdir voru, héldu fram sakleysi sínu til hinztu stundar. Óðaverð- bólga Ekki eiga íslendingar metið i verðbóigu enda erfitt að finna í henni viömiðun við hausatölu. Meðal þeirra, sem skjóta okkur langt aftur fyrir sig eru Brasilíu- menn og eiga þeir þó ekki heldur metið. Verðbólgan í Brasilíu, á árs- grundvelli reiknuð, var 94,7% í síðasta mánuði og hafði þá lækk- að úr 95,2% í desember. Annars eru þeir í Brasilíu að telja verð- bólguna niður og búast við því að koma henni niður í 70%, þegar litið er yfir allt árið 1982. Systir Castros orðin bandarískur ríkisborgari Yngri systir Fidels Castros, for- seta Kúbu, — Juanita heitir hún (48 ára) '— varð bandarískur ríkisborgari í gær við sérstaka athöfn í Miami. „Mér líður dásamlega og er alsæl,” sagði hún eftir að hafa svarið hollustueiðinn, eins og venja er þar við slík tækifæri. Juanita studdi bróður sinn í byltingunni áður en hann komst til valda á Kúbu 1959. Hún sneri þó baki við honum fljótt eftir það og flutti til Bandaríkjanna (meö einhverri viðdvöl í Mexíkó áður) árið 1964. Hún rekur nú sjoppu í „Litla Havana”-hverfinu í Miami. Björgunarmenn vciða svarta kassann upp úr Potomac-ánni f Washington. Svarti kassinn leiðirýmis- legt í Ijós — Rannsókn haldið áf ram á f lugslysinu íWashington „Larry! Við erum að hrapa, Larry!” heyrist af segulspólu svarta kassans úr Air Flórída-þotunni, sem hrapaði í Potomac-ána í Washington i siðasta mánuði. „Veit ég það,” svarar Larry Wheaton, flugmaður, aðstoðarmanni sínum, Roger Alan Pettit. Svarti kassinn er upptaka á sam- ræðum í flugstjórnarklefanum, en hann skráir einnig sjálfkrafa allar upp- lýsingar eins og um flughæð, stefnu og hraða flugvélarinnar. Við rannsókn á flugslysum fæst oft varpað ljósi á or- sakir þeirra eða aðdraganda með þessum upplýsingum. Rannsókn stendur enn yfir á slysinu í Washington og leiðir svarti kassinn i ljós að áhöfnin á flugvélinni hafði orð- ið vör við isingu á vélinni strax í flug- taki. „Drengur, þetta er vonlaust stríð... að reyna að afísa vængina. Það vekur hjá þér falska öryggiskennd og það er allt og sumt,” heyrist Roger Pettit segja við flugstjórann. Meðan þeir biðu eftir heimild til flugtaks skiptust þeir á athugasemdum um slæmt veðrið og ísingarvandræðin. — Örfáum sekúndum eftir flugtakið hrapaði vélin beint ofan á eina um- ferðarbrúna yfir Potomac-ána. Með henni fórust 78 manns. Á einum stað í hljóðrituninni heyrist Pettit biðja Wheaton að huga að vængnum hans megin. — ,,Það er eitt- hvert smáræði á honum mín megin,” svarar Wheaton. — „Smáræði!” segir þá Pettit. „Hérna megin er allt að hálf- tommu þykkt lag. Það er vitað að frá því að vélin var afisuð og til þess er hún tók sig á loft liðu 43 mínútur, sem mönnum kemur saman um núna að hafi verið of langur tími, miðað við þau veðurskilyrði sem þá ríktu. Ýmis hljóð, sem hljóðritinn nam úr vélinni, benda til þess að hún hafi of- risið. Þó var hraði hennar ofan við ofrishættumörk í venjulegum skil- yrðum en ekki nægur miðað við aukinn þunga af ísingu og snjó. EL SALVADOR EINS 0G ALLSHERJAR SLÁTURHÚS — segja erlendir f réttamenn, en 40 voru drepnir þar að meðaltali dag hvem í fyrra „Hermennirnir komu um hánótt, drógu Jose út og drápu hann fyrir framan húsið okkar,” sagði kona ein í San Antonio Abad í E1 Salvador við fréttamann Reuters, en ekki þorði hún að láta nafns síns getið. Sorgin og uppgjöfin í andliti hennar var eins og ímynd ástandsins í El Salvador. Örlög sonar hennar eru dæmigerð fyrir fjölda manns í landinu. Um síðustu helgi voru 24 menn leidd- ir þannig út af heimilum slnum í þessu þorpi, San Antonio Abad, og teknir þannig af lífi. Þorpið liggur á mörkum höfuðborgarinnar, San Salvador. Herinn í E1 Salvador hefur viður- kennt að hafa drepið mennina en heldur því fram að þeir hafi verið drepnir í skotbardögum. Enda leiki grunur á að þeir hafi verið skæruliðar vinstrimanna. „Auðvitað verður herinn að halda þessu fram en það voru engir bar- dagar,” sagði ofannefnd kona við Colin McSeveny, fréttamann Reuters. „Herflokkurinn birtist hér allt í einu upp úr þurru. Hermennirnir skýldu andlitum sínum með klútum og slátruðu piltunum, sem höfðu ekkert haft saman við skæruliða að sælda. — Sonur minn starfaði sem rafvirki lið- langan daginn og síðan í bakaríi á kvöldin í aukavinnu. Hvernær í ósköpunum átti honum aö gefast stund til þess að vera skæruliði?” Borgarastyrjöldin í E1 Salvador hefur breytt landinu í eitt allsherjar sláturhús. Síðasta ár voru að meðaltali drepnir 40 menn dag hvern.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.