Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Kennedy lét líka hljóð- rita með leynd samtölin f Hvíta húsinu Fyrri embættismenn og aðstoðar- menn John F. Kennedy heitins forseta Bandarikjanna hafa látið í ljós hneyksl- an yfir upplýsingum um að hann hafi látið hljóðrita 325 samtöl sem fram fóru i forsetaskrifstofu Hvita hússins. „Mig rekur ekki minni til að það hafi nokkum tima verið gert. Ef svo væri, hefði ég vitað af því. Ég var dag- lega í skrifstofu forsetans,” segir David Pöwers, sem var einkaritari Kennedys. Hann er nú safnvörður Kennedybóka- safnsins í Boston. Theodore Sörensen, sérlegur ráðgjafi forsetans, sagðist dasaður af þessum fréttum um hljóðupptökurnar. „Aldrei grunaði mig slíkt,” sagði hann. Frá þessum hljóðritunum var skýrt í Washington Post í gær og er það í fyrsta sinn sem það er opinberað. Er fréttin staðfest af Daniel Fenn, for- stöðumanni Kennedy-bókasafnsins. Burke Marshall, sem var aðstoðar- dómsmálaráðherra i stjórn Kennedys, er nú formaður þriggja manna nefndar sem sker úr um hvaða efni skuli birt af þessum hljóðritunum og fleiru þess háttar sem varðveitt er í safninu. — Er búizt við að það geti kannski komið fyrir almenningssjónir næsta sumar. Margir aðdáendur JFK, sem ráðinn var af dögum 1963, hafa látið þessar fréttir mjög á sig fá. Þykir þeim rninn- ing hins látna hafa sett ofan við það að MISS ELLIE FÆR VERÐLAUN Nýlega var verðlaunum erlendra blaðamanna, Golden Globe verðlaununum, úthlutað i Holly- wood. Hlaut Barbara Bel Geddes verðlaunin sem bezta sjónvarpsleik- kona ársins fyrir hlutverk sitt í Dallas en þar leikur hún ætt- móðurina Ewing, Miss Ellie. Hins vegar var MASH valinn bezti framhaldsþátturinn í sjónvarpi á sl. ári. Miss Ellie ásamt syninum Bobbie sem leikinn er af Patrick Duffy. Æðsta hermálafulltrúa Sovétríkjanna vísað úr landi i Bandaríkjunum í gær tilkynnti bandaríska utanríkis- ráðuneytið að æðsta hermálafulltrúa Sovétrikjanna í Washington, Vasili Chitov hershöfðingja, hefði verið vísað úr landi fyrir „starfsemi” sem ekki hæfði stöðu hans. Chitov hershöfðingi fór úr landi i fyrradag eftir að Bandaríkjastjórn hafði úrskurðað hann „óæskilega persónu”, sagði talsmaður ráðuneytis- ins. Hún neitaði að gefa nánari upplýs- ingar um málið, en í fréttum NBC sjón- varpsstöðvarinnar var sagt að Chitov hershöfðingi hefði verið tekinn í vörzlu alríkislögreglunnar um síðustu helgi eftir að hún hafði átt í æsandi eltinga- leik við hann um götur Washington- borgar. hafa látið hljóðrita samtöl i skrifstof- unni — máske án vitundar viðkom- andi. Meðal annars eru hljóðrituð nokkur samtöl hans við eiginkonu sína, Jacqu- eline, máginn Sargent Shriver, fyrrver- andi forseta Dwight Eisenhower, Harry Truman og einnig við Douglas MacArthur, hershöfðingia. 1973 kom upp orðróntur um að Kennedy hefði með leynd látið hljóð- rita samtöl sín í Hvíta húsinu. Hans nánustu ráðgjafar- og samstarfsmenn báru þær fréttir til baka og brugðust margir ókvæða við þeim „rógburði”. JFK, fyrrum forseti, lét einnig hljóðrita með leynd samræður sínar við menn, eins og ger' hafa Richard Nixon og fleiri. Sjónvarpsstöðin hafði það eftir ónafngreindum heimildum að hers- höfðinginn hefði verið með „við- kvæm” skjöl í fórum sínum. Utanríkisráðuneytið og alríkislög- reglan neitaði að tjá sig um þessa frétt sjónvarpsstöðvarinnar. Er talsmaður utanríkisráðuneytisins var spurður að því hvort Moskvustjórn mundi svara með þvi að vísa bandarísk- um sendifulltrúa eða sendifulltrúum úr landi sagði hún: — Ég vil ekki vera með neinar get- gátur í þvi sambandi. Chitov hershöfðingi var yfirmaður um 20 sovézkra hermálafulltrúa i Washington. Starfsmenn sovézka sendiráðsins vildu ekki tjá sig um málið. VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK Umsóknir Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á 176 tveggja til fimm herbergja íbúðum, sem eru í byggingu við Eiðsgranda í Reykjavík. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri íbúðir, sem koma til endur- sölu síðari hluta árs 1982. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 51/1980. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga—föstudaga kl. 9—12 og 13—16. Umsóknum skal skila eigi síðar en 27. febrúar nk. Óafgreiddar umsóknir frá nóv.—des. 1981 verða einnig taldar gildar um þessar íbúðir, nema umsækjendur tilkynni annað. Stjórn verkamannabústaða / Reykjavík. oQ°h RÝMINGARSALA RÝMUM FYRIR IMÝJUM VÖRUM A<fwr VERZLUIMIN NO.1 AÐALSTRÆT116

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.