Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. 11 Fullyrðingar stangast á varðandi Sparisjóð Skagastrandar: HRBN OG BBN ÓSANNINDI” —segir sparisjóðsstjóri, sem kveðst aldrei hafa gef ið starfsmanninum heimild til yfirdráttar „Það eru hrein og bein ósannindi að maðurinn hafi fengið leyfi mitt til að gefa út innistæðulausar ávísanir,” sagði Björgvin Brynjólfsson spari- sjóðsstjóri á Skagaströnd, er DV spurði hann hvort hann hefði gefið Birni Jósefssyni, fv. starfsmanni sparisjóðsins, heimild til yfirdráttar á ávisanareikning. Björn var sem kunnugt er tekinn til yfirheyrslu vegna kæru sparisjóðs- stjóra, er óskaði rannsóknar á fjár- reiðum hans. „Það er ekki rétt að ég hafi kært manninn fyrir fjárdrátt,” sagði Björgvin.” Þarna er um að ræða misferli í starfi og misnotkun á aðstöðu. Aðdragandi þessa máls er sá að milli jóla og nýárs tóku að hrúgast inn innistæðulausar ávísanir gefnar út af þessum manni. þær héldu áfram að berast eftir áramót. Þegar svo var komið samdi ég um það við hann að skuldin yrði greidd með kaupi hans í janúar, svo og orlofsfé sem hann fengi greitt, þar sem hann var að hætta störfum. Afganginn skyldi hann svo greiða með hluta af andvirði bíls sem hann var að selja. Þenna samning sveik maðurinn en stakk af með kaupið án þess að ganga frá sínum málum. Ég neyddist því til að leita opinberrar aðstoðar til að fá tryggingu í bílnum.” Sagði Björgvin það enn fremur algjör ósannindi að hann veitti við- skiptamönnum sparisjóðsins heim- ildir til að yfirdraga ávísanareikninga sína. „Það getur komið fyrir hér, eins og annars staðar að menn skrifi innistæðulausar ávísanir,” sagði Björgvin. ,,En það er mjög ósmekklegt og óviðeigandi að starfs- maður sparisjóðsins fari þar fremstur í flokki og sé langhæstur. Aðspurður um hvort fólk tylldi illa í vinnu i sparisjóðum sagði Björgvin það alls ekki vera. „Það hefur verið ákaflega lítil hreyfing á starfsfólki þar til þessi maður kom,” sagði hann. Það mætti setja umræddar uppsagnir í samband við veru hans hér.” -JSS UTITONLEIKAR FYRIR KVIK- MYNDINA ROKK í REYKJAVÍK SEGULBANDSTÆKIORSÖK BANASLYSS í UMFERDINNI — hljómsveitin EGO leikuráLækjar- torgi kl. 14 á morgun Kvikmyndin Rokk í Reykjavík er nú langt komin í vinnslu en síðasta upp- taka myndarinnar fer fram með pompi og prakt á Lækjartorgi á morgun. Þar verða settir upp útitónleikar með hljómsveitinni EGO og Bubba Morthens og mun hljómsveitin flytja nokkur vel valin lög. Framleiðendur myndarinnar hvetja fólk til að koma og sjá þessa úti- tónleika en miklu máli skiptir að fjölmennt sé á Lækjartorgi vegna kvik- myndatökunnar. Kvikmyndin verður frumsýnd í einhverju kvikmyndahúsi bæjarins um páskana. Framleiðendur myndarinnar eru þeir Ari Kristinsson, Friðrik Þór Frið- riksson, Jón Karl Helgason og Þorgeir Gunnarsson en þeir reka saman kvik- myndafélagið Hugrenningu. Þess má geta að við kvikmyndunina á morgun verða notaðar sex kvik- myndatökuvélar og hljóðupptaka er á 8-rása stereo. Tónleikarnir hefjast kl. 14.00. -ELA Sex kvikmyndatökuvélar verða notaðar við upptöku á hljómleikum með hljómsveitinni EGO á Lækjartorgi á morgun. Eru allir hvattir til að mæta og hlýða á hljómsveitina leika Rokk I Reykjavík. DV-mynd Einar Olason Orsök dauðaslyss sem varð í umferð- inni á höfuðborgarsvæðinu fyrir nokkru mun hafa verið sú að öku- maður missti stjórn á bíl sínum er hann var að eiga við segulbandstæki í mæla- borði bílsins. Upplýsingar þessar fékk DV frá rannsóknarlögreglumanni þeim sem vann að rannsókn slyssins. „Mörg umferðarslys hafa orðið vegna svipaðra ástæðna. Það er ástæða til að segja frá þessu og vara fólk við. Bæði reykingar og segulbandstæki hafa valdið alvarlegum umferðar- slysum.” sagði rannsóknarlögreglu- maðurinn. Hann gat þess að sá er lézt í umræddu bílslysi hefði ekki verið með bílbeltin spennt. -KMU. ÞRÍR í SÉRFLOKKI rrár rr T FORD FIESTA GHIA árg. 1978, ekinn aðeins 25000km. SAAB 900 COUPÉ ÁRG. '80 ekinn 26 þús. km. ToppbUi. Aukþess mikið úrvainotaðra bíla Verð við aiira hæfi Opið iaugardaga frá ki. 10 til 18. 5 gíra, svartur. Mjög faiieg- urbíii. FÍAT 131 RACING árg. 1980, ekinn aðeins 21000km. BÍLASALAN BLIK s/f SÍÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK SÍMI: 86477 SYNING UM HELGINk ulHEKIA Laugavegi 170-172 Sír kHF Sími 21240 INNHEIMTUSTARF Óskum að ráða duglegan og vanan starfskraft til inn- heimtustarfa strax. Umsóknir með upplýsingum úm aldur, menntun og fyrri störf sendist auglýsingadeild DV fyrir 10. febrúar nk. merkt „Símainnheimta”. Allt til keramikgeröar OPIÐ: Mánudaga Þriðjudaga Miðvikudaga Fimmtudaga Föstudaga Laugardaga Kl: 13.00—18.00 og 20.00—22.00 Kl: 13.00—18.00 og 20.00—22.00 Kl.: 13.00—18.00 Kl: 13.00—18.00 og 20.00—22.00 Kl: 13.00—17.00 Kl: 13.00—15.30 Aldrei meira úrval af hrávörum (hálfunnið). Mikið úrval af nýjum munum. OzKetrtm/'kl/úáið l/f. Sigtúni 3 — Sími 26088 SUNNUDAGS BLADID MODVIUINN alltaf um helgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.