Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 15
R.S. spyr hvort „ekki sé óeðlilegt að aðilar sem eiga beinna hagsmuna að gæta, þ.e. tryggingafélögin, dæmi um skiptingu réttar/óréttar aðila í umferðaróhöppum.” Hvað líður stofnun hlut- lauss umferð- ardómstóls? —Hve lengi eigum við að hlíta umf jöllun tryggingafélaganna? gætt andstöðu við stofnun sérdóm- stóla. Hins vegar er ljóst að æskilegt er að unnt sé að leiða ágreining vátrygginga- félaga og tjónþola til lykta án óþarfa dráttar. Úrlausn óvilhallra manna utan dómstóla, einhvers konar gerðardóm- ur, eða álitsgerð slíkra manna, þar sem málsnieðferð getur verið einfaldari en fyrir venjulegum dómstólum, er væn- legri leið til að veita aðilum leiðbeiningu og þá skjótari úrlausn slíks ágreinings. Slik leið hefur verið reynd á vegum neytendasamtaka á ýmsum sviðum. Gerðardómsleið í sambandi við bif- reiðatjón mun nokkuð notuð á Norð- urlöndum. Fæst gerðardómur þá að öllum jafnaði eingöngu við sakarskipt- ingu. Væri æskilegt að slik leið utan dóm- stóla verði reynd hér á landi með sam- komulagi bifreiðaeigenda og vátrygg- ingafélaga fremur en að stofnað verði til sérstaks umferðardómstóls. Það atriði verður þó án efa tekið til með- ferðar af umferðarlaganefnd við heild- arendurskoðun umferðarlaga sem nú fer fram. R.S. skrifar: Hvað líður stofnun hlutlauss um- ferðardómstóls? Eiga vegfarendur um ókomna fram- tíð að þurfa að hlita umfjöllun trygg- ingafélaganna á umferðaslysum, þó að áfrýja megi málum til almennra dóm- stóla, með ærnum drætti, kostnaði og fyrirhöfn? Eða er ekki óeðlilegt að aðilar sem eiga beinna hagsmuna að gæta, þ.e. trygg- ingafélögin, dæmi um skiptingu rétt- ar/óréttar aðila í umferðaróhöppum? Gerðardómur væri æskileg lausn Vegna bréfs þessa leitaði hlaðamað- ur til dómsmálaráðuneytisins. Svar ráðuneytisins er svohljóðandi: Hugmyndir um sérstakan umferðar- dómstól hafa alloft skotið upp kollin- um og verið ræddar, meðal annars meðal lögfræðinga. Frekar hefur þar Sjónræn reynsla Undanfarinn hálfan mánuð hefur staðið yfir sýning í Gallerí 32, Hverfisgötu 32, á málverkum eftir Guðmund W. Vilhjálmsson. Listamaðurinn sýnir hér 45 vatns- lita- og pastelmyndir og er þetta fyrsta einkasýning hans. Guðmundur hefur þó tekið þátt í samsýningu flug- félaga og hlotið viðurkenningu. Þá hefur hann notið handleiðslu ágætra íslenzkra listamanna. Sýningunni lýkur 6.2. Landslag Þegar litið er yfir.sýningu lista- mannsins, er ljóst að hann getur til- einkað sér fleiri en eina myndgerð. En þó virðist expressionisminn, hin beina tjáning og landslags-abstract- ionin eiga mikil ítök i listamanninum. í þessum myndum er landslagið ekki lengur túlkað sem ákveðin afmörkuð heild, heldur er það brotið upp og lausttengdar formeindir virka sem skírskotun í raunveruleikann. Allt er gert til að leysa upp hina venju- bundnu sýn. Og þó bera megi kennsl á þekkta hluti úr náttúrunni og okkar næsta nágrenni reynir mikið á virkan þátt áhorfandans í myndlestrinum. Myndgerðir En þessi landslags-abstraction hefur margar hliðar hjá listamannin- um. Túlkar hann náttúruna ýmist með vel skilgreindum formum, sem skapa rými og svífa inn í myndverk- ið, eða hann teiknar frjálst með penslinum og leggur þannig megin- áherzlu á litinn og hans beinu tján- ingu, en þess er þó gætt að áhorfand- inn hafi möguleika á að styðjast við ákveðna skirskotun.í þessum ólíku stílbrotum og myndgerðum koma oft Uppstilling með M. nr. 43. Myndlist Gunnar B. Kvaran sterklega í gegn þeir listamenn sem Guðmundur hefur stuðzt við. Listunnandi Þessi sýning er i raun dæmi um ágætan frístundamálaara. Hér ægir samanólíkumstíltegundum og mynd- gerðum og listsögulegum upplýsing- um sem auga málarans hefur hrifizt af. Því hið ágæta franska orð, „amateur” (áhugamaður) sem skýrir vel þessa tegund af list, þýðir fyrst og fremst listunnandi, sá sem spilar, skrifar, syngur eða málar af ánægju, án þess að lykilorðið sé metnaður né nýsköpun á listasviðinu. Hér ein- kennist málverkið af hógværu og vandvirku handbragði. Spurningin er því ekki að finna upp nýtt myndmál eða umbreyta list- hugtakinu, heldur er hér málað út frá sjónrænni reynslu, út frá þeirri fullnægingu sem athöfnin að mála málverk gefur. Ljóö Yrkisefni Guðmundar eru margvís- leg, landslag, fígúrur, bátar eða upp- stilling. En þó er vist að hann er ekki að mála ákveðnar upplýsingar heldur er hér um að ræða stemmningar, eins konar ljóð í lit og formi. -G.B.K. miAÐwmmm 1 irjálst, áhii daghlai HEIMILIS- BÓKHALDIÐ ÞITT fylgir Helgarblaðinu á morgun Dagblaðið & Vísir mun gefa út neytendabœklinginn Heimilisbókhaldið þitt um næstu helgi og senda ókeypis með D V til áskrifenda. Áœtluð dreifing 52 þús. eintök. Auk þess verður bœklingurinn til sölu á útsölustöðum blaðsins. Einkunnarorð bœklingsins verða: Meira fyrir mánaðar- launin og verður neytendum gert kleift að fylgjast með vikuútgjöldum heimilisins með því að fœra inn hina ýmsu útgjaldaliði á auðveldan og hentugan hátt, í þar til gerða ro

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.