Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Síða 26
34 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. Andlát Kjartan Ólafsson, Spítalavegi 9 Akureyri, lézt 28. janúar 1982. hann var fæddur 15. október 1910. Hann var kvæntur Þórdísi Jakobsdóttur, þau eignuðust tvö börn. Árið 1936 hóf Kjartan leikstarfsemi hjá Leikfélagi Akureyrar, starfaði hann þar í rúm 45 ár. Kjartan var póstburðarmaður á Akureyri en siðustu árin starfaði hann hjá Olíuverzlun tslands. Þorgils Síeinþórsson, Eskihlið 22, lézT 29. janúar 1982. Hann var fæddur9. á- gúst 1911, uppalinn i Mývatnssveit, sonur Guðrúnar Jónsdóttur og Stein- þórs Björnssonar. Þorgils starfaði hjá Grænmetisverzlun ríkisins í rúm 40 ár. Eftirlifandi kona hans er Sigríður Guðmundsdóttir, þau eignuðust Ivö börn. Þorgils verður jarðsunginn i dag frá Fossvogskirkju kl. 15. Bjarni Jakob Marteinsson frá Eskifirði andaðist að Hrafnistu, Reykjavík, miðvikudaginn 3. febrúar. Útför Jóns Magnússonar, fyrrum kaupmanns frá Stokkseyri, verður gerð frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 14. Jón Vattnes Kristjánsson, lézt 26. janúar 1982. Hann var fæddur 22. júlí 1945. Eftirlifandi kona hans er Sigríður Brynjúlfsdóttir, þau eignuðust einn son. Jón starfaði í Mjólkárvirkjun og við hitaveitulagnir. Útför hans verður gerð í dag frá Fossvogskirkju kl. 13.30. María Guðmundsdóttir lézt 29. janúar 1982. Hún var fædd 12. mai 1930. Hún var gift Arnmundi Jónassyni, þau eignuðust sex börn. María verður jarðsungin í dag, kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Guðjón Hreiðar Friðfinnsson, Miklubraut 76, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 8. febrúar kl. 10.30. 1 Sigrún Ágústsdótlir og Bogi Pétur Thorarensen verða jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 6. febrúar klukkan 13.30. Jarðsett verður i Hrepphólum. Svavar Árnason, Ásbúð 38 Garðabæ, lézt að heimili sínu 3. febrúar. aa.oo TIMBUR BYGGINGAVÖRUR Flísar • Hreinlætistæki • Blöndunartæki • Málningarvörur • Verkfæri • Baðteppi • Baðhengi • Baðmottur. Harðviður • Spónn • Spónaplötur • Viðarþiljur • Einangrun *Þakjárn • Saumur • Fittings Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar allt niður í 20% útborgun og eftirstöðvar allt að 9 mánuðum. Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8—18 Föstudaga frá kl. 8—22. Laugardaga kl. 9—12. Munið aðkeyrsluna frá Framnesvegi í gærkvöldi I gærkvöldi Allir með strætó enginn með Steindóri Útvarp Reykjavík Fréttirnar segir Jóhannes Arason. Washington Post segir frá 600 fundum og símtöl- um sem hljóðrituð voru i tíð John F. Kennedy og ítalskir kommúnistar skriða undan pilsfaldi Kremlverja, voru fréttir úr vestri og austri. Á Al- þingi íslendinga ræddu menn um staðarheiti sem berast hingað til lands úr öllum heimshornum og festast. Alveg er ég sammála þingmanninum Guðrúnu Helgadóttur um að ekki passar Hollywood í Húnavatnssýslu. En Gljáskógar? I landgræðslumálum vilja þing- menn snúa undanhaldi í sókn, græða land og nytjaskóga og um leið útrýma illgresi og slæmum staðar- heitum. Vonandi allt samþykkt með samhljóða sextíu atkvæðum. Eftir nýboðaða tollalækkun á heimilistækjum, bárust þær fréttir frá stjórnarherrum líka í gærkvöldi að nú skuli rafmagnið og heita vatnið hækkað, og dýrara verður að fara með strætó en í fyrradag. Samgöngu- ráðherra heldur samt í gamla braginn og segir. . . allir með stætó — enginn með Steindóri. Utópía, tónverk Áke Hermanson um framtíðarlandið, náði ekki tökum á sál minni sem líklega er of önnum kafin við nútíðarbasl. En uppgjör ungu hjónanna Önnu og Þorleifs við fortíðina í nýja leikritinu Flóttafólk eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur kom við sálartetrið. Leikritið fannst mér lipurlega samið og persónurnar raun- verulegar. Og rétt er það hjá Olgu Guðrúnu að við eigum að hafa vett- linga, þegar þannig viðrar. — Stundum finnst mér myrkrið vera komið inní mig, sagði ungi rit- höfundurinn Þorleifur í leikritinu og gat ekki komið staf á blað. En ljóð- skáldið Jóhann Gunnar Sigurðsson orti — ég elskaði lifið og ljósið og ylinn —. Þetta orti Jóhann Gunnar í skugga dauðans en hann dó ungur úr berklum. Dagskráin um skáldið í samantekt Gunnars Stefánssonar var góð og vildi ég óska að hún hefði náð til eyrna Þorleifi flóttamanni. Án ábyrgðar — smellinn þáttur í umsjá þeirra Auðar Haralds og Valdísar Óskarsdóttur um andvöku- nætur. Síðasta ráðið við andvökum sem Auður gaf hlustendum var að telja upp að hundrað í rómverskum tölum. Ég var komin upp í áttatíu og níu, en kvöldstundin með Sveini hjálpaði líka til. Mikið er annars þægilegra að þurfa ekki að þjóna tveimur herrum á fimmtudagskvöldum, bæði útvarpi og sjónvarpi. Dagskrá útvarpsins stóð líka alveg fyrir sínu í gærkvöldi. Þórunn Gestsdóttir. Fundir Samtök gegn astma og of- næmi Fundur verður haldinn að Norðurbrún l (gengið inn aö norðanverðu) laugardaginn 6. febrúar nk. kl. 14.00. Á dagskrá er: 1. Umræðubátlur um Þjálfunarmeðferð astma og ofnæmisveikra barna. — Stofnun foreldraráðs? 2. Danssýning barna, börn úr Nýja dansskólanum sýna. 3. Kaffi. 4. Bingó. Allir velkomnir. Kvenréttindafélag íslands heldur féla.t'sfund mánudaginn 8. febr- úar, kl. 20.30 aó Hallveigarstöðum. Á fundinum verður rætt um endurskoðun jafnréltislaganna og hugsanlegar breylingar á Þeim. Félagsmenn eru ein- dregið hvattir til að koma og taka þált í umfjöllun félagsins um þeita mikilvæga mál. Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna Hádegisverðarfundur verður haldinn laugardag 6. febrúar kl. 12.00 í veitingahúsinu Torfunni. Umræðuefni verður nýju barnalögin. Ólöf Péturs- dóttir fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu flytur erindi. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Ferðalög Útivistarferðir 1. Tindafjallaferð á fullu tungli, föstudag 5. febr. kl. 20.00. Farið frá BSÍ að vestanverðu. Gist í húsum. Vcrð 350 kr. Þeir sem vilja hafa skíði með, þvi skíðasnjór er nægur i Tindfjöllum. Gengið verður á jökulinn ef færð og veður leyfa. Pantið strax því örfá pláss eru ennþá til ráðstöfunar. Farseðlar á skrifstofu- Útivist- ar í Lækjargötu 6. 2. Sunnudagur 7. febr. kl. 10.00. Skoðunarferð í Fljótshlíð. Fariö frá BSÍ aö vest- anverðu. Farseðlar í bílnum. 3. Sunnudagur 7. febr. kl. 10.00. Göngu- og skíðaferð á Hellishciði með Þorleifi Guðmundssyni. Farið verður að heita læknum í Innstadal þar sem göngufólkið getur fengið sér heil- næmt bað. í Útivistarferðir eru allir velkomnir. Sjáumst. Aðalfundir Aðalfundur safnaðarfélags Ásprestakalls Verður haldinn að Norðurbrún 1 sunnudag- inn 7. febrúar að lokinni messu. Félagar i JC—Vik kynna fyrirhugað ræðunámskeiö. Kaffiveitingar. Stjórnin. Kvenfélag Breiðholts heldur aöalfund sinn í Breiðholtsskóla mánudaginn 8. febrúar nk. kl. 20.30 stundvíslegá. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Konur frá JC-Vík kynna námskeið í ræðumennsku. KafFiveitingar. Félags- konur, nú mætum viö allar. Tilkynningar Þorrablót FBS-R verður haldið i Fóstbræðraheiinilinu laugardaginn 6. febrúar og hefst klukkan 19. Miðar eru seldir hjá eftirtöldum: Húsgagnaverzlun Guðmundar, Smiðjuvegi 2, simi 45100. Einari Gunnarssyni, Hléskógum 12, simi 74403, og Gústaf Óskarsson, Vesturbergi 100, sími 71416. Víkingar! Næstkomandi laugardag , 6 . febrúar, kl. 19 ætla Víkingar að koma saman i félagsheimilinu v/Hæðar garö og blóta þorra að góðum og gömlum sið. Flóamarkaður Félags ein- stæðra foreldra Flóamarkaður í undirbúningi. Óskum eftir öllum mögulegum gömlum munum sem fólk þarf að losa sig við. Gömul cldhúsáhöld og slikt vel þegiö. Sækjum heim, sími 11822. Meistaramót íslands 15—18 ára verður haldið 13. og 14. febrúar. Mótiö hcfst i Baldurshaga þann 13. kl. 14 og verður síðan framhaldið í íþróttahúsinu í Keflavík þann. 14. febrúar og hefst kl. 14. Þátttökutiikynningar berist skrifstofu FRÍ i síðasta Iagi fimmtudaginn. II. febrúar. Seðlaveski tapaðist DV-drengur var að innheimta áskriftargjöld fyrir Dagblaðið og Vísi. Hann tapaði seðlaveskinu á þriðjud. við Mjólkursamsöluna Laugavegi, milli klukkan 16 og 18. Seðlaveskið er svart, framan á þvi er Útvegsbankamerki og í veskinu voru 1.500.- krón- ur, þar af 100 króna ávísun merkt Dagblaðinu og Vísi. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja á af- greiðslu DV — Síðumúla 12—14, símar 86611 og 27022. Ert þú einmana? leitandi að 'iífshamingju? Biðjum fyrir fólki til frels- unar og lækningar. Hverfisgata 43 Reykjavík opiö frá kl. 18—22 símaþjónusta 21111. Húnvetningafélagið í Reykja- vík Húnvetningamót að Hótel Esju hefst kl. 19.00 laug- ardaginn 6. febrúar. Aðgöngumiðar verða seldir föstudaginn 5. febrúar frá kl. 20—22. Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið Fræðslu og leiðbeiningastöð SÁÁ., í Síðumúla 3—5, Reykjavik. Viðtalstímar leiðbeinenda alla virka daga frákl. 9—17. Sími 82399. Fræðslu- og leiðbeiningastöð Síðumúla 3—5, Reykjavík. Upplýsingar veittar í síma 82399. Kvöldsímaþjónusta SÁÁ alla daga ársins frá kl. 17—23 í síma 81515. Athugið nýtt hcimilisfang, SÍÐUMÚLl 3—5, Reykjavík. Getum við orðið þér að liði? Er ofdrykkja í fjölskyldunni, í vinahópnum eða meðal vinnufélaga? Ef svo er — mundu aö þ að er hlutverk okkar að hjálpa þér til að hjálpa öðrum. Hringdu í fræðslu- og leiðbeiningastööina og leitaðu álits cða pantaðu viðtalstima. Hafðu þaö hugfast að alkóhólistinn sjálfur er sá sem minnst veit um raunverulegt ástand sitt. Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið. Árshátíðir Kvæðamannafélagið Iðunn heldur árshátíð sína í Lindarbæ föstudaginn 5. febrúar kl. 19.00. Miðapantanir þurfa að berast í síðasta lagi á miðvikudagskvöld. Upplýsingar í símum 84649 og 11953. 80 ára afmæli á í dag, 5. febrúar, Ásmundur Vilhjálmsson múrarameist- ari, Efstalandi 22 hér í Rvik. Kona hans er Guðbjörg Þorbjarnardóttir,— Hann -er að heiman. Afmælí 70 ára afmæli á í dag, 5. febrúar, Gísli Jónsson pípulagningameistari, Álfa- skeiði 113 Hafnarfirði. — Hann er að heiman í dag. 60 árá ér 1 dag, 5.~febrtiar, Jón“Ai Valdimarsson, vélvirkjameistari og kennari við Fjölbrautaskóla Suður- nesja. — Hann er að heiman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.