Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Síða 29
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. 37 ISviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið GALLERÍ 32 GALLERÍ 32 Sumir urðu að láta sór lynda að standa... Galdurinn felst í því að ég inn- ramma listaverkin sjálfur og þau eru síðan hengd hér upp á veggjum til sýnis og sala þeirra hefur gengið mjög.vel, allt frá því ég opnaði stað- inn fyrir um 4 mánuðum. Það er Björn Hermannsson sem hefur orðið, en hann rekur lítið gallerí að Hverfisgötu 32. „Galleríið liggur ákaflega mið- svæðis og fólk lítur hingað jafnan inn á rölti sínu um bæinn, fær sér kaffi- bolla og spáir í verkin.” Kunna listamenn vel að meta þá þjónustu sem þú veitir þeim með því að innramma verk þeirra hér á staðn- um? „Já, þeir gera það óneitanlega. Það léttir mjög mikið undir með þeim að hafa innrömmun og sýning- arsal á einum og sama staðnum. Þessu gallerii svipar nokkuð til litlu galleríanna i Evrópu. Listamaðurinn málar í ró og næði heima hjá sér og þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af römmum eða sýningarplássi. Hann bara röltir inn í eitthvert galleríið og spyr hvort hann geti ekki haldið sýningu þar bráðlega. Það er væntan- lega sjálfsagt og daginn eftir kemur hann með verkin sem síðan verða fullfrágengin fyrir hann innan fárra daga — og sýningin er opnuð. Þetta er sem sagt mjög þægilegt og hentugt fyrir Hstamanninn.” Og það er að sjálfsögðu ókeypis inn á sýningarnar? „Já, já, náttúrlega. Það er öllum frjálst að líta hingað inn og lita á verkin, burtséð frá því hvort þeir kaupa eitthvað eða ekki. Én það er rétt að benda á að lokum að hver sýning stendur í tvær vikur, þannig að fólk má alltaf vænta nýrra sýninga á hálfsmánaðar fresti.” —SER. Guðrún Hilmisdóttir og Eygló Stefónsdóttir skráóu stofnfólaga I griö og erg en hór erþó stundarfriður. Bförn Hermannsson með einn rammann sem væntanlega verður tH sýnis ásamt innihaldi sinu á komandi sýningu. Auk þess má s/'á Galleríið eins og það snýr að Hverfis- afinú götunni. OV-mynd Bjarnleifur. Þeir voru þétt setnir salirnir á Hótel Borg á sunnudaginn var þegar formlega voru stofnuð Samtök um kvennaframboðið í Reykjavik. Á annað hundrað'manns gerðust stofn- félagar en fundinn sóttu yfir fjögur hundruð karlar og konur. Nokkrir karlar urðu stofnfélagar enda kveður svo á i lögum samtakanna að þau séu öllum opin, sem styðja markmið þeirra”, sem eru m.a. að „berjast fyrir heimi, þar sem konur, karlar og börn standa jafnt að vigi, þar sem menning beggja kynja fær að njóta sín og kynferði hindrar engan í að sinna þeim störfum sem hugur stefnir til.” Ljósmyndari DV Einar Ólason tók meðfylgjandi myndir stofndaginn á Borginni. Undirbúningsnefnd stofnfundarins og ræðumenn: Sigrún Sigurðardóttir, Sigurbjörg Aðaisteinsdóttir, Erna Amgrímsdóttir, Helga Thorbarg, Hjör- dís Hjartardóttir, Sólrún Gísladóttir, Kristin Jónsdóttir og Þórhildur Þor- Mfsdóttir. ■ en aðrir voru svo heppnir að fá sæti. soFNrt w ■ Körfuknattleiksmenn þakka fyrir sig Undanfarin tvö ár hefur Samband íslenzkra -samvinnufélaga veitt Körfuknattleikssambandi íslands mjög ntyndarlegan styrk sem KKÍ hefur notað til að byggja upp lands- liðs íslands í körfuknattleik. Körfu- knattleiksmenn þökkuðu SÍS sam- starfið og stuðninginn nú fyrir stuttu með því að afhenda SÍS myndarlega gjöf sem Erlendur Einarsson for- stjóri Sambandsins tók á móti. Erlendur sést hér á myndinni fyrir ofan taka á móti gjöfinni sem Steinn Sveinsson, formaður landsliðs- nefndar KKÍ, afhenti fyrir hönd KKÍ. Aðrir á myndinni eru: Gunnsteinn Karlsson, auglýsingastjóri Sambands- ins, Örn Andrésson, framkvæmda- stjóri KKI, Kristbjörn Albertsson, formaður KKÍ, Einar Bollason, landsliðsþjálfari í körfuknattleik, og Kristinn Stefánsson, landsliðs- nefndarmaður. - DV mynd SVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.