Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Side 32
Vinnustöðvun á Klepps-
spítala á fimmtudaginn
—verði ekkigengið að kröfum fólksins
„Ef ekki verður gengið að kröfum
okkar leggjum við niður vinnu næst-
komandi Hmmtudag og förum úr
spítalanum,” sagði Björgvin Hólm
Jóhannesson, gæzlumaður á Klepps-
spítala, er DV ræddi við hann um.
fyrirhugaða vinnustöðvun starfsfólks
á staðnum.
Megn óánægja hefur verið uppi að
undanförnu meðal ófaglærðs starfs-
fólks á spítalanum. Stafar hún af þvi
að karlmenn hafa verið ráðnir á
launataxta BSRB en konur á Sóknar-
taxta, þrátt fyrir nákvæmlega sömu
störf. í vor sem leið fór starfsfólkið
fram á að þessu yrði breytt þannig að
allir fengju sama starfsheiti, sömu
laun og yrðu í einu stéttarfélagi.
Svavari Gestssyni félagsmálaráð-
herra var sent erindi þessa efnis.
Sagði Björgvin að ráðherra hefði haft
góð orð um lausn málsins. Síðan
hefði brugðið svo við að bréf hefði
borizt frá ráðuneytinu, þar sem til-
kynnt hefði verið að frá og með 1.
október sl. yrði eingöngu ráðið í
Sóknarstörf á spítalanum.
,,Þessu getum við alls ekki unað,”
sagði Björgvin. „Því fórum við af
stað með undirskriftarlista. Þar eru
fyrri kröfur ítrekaðar, auk þess sem
við förum fram á að fá starfsheitið
„meðferðarfulltrú”. Um 100 starfs-
menn af 130 skrifuðu undir þessar
kröfur sem afhentar verða viðkom-
andi ráðuneytum og launadeild 1 dag.
Verði ekki gengið að þeim, hættum
við að vinna nk. fimmtudag”.
Björgvin kvaðst loks vilja benda á
þann mikla launamismun, sem nú
væri meðal ófaglærðs starfsfólks á
Kleppsspitala. Umrædd störf byggð-
ust upp á aukavöktum. Fyrir átta
tíma á slíkri vakt fengi Sóknarkonan
um 200 krónum minna en karlmaður
sem væri í BSRB.
,,Og nú er þetta kórónað með því
að setja þá sem hefja störf á
byrjunarlaun hjá Sókn,” sagði
Björgvin.
-JSS.
Miklar rigningar ásamt
hlýindum valda flóðum
Mikið vatnsveður hefur gengið yfir
Suður- og Vesturland sl. sólarhring.
Hlýindi hafa fylgt rigningunum, í
Reykjavík komst hitinn t.d. í 8,5 stig og
hefur snjó því að mestu tekið upp í
byggð.
Vatnavextir hafa valdið erfiðleikum,
vegir hafa lokazt og hús hafa orðið
umflotin vatni. Ástand mála var í
morgun lítt kannað en þó var talið að
mestu vegaskemmdirnar hefðu orðið í
Ólafsvíkurenni á Snæfellsnesi. Þar
höfðu miklar aurskriður lokað vegin-
um og var óvist talið hvort dagurinn
nægði til að opna hann aftur.
Mesta úrkoman mældist á Kefla-
víkurflugvelli sl. sólarhring, 34 milli-
metrar. Á Gufuskálum var úrkoman 26
millimetrar, á Stórhöfða 22 millimetrar
en i Reykjavíl mældist hún 15 milli-
metrar.
Smáskemmdir hafa víða orðið á veg-
um, skörð myndazt og flætt yfir. Vega-
gerðin hafði haft spurnir af því að
EHiðavatnsvegur væri lok'aður svo og
Grafningsvegur. Hvítá í Borgarfirði og
Ölfusá höfðu báðar hagað sér skikkan-
lega og var ekki vitað um tjón í
kringum þær.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
fengu margir hverjir nógu að sinna
vegna vatnselgsins. Allrar þrjár leið-j
irnar að Gvendarbrunnum voru ófærar1
í morgun. Voru vatnsveitumenn að
reyna að komast þangað en gekk erfið-
lega.
Elliðaárnar uxu heldur betur og urðu
að stórfljóti. Vegna þess neyddust1
vatnsveitumenn til að hætta vinnu við
vatnsæð í Víðidalnum um þrjúleytið í!
gær. Þá lokaðist vegurinn sem liggur!
meðfram Elliðaánum undir eystri;
brúna fyrir neðan Ártúnsbrekku.
-KMU.I
EUidaárnar uröu að stórf/jóti í vatnavöxtunum og fíæddu
víða yfir bakka sina. Menn áttu þar, eins og víða annars
staðar, í hinum mestu vandræðum og fafnvel öfíugustu
bílar vi/du ekki lengra. £> V-mynd S.
Nýttfíkniefna-
mál í rannsókn
Fíkniefnadeild lögreglunnar
komst i enn eitt málið um síðustu
helgi. Komst við rannsókn á öðru
máli sem fíkniefnadeildin var með.
Þarna er um að ræða innflutning
og sölu á fíkniefnum. Ekki eru allir
endar komnir í Ijós á því svo ekki er
vitað með vissu hversu stórt mál
þetta er.
Margir hafa verið yfirheyrðir í
sambandi við það og þrír hafa verið
úrskurðaðir í gæzluvarðhald síðan
um helgi vegna rannsóknarinnar.
-klp-
)
i
I
Umdæmi Reykjavíkurlögreglu stækkað
— nái yf ir Selt jarnames, Mosfellssveit, Kjalarnes og Kjós
„Þetta mál hefur verið undirbúið hér
í ráðuneytinu, en það þarf lagabreyt-
ingu til að þafrtaki gildi,” sagði Ólafur
W. Stefánsson i dómsmálaráðuneytinu
er DV bar undir hann fyrirhugaðar
breytingar á verkaskiptingu við lög-
gæzlu í nágrenni Reykjavikur.
Gerð hefur verið tillaga um að Iög-
gæzla og lögreglustjórn ( þremur'
hreppum í nágrenni Reykjavíkur:
Kjalarnes-, Kjósar-, Mosfellshreppum
og á Seltjarnarnesi heyri undir Iögregl-
una í Reykjavík. Sagði Ólafur að þess-
ar hugmyndir hefðu lengi verið uppi
og hafi þá verið miðað við að Kópa-
vogur teldist þar einnig með en honum
hefði verið sleppt út að þessu sinni
aðallega vegna þess að slíkt'heföi mætt
mikilli andstöðu bæjaryfirvalda. Þessi
fyrirhugaða breyting væri hins vegar
áhugaefni heimamanna á hinum
stöðunum. Þar hefði málið þó ekki
verið lagt formlega fyrir sveitarstjórn-
irnar og þær þvi ekki gefið endanlegt
svar en þeim hefði fyrir löngu verið
kynnt málið.
Þetta er að miklu leyti gert vegna
fjárhagslegrar hagkvæmni og til þæg-
inda fyrir ibúa þessara hreppa, sagði
Ólafur. Það er ekki þægilegt fyrir þá að
þurfa að sækja allt sem lýtur að lög-
gæzlu suður I Hafnarfjörð og þá ekki
síður erfiðleikum bundið fyrir lögreg
una i Hafnarfirði að veita hreppunui
austan Reykjavíkur þá þjónustu sei
með þarf.
Ólafur W. Stefánsson sagði a
lokum að það væri í höndum ráðheri
og rikisstjórnar að ákveða framhal
málsins, — hvort og þá hvenær það
yrði lagt fram sem rikisstjórnarfrum-
varp.
ÓEF
frjálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 5. FEBR. 1982.
Borgarráð:
Albert og Davíð
fluttu tillögu
saman
Albert og Davíð fluttu saman tillögu
í borgarráði á þriðjudaginn. Var Albert
fyrsti flutningsmaður. Afgreiðslu til-
lögunnar var frestað. í viðtali sagði
Albert að tillagan væri hugsuð sem
stuðningur við mikilvægan íslenzkan
iðnað í höfuðborginni. Hún hljóðar
svo:
„Borgarráð samþykkir að fela Inn-
kaupastofnun borgarinnar að gera til-
lögu um innkaup á næstu 20 undir-
vögnum strætisvagna og jafnframt
verði samið við Nýju blikksmiðjuna
um smíði á yfirbyggingu þessara vagna.
Miðist endurnýjun á vagnakosti SVR
við, að allir nýir strætisvagnar verði
yfirbyggðir hérlendis, enda fari kostn-
aður ekki óhóflega fram úr tilboðum
erlendra lægstbjóðenda, verði verkið
boðiðút.”
Harður árekst-
uráAkranesi
Harður árekstur varð á Garðabraut á
Akranesi um kl. 16.35 í gærdag. Þar
skullu saman fólksbíll og skellinaðra.
Áreksturinn varð með þeim hætti að
ökumaður fólksbílsins beygði inn í inn-
keyrslu og í veg fyrir mótorhjólið sem
ók eftir Garðabraut. Ökumaður
hjólsins slasaðist nokkuð, m.a. var
hann brotinn á báðum fótum. -ELA.
Dreifingarklúbbur DV
ogVikunnar:
Matarveizlan
verðurf dag
Mikil matarveizla verður fyrir Dreif-
ingarklúbb DV og Vikunnar frá kl.
16—18 í dag. Þá er öllum sölu- og
blaðburðarbörnum boðið á Tomma-
borgara á Lækjartorgi. Þar fá börnin
hamborgara, franskar og gosdrykki.
LOKI
ötulum skíðamönnum má
benda á að nú er tækifæri til
þess að draga fram vatna-
skíðin.
W
hressir betur.