Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 15
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982.
15
469.774 kr. Ofan á þetta verð bætist
14,57% söluskattur.
Að sögn Þorsteins má ætla að þetta
verð sé um 50—55% af
heildarbyggingarkostnaðinum, þvi
eftir er að steypa grunn undir húsið,
reisa það og innrétta, jafnframt því að
leggja hita og rafmagnslagnir. Má því
reikna með að svona hús kosti tilbúið
til íbúðar um eina milljón króna.
Timburhús vinna á
— En eru timburhús sambærileg við
járnbenta steinsteypu?
„Já, það tel ég hiklaust,” svaraði
Þorsteinn, „timburhúsin eru ekki
síðri. Nú til dags eru timburhús byggð
úr betri viðum heldur en almennt
þekktist áður. Auk þess eru komin á
markaðinn betri efni til að verja viðinn
gegn fúa. Sé þess gætt að bera regluleaa
Hir er ívar Geirsson eð frsesa fyrir
rafmagnsdós.
fúavarnarefni á viðinn, þá standast
timburhúsin fyllilega samanburð við
steininn, og vel það.”
— En hvað um verðsamanburð við
steinhús?
Þessari spurningu svaraði Sigurður:,
„Timburhúsin eru ódýrari en steinhús.
Hérlendis var til skamms tima ekki
byggt úr öðru en járnbentri steinsteypu
og við það byggingarefni er „visitölu-
húsið” miðað. Verð á okkar húsum
hefur verið borið saman við „.vísitölu-
húsið”. Það var verkfræðiþjónusta
Guðmundar Óskarssonar, sem gerði
þennan verðsamanburð. Niðurstaðan
sýndi að okkar hús eru 23% ódýrari en
vísitöluhúsið”.
Veðráttan hefur
ekki áhrif
— En hvers vegna eru timburhús
ódýrari?
„Það er rnargt semkemurtil en fyrst
og fremst má þakka það hagræðing-
unni sem fæst með verksmiðjufram-
leiðslu,” svaraði Þorsteinn. „Við
höfum reynt að hafa sem nýtízkuleg-
astan vélakost og íslenzk veðrátta tefur
okkur ekki né rýrir gæði framleiðsl-
unnar. Auk þess náum við betri efnis-
nýtingu og efnisinnkaup eru hagkvæm-
ari þegar gerðar eru stórar pantanir.”
— Hvað með iðnaðarmenn, þarf
færri slíka við verksmiðjuframleiðslu
húsa heldur en ef húsið væri byggt á
staðnum1
,,Já, af um 30 starfsmönnum sem
vinna við framleiðsluna eru ekki nema
8 iðnaðarmenn sem sjá um flokksstjórn
og tilsögn. Þetta lækkar að sjálfsögðu
byggingarkostnaðinn”, svaraði
SÍKurður, og hann hefur orðið áfram.
„Undanfarin tvö ár hefur verið unnið
eftir bónuskerfi, sem miðast við
heildarframleiðsluna. Þegar þetta kerfi
var tekið upp jukust afköstin um 35%
og laun starfsmannanna hækkuðu í
sama hlutfalli. Nú er í bígerð að taka
upp nýtt afkastahvetjandi kerfi, þar
sem hverjum einstaklingi og starfs-
hópum gefst kostur á að auka tekjur
sínar með auknum afköstum.”
— Hvaða kosti hafa einingahús
umfram það sem þegar hefur verið
talið?
„Við minntumst áðan á veðráttuna,
sem oft hefur gert húsbyggjendum
gramt í geði,” svaraði Þorsteinn og
hann heldur áfram: „Sá háttur hefur
tíðkazt hérlendis að húsbyggjendur
leggi nótt við dag til að drífa húsin
upp fyrir sumarið. Þessi pressa þekkist
Kotbrún Ounnarsdóttír vU borvéi-
ina.
Hir er HarakJur Bfarnason aó slá saman einingu.
ekki þegar einingahús eiga í hlut enda
eru þau sérstaklega vinsæl meðal
bænda og sjómanna sem segjast ekki
hafa tíma til að standa yfir iðnaðar-
mönnunum. Það þarf ekki að taka 2—
3 iðnaðarmenn nema 3 daga að reisa
einingahús á einni hæð og svipaðan
tíma aðkomamilliveggjumfyrir. Mér er
það minnisstætt þegar við reistum hús
við Neðstaberg 22 í Reykjavík, sem er
hæð og ris. Við byrjuðum að morgni
og sögðum frúnni að hafa allt tilbúið
fyrir reisugillið um kvöldið. Hún vildi
ekki trúa okkur, margspurði hvort við
yrðum virkilega búnir að reisa húsið og
koma þakspterrunum fyrir um kvöldið.
Við héldum það nú, og það stóð,”
sagði Þorsteinn.
Söluskattur til
vandrœða
Til að byrja með þurftu Húseiningar
að innheimta fullan söluskatt af verk-
smiðjuframleiðslunni. Þessu hefur
verið kippt i liðinn, þannig að
greiddur 14.5% söluskattur, sem er
samsvarandi því sem sá húsbyggjandi
greiðir, sem byggir á hefðbundinn hátt.
Það gat er þó í reglugerðinni, að fullan
söluskatt þarf að innheimta af eining-
um til húsa sem ætluð eru til annars en
íbúðar. Til að mynda þarf að greiða
fullan söluskatt ef nota á húsið fyrir
barnaheimili. Nokkur slík hafa verið
byggð úr einingum frá Siglufirði.
Einnig sumarbústaðir og bílskúrar og
timbureiningar voru notaðar viö bygg-
ingu safnaðarheimilis á Norðfirði þar
sem steinsteypa vár notuð samhliða.
Gaf þaðgóða raun.
— Að lokum voru þeir félagar
spurðir um framtíðarhorfur. Það er
Þorsteinn sem svarar.
„Allt frá því að steinsteypan kom til
sögunnar, fram um 1973 var hún alls-
ráðandi sem byggingarefni á íslandi.
Annars staðar á Norðurlöndunum er
þessu öðru vísi varið en þar eru 70% af
íbúðarhúsum byggð úr timbri. Siðan
1973 hefur timbrið verið að hasla sér
völl hér á landi og vonandi heldur sú
þróun áfram. Nú er svo komið, að 30%
af nýjum íbúðarhúsum hérlendis eru
byggð úr timbri. Ég hef trú á að það
hlutfall haldi áfram að hækka, timbr-
inu í hag.
Við getum aukið framleiðsluna án
þess að stækka verksmiðjuna. Það eru
ýmsir flöskuhálsar i framleiðslurásinni
sem við höfum verið að ráðast á einn af
öðrum, samhliða ýmiss konar hagræð-
ingu við framleiðsluna. Þetta eykur af-
köstin, en dugi það ekki til að anna
eftirspurn, þá getum við tekið upp
vaktavinnu. Við hörfum því bjartsýnir
til framtíðarinnar,” sagði Þorsteinn i
lok samtalsins.
GS Akurevri
DV-myndir GS/Akureyri.