Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982.
15
„Maður verður að vinna”
—Veturliði Stefánsson, tíu ára blaðsölu
strákur með meiru tekinn tali
„• • • en það var þetta með hungursneyðina í heiminum. Það lizt mér ekk-
ert á.”
„Tízkan er nú stundum asnaleg, eins og til dæmis þessir leðurjakkar, sem
allir eru f núna.” (DV-mynd. Bjarnleifur)
Hann heitir Veturliði Stefánsson, tíu
ára strákur, hressilegur í útliti, þar sem
hann stendur á miðju Lækjartorgi.
Þetta er blaðsölustrákur með meiru.
Við vindum okkur að honum.
— Er eitthvað að frétta?
„Nei, það er ósköp lítið, nema þessi
hungursneyð í heiminum. Mér lízt
ekkert á þetta.”
— Stefnir þessu í voða?
„Það sýnist mér. Allavega er ég
hræddur um það.”
— Fylgistu mikið nteð fréttum?
' ,, Já, ekki get ég neitað þvi enda er ég
í þessum bransa. Eins og þú sérð er ég
að selja blöð.”
„Mamma segir aö ég só
allur í slúðurfréttunum"
— Hvað lestu helzt i blöðunum?
„Ja, ég les fyrirsagnir á forsíðunni
og baksíðunni og stundum erlendar
fréttir. Égsá til dæmis í gær að þá hafði
einhver ntaður verið að játa á sig morð,
ég skil nú ekkert í því. Og svo er það
hungursneyðin í heiminum. Fólk fær
víða ekkert að éta á meðan við belgjum
okkur út af alls konar hantborgurum
og nammi. Svo les ég alltaf Sviðsljósið í
Dagblaðinu ogVísi enda segir mamma
að égséallur í slúðurfréttununt.”
— Hlustarðu á fréttir í útvarpi og
sjónvarpi?
„Ekki nenta slysafréttir, að minnsta
kosti tekur maður langmest eftir
þeint.”
— Lestu mikið?
„Já, ekki get ég neitað því. Ég les
aðailega Andrés önd og Júmbó-
bækurnar.”
— En skólabækurnar?
„Já, en maður er nú svo fljótur að
því.”
— Hver er uppáhaldsbókin þin?
„Látum okkur sjá, ætli það sé ekkj
bara Greifinn af Monte Christo. ’ ’
„Reyni að fylgjast með
tízkunni"
— Færðu vasapeninga?
„Nei, ég læt mér nægja peningana,
sem ég fæ fyrir blaðsöluna.”
— Hvaðer það mikið?
„Látum okkur sjá, ætli það séu ekki
um þúsund krónur á ntánuði.”
— Hvað gerirðu við þá peninga?
„Ja, ég veit það ekki, og þó, maður
reynir að fylgjast nteð. Annars finnst
mér til dæmis þessir leðurjakkar og
svoleiðis drasl, sem margir eru í, hálf-
asnalegt.”
— Mannstu eftir gjaldmiðilsbreyt-
ingunni?
„Já, auðvitað man ég eftir henni. Þá
hækkuðu allir hlutir svo rosalega. Til
dæmis hækkuðu Andrésblöð um næst-
um helming.”
— Ferðu oft í bíó?
„Já, yfirleitt á sunnudögum.”
— En í leikhús?
„Nei, sjaldan. Siðast þegar ég fór sá
ég Oliver Twist og þótti leikritið rosa-
lega skemmtilegt.”
— Finnst þér ekkert of ntikið að vera
bæði í skóla og vinna með?
„Nei, ntér finnst alveg nauðsynlegt
að vinna, ntaður er svo fljótur að læra
fyrir skólann, að þá tæki ekkert annað
við en að slæpast, ef ekki væri vinnan.
Svo finnst mér anzi gott að hafa smá-
vasapeninga.”
„Einn heitir Svavar Gests,
annar Geir eitthvað...
— Veiztu hvað alþingismennirnir eru
margir?
„Nei, en þeir eru margir, örugglega,
30 eða 40, eða kannski ennþá fieiri, ég
bara man það ekki.”
— Veiztu hvað ráðherrarnir okkar
heita?
„Nei, mér er nú alveg sama um þá.
Ég hugsa aldrei til þeirra. Samt veit ég
að einn heitir Svavar Gests og annar
Geir eitthvað og annar Albert eða eitt-
hvað svoleiðis.”
— En forsetinn?
„Já, þaðer hún Vigdís.”
— Veiztu hvað verðbólga er?
„Látum okkur sjá, sko, ef einhver
ntaður á ekki peninga, fær hann þá lán-
aða, svo þarf hann að vinna ofsalega
ntikið til að reyna að borga lánið, sem
„Mamma segir að ég lesi bara slúðurfrétlirnar.”
er orðið miklu hærra en þegar liann tók
það. Og þá hefur hann enga peninga til
að eyða.”
— Bæjarstjórnarkosningar veiztu
hvað það er?
„Já, þegar verið er að kjósa nýjan
bæjarstjóra i bæjunum úti á landi.”
— Veiztu hver Jón Sigurðsson var?
„Látum okkur sjá, ætli það hafi
ekki verið einn af okkar beztu rithöf-
undum.”
„Að hungrið vœri ekki
svona mikið í heiminum"
— Hefurðu farið til útlanda?
„Nei, aldrei.”
— Langar þig?
„Ekkert scrstaklega, nema kannski
til ' neríku. Ég seld þaðséágætt þar.”
El þú ættir eina ósk, hvers mund-
irou óska þér?
„Að ég fengi tvær óskir.”
— Og hverjar væri þær?
„Að engin hunguisneyð væri til í
heiminum og allir fengju eitthvað gott
að éta.”
Að svo mæltu kvöddum við
Veturliða, enda okkur ekki stætt á því
að tefja hann lengur.
-KÞ
Alltá
verðandi
mæður.
Opið virka
daga kl. 12-18,
laugardaga kl. 10-
12.
Póstsendum.
DRAUMURINN
KIRKJUHVOLI.
SÍMI
22873.