Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1982. SPRON efnir til samkeppni: „Viljum hvetja til fallegrar hönnunar” „Við viljum með þessu minnast frumkvæðis þeirra sem stofnuðu Spari- sjóð Reykjavíkur og nágrennis en þeir höfðu flestir iðnað að aðalatvinnu,” sögðu forráðamenn SPRON á fundi nýverið þar sem kynnt var samkeppni um iðnhönnun sem efnt er til nú á 50 ára afmæli stofnunarinnar. Samkeppni þessi nær til allra iðnaðarvara. Skilyrði eru að um nýjung i framleiðslu sé að ræða, að varan sé framleiðsluhæf og framleidd á starfs- svæði SPRON og að hún uppfylli kröfur um fagurfræðilegt útlit og nota- Framhaldsaðalfundur Sóknar sam- þykkti einróma á þriðjudaginn að veita stjórn félagsins heimild til verkfalls- boðunar til þess að ýta á eftir að nýir kjarasamningar verði gerðir. Á framhaldsaðalfundinum var Fullsterkt var til orða tekið i frétt í blaðinu í gær þar sem ummæli voru höfð eftir Baldvin Tryggvasyni spari- sjóðsstjóra varðandi aukna bindi- skyldu í Seðlabanka. Baldvin hefur óskað eftir að taka fram að hann hafi gildi. Um þetta mun sérstök dómnefnd fjalla, skipuð þeim Hjalta Geir Kristjánssyni og Þráni Þorvaldssyni og dönskum hönnuði, Jakob Jensen, en sá er meðal annars þekktur fyrir hönnun sína hjá Bang og Olufsen. Þrenn verðlaun verða veitt: 50 þús- und krónur, 25 þúsund krónur og 10 þúsund krónur og ennfremur mun Sparisjóðurinn gefa verðlaunahöfum kost á fjárhagslegri aðstoð, svo framar- lega sem náðst hafi samvinna við ein- hvern framleiðanda um framleiðsluna. „Við erum sannfærðir um að góð einnig samþykkt áskorun til mið- stjórnar Alþýðusambands íslands um að beita sér fyrir gagngerri könnun á þróun verðlags hér á landi frá því að myntbreytingin tók gildi um áramótin 1980-81. -JH ekki fullyrt að allt fjármagn, sem þannig færi inn í Seðlabanka, færi síðan bakdyramegin i ýmsa fjársvelta sjóði. „Mig grunar hins vegar að ein- hver hluti fari þarna út bakdyrameg- in,” sagði Baldvin. hönnun, og fallegt útlit skiptir fólk nú orðið meira máli en áður og vonum að þetta framlag okkar verði hvatning til slíkrar þróunar á íslenzkum iðnvarn- ingi,” sagði Baldvin Tryggvason spari- sjóðsstjóri. Þeim sem áhuga hafa gefst frestur til 15. október að skila hugmyndum sínum, í formi teikninga eða módels, en allar nánari upplýsingar eru að sjálf- sögðu veittar i SPRON. -JB Helga Barðason Leikklúbburinn Saga á Akureyri frumsýnir nk. laugardagskvöld, kl. 20.30, 1 félagsmiðstöðinni Dynheimum nýtt íslenzkt leikrit, ,,Önnu Lísuv, sem er öðrum þræði gamanleikrit. Höf- undur er Helgi Már Barðason, leik- stjóri Þröstur Guðbjartsson og söngva sömdu Jóhanna Birgisdóttir og Helgi Már. Með helztu hlutverk fara Sóley Guðmundsdóttir, Adolf Erlingsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir og Sigurður Ólason. Sýningar i Dynheim- um verða fjórar en síðan leggur klúbburinn upp í leikför um Norður- land. í ágúst er áformuð leikför til Reykjavíkur og Danmerkur. -gb. Laxness leiðréttur Forsvarsmenn Kvennaframboðsins í Reykjavík hafa óskað eftir því að eftirfarandi birtist í blaðinu: „Vegna ummæla, sem höfð eru eftir Halldóri Laxness í viðtali við Helgarbiað DV þ. 17. apríl þess efnis að „eintómar konur” megi vera í samtökunum um Kvennaframboð, viljum við koma þessu á framfæri: Það er ekki rétt tekið eftir hjá Halldóri að Samtök um kvennafram- boð séu ætluð konum eingöngu. Nokkrir karlmenn eru þar skráðir meðlimir, enda er það í fullu sam- ræmi við lög og stefnu samtakanna. Karlmeðlimir samtaka um kvenna- framboð hlíta þar raunar svipuðum kostum og konur hafa gert til þessa í öðrum stjórnmáiaflokkum. Þó aðeins konur hafi staðið að hugmyndafræði og stefnuskrá Kvennaframboðsins, er hverjum þeim, sem styður þá stefnu og sam- mælist hugmyndafræðinni, velkomið að ganga í samtökin, hvort sem sá er karl eða kona. Með þökk fyrir birt- inguna.” Sókn með verkfallsheimild Fullsterkt til orða tekið Opið í dag, /augardag, frá ki 10—16. HÚSGAGNASÝNING á morgun, sunnudag, frá kL 14—16. m z Zi 105 Nr 106 Svingbar B. 85 H. 73. D. 38 cm. B. 83. H. 75. D. 38 cm. B 85. H. 75. D08 cm. z— — i // / / - / ' / 7= / — / » 47. H. 34.5. D. 38 cm. Mr. 113. Romdetef m/gUMdar Hr. 117. Romdelcr reol B. 85. H. 75. D. 38 cm. B. 85. H. 75. D. 38 ori. B 85 H 73 D. 38 cm 16 Romdekr mðredar f'i1 u®5í Hr.lll.Bue. Mr. 114 HUmereol B. 38. H. 75. D. 38 cm. B. 38. H. fs. D. M cr z 2' z: Senator raðsamstæðan Oteljandi möguleikar Mahogany og beyki „lkW við - ÞaJsig! GÁ-húsgögn K'K borQa Skeifunni 8 • Sími 3-95-95 Hópurínn sem kynnti Ísland fyrír ferðaskrifstofustarfsfólki á Noróuriöndum: Frá hægri Skúli Þorvaldsson, Samandi veitinga- og gistihúsa, Halldór Bjarnason, Félagi isl. ferðaskrifstofa, Birgir Þorgilsson, Ferðamálaráði, Knut Berg, Flugleiðum — Stokkhólmi, og Simon Pálsson, Flugleiðum, Reykjavík. D M-mynd Einar Ólason. íslenzkir ferðaþjónustumenn á faraldsfæti: Vel heppnuð herferð um Norðurlöndin „Vigdís forseti hafði ferðazt um Norðurlönd og vakið óhemju athygli. Við sáum okkur leik á borði að fljóta á þeirri „athyglisöldu” sem heintsókn hennar vakti til að kynna ísland sem ferðamannaland,” sagði Birgir Þorgils- son markaðsstjóri hjá Ferðamálaráði, i samtali við DV. Hann og fulltrúar nokkurra annarra samtaka, sem starfa að þjónustu viðerlenda ferðamenn, eru nýkomnir heim eftir velheppnað kynningarferðalag um Svíþjóð, Finn- land og Noreg. Voru haldin íslands- kvöld í ýmsum borgum, svo sem Helsinki, Stokkhólmi Málmey, Gauta- borg og Osló, þangað sem boðið var sölufólki á ferðaskrifstofum þar ytra, svo og blaðamönnum. í Osló var enn- fremur haldin sýning fyrir almenning um ísland sem ferðamannaland. Stóð hún í fimm daga frá 16.—20. apríl, og gestir urðu um 50 þúsund. „Við fórum með eins konar Litla- ísland með okkur,” sagði Birgir. „Mikið af myndum, mat og ullar- vörum sem við brunuðum með i stórum bíl milli borga. Undirtektir voru mjög jákvæðar og a.m.k. tvö sænsk blöð hafa þegar sent hingað blaðamenn til að skoða landið með augum tilvonandi ferðalanga.” Það var sérlega ánægjulegt við þessar íslandskynningar að nú náðu ýmsir aðilar samstöðu sem ekki hefur verið fyrir hendi fyrr. Þarna unnu saman Samband veitinga- og gistihúsa, Félag íslenzkra ferðaskrifstofa, Ferða- skrifstofa ríkisins, Flugleiðir og Ferða- málaráð. Virtust þeir allir saman hæst- ánægðir, og bjartsýnir á að árangurinn komi í ljós að ári liðnu, ef ekki fyrr. „Nú langar okkur geysimikið að halda áfram með slíkar kynningar til Norður- Þýzkalands, Sviss, Beneluxlanda og seinna Frakklands og Englands,” sagði Birgir Þorgilsson. Hann mun hafa átt hugmyndina að þessari landkynningar- herferð, en undirbúningur ytra hvíldi mjög á herðum Knuts Berg, fram- kvæmdastjóra Flugleiða í Svíþjóð og Finnlandi. ' Auk þess tóku í þessu virkan þátt þeir Skúli Þorvaldsson hótelstjóri, Halldór Bjarnason, ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsen, Símon Pálsson, Flugleiðum, og Kjartan Lárusson, Ferðaskrifstofu ríkisins. Grindavíkurdeilan: Málið enn í athugun ,,Ég geri ráð fyrir að það þurfi að koma sérfræðingur frá Bandaríkjunum til að athuga hve langt hægt er að draga girðinguna til baka,” sagði Helgi Ágústsson, deildarstjóri varnarmála- deildar í gær, er DV spurðist fyrir um stöðu mála i deilu Grindvíkinga og varnarliðsins vegna girðingar sem fyrir- hugað er að reisa umhverfis loftnet varnarliðsins við bæinn. „Þessi mál eru enn í athugun hjá varnarliðinu þvi það eru ákveðin vand- kvæði þvi samfara að færa girðinguna mjög nálægt loftnetunum. En vinnan við girðinguna mun liggja niðri á meðan verið er að athuga málið,” sagði Helgi. ÓEF Það Ijómaði gleði og eftirvænting af hverju andliti þegar „litiu olympiuleikarnir" — Andrósar andar-leikarnir hófust á Akureyri á miðvikudag með setningu. Á fimmta hundrað þátttakendur og fjölmargir aðstandendur þeirra gengu i skrúðgöngu niður Þingvallastrætið að kirkjunni með lúðrasveit og fánabera i broddi fy/kingar. Þá tók Guðmundur Svansson þessa mynd. Keppt verður á leikunum i dag en þeim lýkur á morgun, sunnudag. -hsim. Bandalag ísl. listamanna: Afmæliskveðja til Halldórs Laxness Bandalag íslenskra listamanna er fjölraddaður kór. Þar er enginn stjórn- andinn, og þar syngur hver með sínu nefi, oftast ósamtaka. Sjaldgæft er, að kveðið sé upp úr með einsöng, og sjald- gæfara, að aðrir kórfélagar beri eyrun eftirþví. Þó gerist það stundum ósjálfrátt. Þvi að ein röddin er skærust, og á hana er hlýtt og eftir henni er tekið. Hún gefur og hinum röddunum þann ljóma, er þær skortir einar sér. Hún finnur tóninn, sem aðrar raddir rata ekki á. Það er þín rödd, Halldór, og við óskum þér heilla af öllum nótum, ein- róma, aldrei þessu vant. stjórn B.Í.L.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.