Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Qupperneq 6
26
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982.
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina
Rokkað á eyrinni
Tónlcikar verða haldnir í Alþýðuhúsinu á ísafirði í
kvöld kl. 21. Stjarna kvöldsins verður isfirzka
hljómsveitin Allshcrjarfrík og mun hún eingöngu
flytja frumsamið efni. Að auki munu væntanlega 2
til 3 aðrar grúppur spila, skipaðar innfæddum. Er
fólk eindregið hvatt til að mæta á þennan einstaka
menningarviöburö.
Skemmtanir
Skemmtistaðir
SIGTÚN: Opið föstudags- og laugardagskvöld,
bingó, spilaö á laugardag klukkan 14.
Broadway: Föstudags. laugardags- og og
sunnudagskvöld. Eldgleypararnir Silvía og Strmelli
koma og gleypa smá-eld einnig kemur Jack Steal-
vasaþjófur í heimsókn og okkar vinsælu Þorgeir og
Magnús.
Sunnudagur: Fjölskylduskemmtun frá kl. 15.—17.
Bingó og skemmtikraftar.
HOLLYWOOD: Dynjandi diskó alla helgina.
GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður í diskótekinu
um helgina frá klukkan 10—03, það er diskósalur
74”, tónlistin úr safni feröadiskóteksins. Grétar
býður alla velkomna og óskar gestum góörar
skemmtunar. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi
í öörum sal hússins öll kvöld helgarinnar.
ÞÓRSCAFÉ: Kabarettinn kætir alla. Galdrakarlar
leika sin beztu lög, diskótek á neðri hæð, opiö öll
kvöld helgarinnar.
LINDARBÆR: Laugardagskvöld, gömlu dansarnir.
Valgerður Þórisdóttir syngur undir leik hljómsveit-
ar Rúts Kr. Hannessonar.
ÓÐAL: Opið öll kvöld helgarinnar, Fanney og Dóri
skiptast á að snúa plötunum við.
SNEKKJAN: Dansbandið leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld. Matsölustaðurinn Skútan opin sömu
kvöld.
HÓTEL BORG: Diskótekið Disa sér um diskósnún-
inga bæöi föstudags- og laugardagskvöld. Sunnu-
dagskvöld veröur hljómsveit Jóns Sigurðssonar með
tónlist af vönduðu tagi sem hæfir gömlu dönsunum.
HREYFILSHÚSIÐ: Opið laugardagskvöld, gömlu
dansarnir.
LEIKHÚSKJALLARINN: Föstudags- og laugar-
dagskvöld — „kjallarakvöld” skemmtiþáttur 1 og2
i kjallaranum „dúa”.
HÓTEL SAGA: Hljómsveit Ragga Bjarna sér um
fjöriö á laugardagskvöldið.
jmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Matsölustaðir
REYKJAVÍK
ASKUR, Laugavegi 28 B. Símar 18385 og 29355:
Opið kl. 9—24 alla daga. Vínveitingar frá kl. 18
virka daga og allan daginn á sunnudögum.
ASKUR, Suðurlandsbraut 14. Simi 81344: Opið kl.
11—23.30.
TORFAN Amtmannsstíg, sími 13303: Oplö alla
daga vikunnar frá klukkan 10.00—23.30. Vínveit-
ingar.
KOKKHÚSIÐ Lækjargötu 8, sími 10340: Opið alla
daga vikunnar frá klukkan 9.00—21 nema sunnu-
daga er opið frá klukkan 10.00—21.00.
TOMMABORGARAR Grensásvegi 7, sími 84405:
Opið alla daga frá klukkan 11.00—23.00.
SVARTA PANNAN á horninu á Tryggvagötu og
Pósthússtrætis, sími 16480: Opið alla daga frá
klukkan 11.00—23.30.
GOSBRUNNURINN Laugavegi 116, sími 10312.
Opið virka daga frá klukkan 8.00—21.00 og sunnu-
daga frá klukkan 9.00—21.00.
ASKUR, næturþjónusta, sími 71355: Opið á föstu-
dags- og laugardagsnóttum til klukkan 5.00, sent
heim.
WINNIS, Laugavegi 116, sími 25171: Opiðalladaga
vikunnar frá klukkan 11.30—23.30.
LÆKJARBREKKA við Bankastræti 2, simi 14430:
' Opið alla daga frá klukkan 8.30—23.30 nema
sunnudaga, þá er opið frá klukkan 10.00—23.30.
Vínveitingar.
ARNARHÓLL, Hverfisgötu 8—10, sími 18833:
Opið alla virka daga í hádeginu frá klukkan 12.00—
15.00 og alla daga frá kl. 18.00—23.30. Á föstudags
og laugardagskvöldum leika Magnús Kjartansson og
Finnbogi Kjartansson í Koníakklúbbnum, vinveit-
ingar.
MENSA, veitingastofa Lækjargötu 2, 2. hæð, sími
11730: Opiö alla daga nema sunnudaga frá klukkan
10.00—19.00 og sunnudaga frá klukkan 14.00—
18.00.
POTTURINN OG PANNAN, Brautarholti 22:
Opið frá 8.00—23.30.
RÁN, Skólavörðustíg 12, sími 10848: Opið klukkan
11.30—23.30, léttar vínveitingar.
BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, við Óðinstorg. Sími
25090: 0pið kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 á
sunnudögum.
ESJUBERG, Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2. Sími
82200: Opið kl. 7—22. Vínveitingar.
HOLLYWOOD, Ármúla 5. Borðapantanir í sima
83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld vik-
unnar. Vínveitingar.
HORNIÐ, Hafnarstræti 16. Sími 13340: Opið kl.
11-23.30.
HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Boröapantanir
i síma 21011. Opið kl. 12—14.30 og 19—23.30.
Vínveitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurnugvelli,
Borðapantanir í síma 22321: Blómasalur er opinn kl.
8—9.30. (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vinveitingar. Borðapantanir í Súlnasal í síma 20221.
Matur er framreiddur föstudaga og laugardaga kl.
19—21. Vínveitingar.
KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Símar 12509 og
15932. Opið kl. 4 eftir miðnætti til kl. 23.30.
Vínveitingar.
KRÁIN við Hlemmtorg. Sími 24631. Opið alla daga
kl. 9—22.
LAUGAÁS, Laugarásvegi 1. Sími 31620. Opið 8—
24.
NAUST, Vesturgötu 6—8: Boröapantanir í síma
17759. Opið alla daga kl. 11—23.30.
NESSÝ, Austurstræti 22. Sími 11340. Opið kl. 11—
23.30 alla daga.
ÓÐAL við Austurvöll. Boröapantanir i síma 11322.
Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til
fimmtudaga, kl. 21—03 föstudaga og laugardaga.
ÞÓRSCAFE, Brautarholti 20. Borðapantanir í
síma 23333. Matur framreiddur föstudaga og
laugardaga kl. 20—22. Vínveitingar.
AKUREYRI
BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22.
Sími 96-21818. Baútinn er opinn alla daga kl. 9.30—
21.30. Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30.
Vínveitingar.,
HÓTEL KEA, Hafnarstræti 87—89. Sími %—
22200. Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl.
21.45. Vínveitingar.
HAFNARFJÓRÐUR
GAFL-INN, Dalshrauni 13. Sími 54424. Opið alla
daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn
veizlusalur með heita og kalda rétti og vinveitingar.
SNEKKJAN og SKÚTAN, Strandgötu 1—3. Borða-
pantanir í sima 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu-
daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og laugar-
daga. Matur er framreiddur í Snekkjunni á laugar-
dögum kl. 21—22.30.
AKRANES
STILLHOLT, Stillholti 2. Sími 93-2778. Opið kl.
9.30—21 virka daga og 9.30—22 Iaugardaga og
sunnudaga. Léttar vinveitingar eftir kl. 18.
Þráinn Karlsson, Theódór Júliusson, Marinó Þorsteinsson og Jónsteinn AOalsteÍnsson f hlutverkum sfnum.
Frumsýningarskrekkur meðal leikara á Akureyrí í dag:
Ég verö oröinn
fárveikur á hádegi”
—segir Þráinn Karlsson leikari, sem leikur borgarstjórann
í f rumsýningu LA á Eftirlitsmanninum í kvöld
„Viö köllum þetta farsa, enda er
Eftirlitsmaðurinn léttur gamanleikur
þótt undirtóninn sé ádeilukenndur,”
sagði Þráinn Karlsson, leikari hjá
Leikfélagi Akureyrar, í stuttu spjalli
við DV. Tilefni spjallsins var frum-
sýning Leikfélags Akureyrar á Eftir-
litsmanni Go Gols í Samkomuhúsinu
í kvöld.
Eftirlitsmaðurinn var saminn 1836
og um leikritið hafa verið skrifaðar
margar bækur,” hélt Þráinn áfram.
„Þjóðleikhúsið hefur sýnt þetta verk
og það hefur áður sézt á fjölunum
hér á Akureyri, því Leikfélag
Menntaskólans tók það fyrir á sínum
tíma. Þá lék Pétur Einarsson eftirlits-
manninn.”
— Er uppsetning ykkar hefðbund-
in útfærsla á Eftirlitsmanninum?
„Nei, það má segja að hér sé á
ferðinni ný leikgerð. Verkið hefur
verið stytt talsvert og Jón Hjartarson
leikari hefur skrifað við það forleik
og millikafla. Forleikurinn hefst með
því að höfundur og leikhússtjóri í
fjárvana leikhúsi hittast á sviðinu.
Þeir hefja síðan smíði verksins og
auðvitað verður leikhússtjóri í fjár-
vana leikhúsi að leita eftir ódýrustu
úrlausnunum varðandi leikmynd og
leikhljóð, svo eitthvað sé nefnt. Þeir
félagar eru síðan rauður þráður i sýn-
ingunni.”
Þráinn Karlsson leikur borgar-
stjórann i eftirlitsmanninum. „Karl-
rembusvín sem skríður eins og hund-
ur fyrir eftirlitsmanni stjórnarinnar
en ég kann bara nokkuð vel við karl-
inn,” sagði Þráinn um þá persónu.
Þráinn hefur ekki leikið með Leikfé-
lagi Akureyrar síðan hann túlkaði
Matta í Puntila og Matta 1980.
Síðan lá leið hans til Þjóðleikhússins
og Alþýðuleikhússins og loks smíða-
stofuna. Smíðastofu, hvaða?
„Smíðastofuna hjá Leikfélagi
Akureyrar; hún er í einu herbergi
undir leiksviðinu,” svaraði Þráinn.
„Ég sá það í haust, þegar ég kom aft-
ur til starfa hjá félaginu, að kraftar
mínir kæmu til með að nýtasl bezt við
leikmyndasmíði og við það hef ég
verið í vetur. Ég hef kunnað alveg
skellandi vel við mig þarna niðri. Ég
nýt þess að nostra við leikmyndirnar.
Ég hef ekki fundið fyrir neinni tiltak-
anlegri þrá til þess að komast upp á
fjalirnar, en kann samt bara gizka vel
við mig í Eftirlitsmanninum.”
— Nú er frumsýning í kvöld, ert
þú laus við skrekk?
„Nei, nei, ert þú frá þér, ég losna
aldrei við frumsýningarskrekkinn. Ég
er orðinn fárveikur um hádegi, en
siðan lagast þetta smátt og smátt eftir
að sýningin er hafin. Það fer eftir
andrúmsloftinu meðal samleikaranna
og í salnum hversu fljótt skrekkurinn
hverfur. Það er því bezt fyrir alla
aðila að stemmningin sé sem bezt,”
sagði Þráinn.
önnur sýning á Eftirlitsmanninum
verður á sunnudagskvöldið en síðan
verða þrjár sýningar um næstu helgi.
„Við ætlum að hraða sýningum eins
og hægt er, þannig að Akureyringar
geti skemmt sér ærlega áður en þeir
hefjast handa í kartöflugörðunum,”
sagði Þráinn í lok samtalsins.
Guðrún Ásmundsdóttir og Ásdís
Skúladóttir leikstýra Eftirlitsmannin-
um. Leikmyndin er eftir IvanTörök.
GS/Akureyri
Málverkasýning helgarínnar—Tryggvi Ólafsson:
„Eg er ekki í gáfumannafélaginu...”
Tryggvi Ólafsson er fæddur á
Norðfirði.en hefur búið síðustu 20 ár-
in i Kaupmannahöfn miðri, fáein
skref frá aðaljárnbrautarstöðinni. Á
sýningu hans sem verður opnuð á
morgun, 1. mai, í Listmunahúsinu er
ekkert sem minnir á Höfn, en margt
sem virðist sótt í íslenzk sjávarpláss.
Myndir Tryggva eru „fígura-
tívar”, þ.e.a.s. greinilega má sjá af
hverju þær eru. Hann blandar hins-
vegar saman hugmyndum viðs vegar
að, úr nútíð og fortíð og hver mynd
hefur sinn grunntón, oft skærrauðan
eða bláan.
„Þetta er uppáhaldsmyndin mín,”
segir hann og bendir á mynd þar sem
er fiskur, fugl, kona, barn (og mig
minnir hluti af árabát). „Þetta er líf-
ið.”
Dýr eru algeng í myndunum, einn-
ig sprengjuflugvélar, gamlar styttur í
grískum stil, sviplaus mannfigúra,
konur og Kristslíkneski.
„Danskir gagnrýnendur hafa bent
á að samspilið milli manneskjunnar
og náttúrunnar, ennfremur fint háð
um nútímalíf, sé áberandi í myndum
Tryggva.
»
Tryggvi Ólafsson við eina af mynd-
um sinum. Hún er hans upplifun á
þeim heimi sem við lifum i en ekki
vildi hann viðurkenna að hún væri
lýsing á bæjariifinu á Noröfiröi.
„Ég er hvorki spámaður né í gáfu-
mannafélaginu,” segir Tryggvi.
„Mér leiðist allar skilgreiningar og
tölvurökfræði. Að komast til tungls-
ins er tækni, en ég hef engan áhuga
fyrir henni. Ég leysi málin á einfaldan
hátt með litum sem höfða til tilfinn-
inganna.”
„Það er áberandi mikið af konum
og Kristmyndum hjá þér,” segir nær-
staddur málari, sem er að hjálpa
Tryggva að hengja upp. „Ertu að
fara yfir í erótíkina og trúna?” og
bætir við: „sem kannski er það
sama.”
Tryggvi hristir höfuðið: „Ég er
ekkert meira upptekinn af biskupn-
um og dömunum en ég hef verið”
segir hann. „Þetta eru myndljóð um
fortíð ogsamtíð.”
Sýning hans í Listmunahúsinu
verður opin til 23. maí.
ihh