Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1982, Page 1
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1982.
mim
Alltum g
íþróttir |
helgarinnar 1
°0
Mikill darraðardans þegar Islendingar unnu Egypta
—73:72 íEdinborg:
Valur er með
staltaugar”
— sagði Einar Bollason, eftir að Valur Ingimundarson hafði
skorað sigurkörf urnar úr vítaköstum rétt
fyrir leikslok
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV í Eúinborg. —
Njarðvikingurinn Valur Ingimundar-
son var hetja íslenzka landsliðsins
þegar það vann sætan sigur (73:72) yfir
Egyptum hér i Edinborg í gær. Þessum
19 ára leikmanni brást ekki bogalistin,
þegar hann fékk tvö vítaskot þegar 40
sek. voru til leiksloka og staðan 72:71
fyrir Egypta. Hann skoraði úr báðum
vitaskotunum og tryggði íslandi sigur.
— „Valur er með stáltaugar,” sagði
Einar Bollason eftir leikinn.
Leikurinn var æsispennandi —
staðan 64:64 þegar 3 mín. voru til leiks-
loka. Þegar 1,20 mín. voru til leiksloka
voru Egyptar með 72:69. Þá skoraði
Tekur Sigurlás stöðu
Van der Berg
hjá Lierse?
Frá Kristjáni Bernburg — frétta-
manni DVI Belgíu:
— Sigurlás Þorleifsson, lands-
liðsmiðherji I knatlspyrnu frá
Vestmannaeyjum, er nú að kynna
sér aðstæður hjá Liersc, sem vantar
markaskorara fyrir Erwin van der
Símon sjötti
stigahæstur
Frá Kjartani Pálssyni, Edinborg.
Símon Ólafsson varð sjötti stiga-
hæsti leikmaðurinn á Evrópumeistara-
mótinu i Edinborg með 85 stig. Torfi
Magnússon i níunda sæti með 66 stig.
Þessir urðu stigahæstir.
1. Soliman, Egyptalandi, 142
2. Lesontzy, Ungverjal. 126
3. Haselbacker, Austurr. 99
4. Maloy, Austurriki, 90
5. Paul Stewart, Skotl. 86
6. Simon Ólafsson, íslandi, 85
Ungverjinn Lesontzy var kjörinn
bezti leikmaður keppninnar.
klp
Berg, sem hefur ákveðið að hætta
hjá félaginu.
Lierse leitar nú logandi Ijósi eftir
marksæknum leikmanni sem getur
tekið stöðu Van der Berg en hann
hefur verið mesti markaskorari
Belgiu undanfarin ár. -KB/-SOS
Ríkharður Hrafnkelsson 72:71 og var
mikill darraðardans stiginn. Jón
Sigurðsson náði að fiska knöttinn frá
einum leikmanni Egypta og brunuðu
íslendingar fram og þá var brotið á Val
Ingimundarsyni, sem fékk tvö vítaskot.
Egyptar reyndu svo örvæntingarfulla
tilraun til að knýja fram sigur og átti
bezti leikmaður þeirra skot að körfu
íslendinga þegar 5 sek. voru til leiks-
loka, Viðar Vignisson frá Keflavík —
minnsti miðherji keppninnar, sýndi þá
hvaði honum býr — stökk upp og náði
að blokkera skotið, þannig að sigur
Íslandsvaríhöfn.
— Þetta var bezti leikur okkar hér í
Edinborg og það var sætt að leggja
Egypta að velli, en þeir unnu t.d.
Austurríkismenn, sagði Einar Bolla-
son, þjálfari íslenzka landslíðsins.
Einar sagði að þetta hefði verið góður
endir á ferð sem hefði verið keðja af
óhöppum.
„Mikið baráttulið"
— Ég hef aldrei séð eins mikið
baráttulið og það íslenzka, sagði
Fouadab, þjálfari Egypta, eftir leikinn.
Hann sagði að leikmenn íslenzka
liðsins hefðu aldrei gefizt upp og allir
leikmenn liðsins hefðu barizt til sigurs.
Valur Ingimundarson átti mjög
góðan leik skoraði 20 stig en aðrir sem
skoruðu voru: Kristján 14, Símon 11,
Ríkharður 8, Axel 7, Jón S. 6,
Gunnsteinn4, Viðar 2 ogTorfi 1.
-klp-/-SOS
Landsliðið til
Egyptalands?
— í sterkt mót þar í september
Forráðamenn Egyptalands komu
til íslendinga hér i lokahófi Evrópu-
keppninnar i gær og buðu landsliði
íslands formlega að koma til
Egyptalands í september og taka
þar þátt i sterku körfuknattleiks-
móti sem t.d. Júgóslavar taka þátt
i. Egyptar sögðu að Islendingar
þyrftu ekki að hugsa um peninga-
hliðina — þeir myndu borga ferðir
landsliðsins og uppihald I
Egyptalandi.
-klp-
Valur Ingimundarson
— sem landsliðsþ játfara
Einar Bollason, landsliðsþjálfari í
körfuknattleik, er nú með atvinnu-
tilboð frá írlandi upp á vasann.
Forráðamenn írska landsliðsins ræddu
við Einar áður en þeir fóru. frá
Edinborg í gær og buðu honum að
koma til írlands og taka við irska
landsliðinu — jafnframt því sem hann
myndi þjálfa eitt af sterkustu
félagsliðum írlands. — Ég vil ekkert
segja um þetta að svo komnu máli enda
í mörg horn að lita áður en maður rifi
sig upp frá íslandi til að gerast þjálfari
erlendis. .Wp.
Ásgeir til
Stuttgart
— i skiptum fyrir Bernd Martin?
V-Þýzka blaðið Bild sagði frá þvi
um helgina að nú væri nokkuð
öruggt að Ásgeir Sigurvinsson færi
frá Bayern Munchen til Stuttgart,
til að taka stöðu Hansa Muller, sem
fer til Inter Milan á ítaliu.
Blaðið sagði frá því að Bernd
Martin bakvörður sem hefur leikið
einn landsleik fyrir V-Þjóðverja,
yrði látinn í skiptum fyrir Asgcir.
Viðræður standa nú yfir á milli
Bayern og Stuttgart. Forráðamenn
Stuttgart hafa rætt við Ásgeir sem
hefur sýnt áhuga á að ganga til liðs
við Stuttgart.
-SOS
ísland varð í
fjórða sæti
Frá Kjartani Pálssyni, Edinborg.
Úrslit i lcikjunum í C-keppninni í
körfuknattleik á Evrópumeistara-
mótinu hér I Edinborg urðu þessi
siðustu daga.
Föstudagur
Egyptaland-írland 68—64
Ungverjal.-Austurriki 105—78
Skotland-fsland 77—64
Laugardagur
Egyptaland-Austurríki 84—82
ísland-írland 74—68
Ungverjal.-Skotland 100—75
Sunnudagur
Ungverjaland-írland 61—47
Ísland-Egyptaland 73—72
Austurríki-Skotland 75—64
Slgurður P. Sigmundsson
Lokastaðan i mótinu varð þannig:
Ungverjar
Austurríki
Skotland
ísland
Egyptaland
írland
0 477—376
2 395—388
2 356—356
3 378—422
3 184—402
5 280—326
ísland hlaut fjórða sætið, Austurríki
annað sætið vegna innbyrðissigra á
Egyptum og Skotum.
klp.
Frá
Kjartani L
Pálssyni
íEdinborg
EM-keppnín í
körfuknattleik
Si igu ir ði ui r P. h ili p 201 ki m i
— til að sjá íslenzka landsliðið leika í Edinborg
Frá Kjartani L. Pálssyni — frétta-
manni DV I Skotlandi. —
Hafnfirðingurinn Sigurður P.
Sigmundsson langhlaupari lætur sig
ekki muna um það að hlaupa 20 km
leið til að koma og sjá islenzka
landsliðið leika hér i EM i Edinborg.
Sigurður P., sem stundar hér nám i
hagfræði, setti á dögunum nýtt
íslandsmet i maraþonhlaupi — hljóp á
tveimur timum 27,05 min.
— Ég var mjög ánægður með
hlaupið því að ég hef ekki gefið mér
tíma til að æfa maraþonhlaup sérstak-
lega og þá tók ég ekki þann matarkúr
fyrir hlaupið sem æskilegt er, sagði
Sigurður.
Sigurður sagðist munu leggja
aðaláherzluna á 5 og 10 km hlaup í
sumar. — Ég mun gera atlögu að 7 ára
gömlu meti Sigfúsar Jónssonar í 10 km
hlaupi í London á brezka
háskólameistaramótinu og þá ætla ég
einnig að reyna að slá út met Ágústs
Ásgeirssonar í 25 km hlaupi á móti í
Bolton 23. maí.sagði Sigurður.
Sigurður æfir vel hér í Edinborg —
hleypur þetta 110 km á viku.-klp-/-SOS