Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1982, Qupperneq 1
7 Laugardalsgarðinum á köldum en
i ' ' t björtum sumardegi.
DV-mynd Einar Ólason.
ÆfUöitg
hamlngja
fólgin í
garðrækt
— segir fornt máltæhi
Leiðirnar til þess að öðlast hamingju eru margar.
Fornt spakmæli, að mig minnir kínverskt, segir eitthvað
á þá leið að til að öðlast daglanga hamingju sé gott að
drekka flösku af hrísgrjónavíni. Til að öðlast hamingju í
eitt ár sé gott að gifta sig. En til þess að öðlast ævilanga
hamingju sé ekki nema eitt ráð, að rækta garðinn sinn.
Þetta foma spakmæli virðist ekki síður satt hér á landi.
Þrátt fyrir umhleypinga, frost og norðangarra, sem
gerðu landsmönnum gramt í geði í fyrri hluta maí, voru
garðeigendur að dútla eitthvað. Reyndar fengu margir
þeirra tár í augun þegar frostið drap páskaliljurnar
komnar að því að springa út. En menn bitu á jaxlinn og
bölvuðu í hljóði.
Þeir garðeigendur sem við hittum á ferð okkar um
bæinn voru sammála um eitt. Þrátt fyrir allan tímann
sem í garðinn færi, alla þolinmæðina sem nauðsynleg
væri og þau vonbrigði sem stundum yrðu, bættu plönt-
urnar þeirra það allt upp. Þær væru þeir vinir sem engan
svikju eins og einn viðmælanda okkar komst að orði.
Menn virðast komast eitthvað nær hamingjunni við það
að sá til plantna, sjá þær vaxa og síðar falla. Skilja
kannski tilgang lífsins betur.
Hvað sem veldur er garðyrkja greinilega tómstunda-
gaman sem er þess virði að því sé sinnt. Þeim sem það
gera, ætla að gera, eða fylgjast með verkinu af áhuga úr
fjarlægð, helgum við þetta blað.
Dóra Stefánsdóttir.
Garðar
borg-
arinnar
- Viðtalvið
Hafliða
Jónsson
bls.10
Blómin svíkja aldrei neinn — Litið inn í garð til Svövu Erlenúsdóttur og Hjalta Jónatans- Munaður bæðii verði og þægindum — Grein um heita potta bl s.tt Fðlkbyrjar ofseint að hugsa — Viðtal við Æuð i Sveins- dóttur lands- laqsarkiteht bls. 6 Býðirekki að reka á eftir náttáriumi - Viðtalvið ÓlafGuð- mundsson bls. 12
sonar