Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1982, Page 9
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR15. MAl 1982.
9
hafður er forhitari eða beint tengt
þarf aö vera hitamælir á vatninu
sem stjórnar þvi hversu heitt vatniö i
pottinum veröur. Það er litiö varið i
aö sit ja í heitum og köldum gusum til
skiptis.
Mikiö hreinlæti
nauðsynlegt
Ekki er nóg aö demba sér beint ofan i
heita pottinn Jþegar komiö er heim úr
vinnunni. Heitir pottar eru ekki baðker
og því er nauðsynlegt aö fara í sturtu
og þvo sér vel meö sápu áöur en farið
er ofan i. Ekki sakar heldur aö fara
aftur i sturtu eftir aö komiö er upp úr
til þess aö þvo af sér klórið. Þvi meira
hreinlæti sem viö er haft þvi betra.
Margir hugsa sér ugglaust aö halda
gleðskap i svona pottum. Þaö er i lagi
ef áfengis er ekki neytt. En þaö getur
veriö beinlinis stórhættulegt aö drekka
vin áöur en farið er ofan i pottinn. Viö
aö sitja i heitu vatninu eykst hjart-
slátturinn og blóöið rennur örar um
líkamann. Áfengisáhrifin kunna þvi aö
koma mjög skyndilega, s vo skyndilega
aö menn hreinlega veröi veikir. Þetta
er ekki ósvipaö þvi aö drekka áfengi
óöur en farið er í gufubað.
Annað sem aldrei stti aö gera er að
láta börn vera eftirlitslaus i svona
pottum. Þó þeir séu mjög grunnir þarf
ekki aö koma annaö til en þaö að
bamiö detti, reki höfuðið i og rotist og
þá hreinlega drukknar það. Botnar
kerjanna veröa hálir i vatninu.
Hvaðkostar
dýrðin?
Llítum fyrstó islenzku pottana. Eins
og fyrr sagöi vitum viö um þrjá aðila
sem framleiöa þá. Trefjaplast á
Blönduósi er með 3stæröir: 2X2X0,60,
2X2X1,10 og átthyrning sem er 3,80
metrar i þvermál og tekur 15 tonn af
vatni. I þessum pottum er tref japlast. I
miðkerinu og stóra kerinu eru set-
bekkir en þaö litla er svo gmnnt aö
setiö er á botni þess. Kerin kosta 4.800,
6 J00 og 36.000 krónur. Einfalt mun að
setja í þau nuddbúnað en hann fylgir
ekki. Einnig mun einfalt að setja kerin
upp.
Trefjar i Hafnarfirði em með eina
stærö. Hún er 2X2X0,70 metrar og er
áætluð fyrir fimm. I kerinu er trefja-
plast. I þvi er legubekkur fyrir einn og
sæti fyrir fjóra. Þaö kostar um 10
þúsund krónur. Nuddbúnaöur fylgir
ekki en einfalt mun aö setja hann í.
Fyrir þúsund krónur í viöbót em settir
í keriö stútar fyrir loftnudd. Auðvelt er
taliö að setja kerið upp.
Fossplast á Selfossi er meö tvær
stæröir. Þær eru 2x2x0,55 og
2X1,40X0,45.1 kerjunumem glertrefj-
ar meö pólýesterblöndu. Þau kosta
4532 og 7295 krónur. Ekki er
nuddbúnaður i þessum pottum frekar
en hinum íslenzku pottunum, en hins
vegar er hægt aö setja hann í. Auövelt
er aö setja keriö upp. Það ber sig sjálft
þannig aö ekki þarf aö grafa þaö niður
eða fylla upp meö þvi.
Gunnar Ásgeirsson ótti þrjór geröir
nuddkerja og eina gerð kers ón nudds
þegar litiö var inn til hans. Kerin
(nema þetta án nuddsins) em úr akrýl
með blöndu úr tref japlasti. Hægt er aö
fá hvort sem er bara loftnudd á kerin
eða bæöi vatns- og loftnudd. Stærsta
kerið er reyndar kallaö sundlaug. Það
er úr sérstökum plastdúk. Ákrýlkerin
voru, eins og fyrr sagði, til í þrem
stæröum. Pacific er 1,40X2,010X0,61
metri aö stærö. Þaö er ætlað fyrir
tvo. Fyrir loftnudd kostar
það 19; 500 en fyrir loft-
og vatnsnudd kostar það 23,500.
Miðstærðin heitir Family og er ætluð
fyrir 4. Keriö er kringlótt, 1,69 metrar
í þvermól og 0,90 metra djúpt. Það
kostar fyrir loftnudd 22,500 og fyrir
vatnsnudd 26.800. Party heitir svo
stærsta keriö. Það er ferhyrnt,
1,84x1,84x1,0. Þaö kostar 34.500 fyrir
loft- og vatnsnudd en 27.500 fyrir
loftnudd eingöngu. Oll em kerin meö
ýmiss konar sætum og því misdjúp.
Uppgefin dýpt er miðuö við lægsta
punkt. Stærsta kerið hjá Gunnari er
eins og fyrr sagöi kallað sundlaug. Þaö
er 3 metrar i þvermál, þannig aö lítiö
er hægt aö synda, en með því að bæta
við vainsnuddtækjum og mynda
þannig straum i vatninu er hægt aö
synda „á staðnum”. Keriö kostar
9.955. Hægt er aö fó stærri slík ker og
heilu sundlaugarnar.
Þaö verð sem héma er gefiö upp frá
Gunnari er i rauninni ekki öll sagan.
Tökum ódýrasta keriö sem dæmi.
19.500 kostar tækiö allslaust meö loft-
nuddstútum. Þegar bætt er viö dælu,
vatnsnuddi, forhitara, hreinsitækjum
og stilliboröi getur verðiö fariö upp í
hundraö þúsund. Sama gildir auðvitað
um tæki frá hinum aðilunum.
Herkúles í Mosfellssveit flytur inn
ameríska potta úr trefjaplasti. Aöal-
lega er um tvær stæröir að ræöa,
2,30X2,30X0,90 og 2X2X0,75. Bekkir
eru í stærri pottinum. Hann kostar 33
þúsund og sá minni 30 þúsund. I þessu
veröi f ylgir nuddkerf i og dæla.
Gefíð ykkur tima
Þegar pottur er keyptur í garöinn og
siöar notaður er um að gera að gefa sér
góöan tíma, góöan tima til að líta á þaö
sem til er, hugsa um veröiö og alla
skipulagningu. Stund i pottinum
uppkomnum á síðan aö vera hvíldar-
stund í ró og næði en ekki einhver
hasar.
ns
<C
Herkúles flYtur inn þennan pott og
annan mjög svipaöan að stærð og
búnaði.
i
Gróöurhúsiö v/Sigtún simi 36770
ÍP ín. !, í'^i i m iamb pf'lftlíf
jpí i| ci i\ iiS1 \ j itev