Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1982, Page 16
16 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR15. MAl 1982. Garðyrhjufélag íslands: jr Ohelnt kotttid á betri görðum99 — segir Jón Pálsson formaður „Hlutverk félagsins er í rauninni þaö aö vinna aö betri og hagkvæmari garðyrkju,” sagöi Jón Pálsson, for- maöur Garðyrkjufélags Islands. Félagiö er landsfélag nokkurra deilda og auk þess eru umboðsmenn víöa um land. Deildimar eru á Akra- nesi, Borgarnesi, Isafiröi, Siglufiröi, Dalvík, Akureyri, í Aðaldal, á Húsa- vík, Neskaupstaö, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík og Suðurnesjum. Rúmlega 6 þúsund manns eru í félaginu og fjölgar þeim stööugt. „Þaö er óhætt aö segja aö áhuginn á garörækt fer alltaf vaxandi,” sagöi Jón. Ekki treysti hann sér til þess aö segja á hvaöa staö á landinu flest væri af fólki hlutfallslega. „Þaö er líklega á einhverjum af allra minnstu. stööunum,”sagöihann. Félagiö gefur út ársrit og tímaritið Garöinn 4—5 sinnum á ári. I þessum ritum er rekinn mikill áróöur fyrir fallegri göröum og meö því reynt aö hvetja menn til dáöa. En félagið reynir líka aö stuöla beint að því að garðar manna veröi fallegri. Þannig hefur þaö stofnað nokkurs konar fræbanka. Félags- menn senda inn fræ sem aörir geta svo fengið. Jafnframt er fræ og lauk- ar pantaö inn frá útlöndum. Slikt er selt félagsmönnum á kostnaöar- verði. Er alltaf greint frá því í ritum félagsins hvaö hægt er aö fá á hverj- umtíma. Garöyrkjufélagiö gengst einnig fyrir því aö garöar félagsmanna séu opnir þeim sem þá vilja skoöa. Fariö er í garðaskoöun á vorin og reynt aö fá fólk til aö sýna garðana sína. Slíkt getur verið vandi því oft koma svo margir aö garðurinn kann aö skemmast. Sagöi Jón þetta samt ganga furöu vel. Jón sagði Garðyrkjufélagið að mestu leyti hafa starfað í kyrrþey. Á árum áður fékk félagið örlítinn styrk frá Reykjavíkurborg. En fyrrver- andi borgarstjómarmeirihluti felldi hann niöur og sá núverandi hefur ekki tekiö hann upp aftur. Að ööru leyti hafa félagsmenn séö um rekst- ur félagsins. „Við álitum aö þetta félag hafi haft örvandi áhrif á fólk. Þegar fólk sér hvaö hægt er aö gera vill þaö reyna og tekst oft vel. Félagiö hefur því óbeint stuðlaö aö betri görðum,” sagði Jón. DS Markmiö Garðyrkjufólags íslands erað stuðla að faUegri görðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.