Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Side 1
124. TBL. — 72. og 8. ÁRG. FÖSTUDAGUR 4. JUNÍ1982.
frfálst, úháð dagblað
Þaðvarfítið við að vera hjá starfsmönnum útvarps í morgun. Ævar Kjartansson þulur, Stefán Jón Hafstain fráttamaður,
Magnús Hjá/marsson tæknimaður og Pótur Pótursson þuiur. (DV-mynd GVA)
ísraelskur sendiherra helsærður í London:
Islenzki sendiherrann
fór rétt áður heim
—úr árlegu kvöldverðarboði sendiherrans
Frá Þórí Guðmundssyni/ fróttarit-
ara DVi London:
Israelski sendiherrann í Bretlandi,
Shlomo Argov, berst nú fyrir lífi sinu í
sjúkrahúsi í London eftir aö maður
skaut hann í höfuðiö í gærkvöldi.
Árásarmanninum er lýst sem mið-
austurlenzkum í útliti. Tveir lífverðir
skutu hann þegar hann hljóp í burtu
frá árásarstaðnum. Hann er í alvar-
legri lifshættu eins og sendiherrann.
Sendiherrann var skotinn þegar
hann var á leið út úr Dorchester hótel-
inu í London eftir árlegan kvöldverð en skotárásin byrjaði. Hann fór heim
með öðrum sendiherrum og stjórn- strax eftir kvöldmatinn, um kl. 10.30.
málamönnum í boði DeLa rue fyrir- Strax og þangað kom heyrði hann að
tækisins. Islenzki sendiherrann, Sig- ísraelski sendiherrann hefði verið
urður Bjarnason, varmeðalgesta. skotinn.
Sigurður sagðist hafa yfirgefið
hótelið aðeins örfáum mínútum áður -JH/ÞG. London
Föstudagsmyndin
— sjábls.2
Þingmennbregda
sérábak
— sjábls.37
Tveggja daga
verkfallið:
Kemur
þyngst
niðuráfisk-
verkunarfólki
— segirKarlSteinar
„Viðhorf gagnvart tveggja
daga verkfalli hlýtur að vera
annað í sjávarplássi, þar sem
menn treysta algerlega á togara-
afla,” sagði Karl Steinar Guðna-
son, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, í morg-
un. Athygli hefur vakið að félagiö
tekur ekki þátt í verkföllum þeim
sem boðuð hafa verið 10. og 11.
júni.
„Vinnuvikan myndi tapazt ef
verkfallið bættist við helgar-
vinnubann. Það yrði til þess að
togaramir sigldu með aflann eða
færu ekki út. Verkafólk hér vill
gjarnan gera sjálfu sér og öðrum
sem minnstan skaða með sem
mestum árangri. Fiskverkunar-
fólk yrði atvinnulaust dagana
fyrir og eftir verkfallið. I vetur
voru á þriðja hundrað manna at-
vinnulausir hér. Fólk er því ófúst
að ganga út vegna ótta við at-
vinnuleysið. Menn eru hins vegar
tilbúnir að sýna samstöðu í alls-
herjarverkfalli.
Tveggja daga vinnustöðvun
kemur þyngst niður á fiskverk-
unarfólki. Verzlunar- og iðnaðar-
menn geta aftur á móti gengið úr
störfum sínum og beint í þau
aftur að verkfalli loknu.” .jh.
ASÍ:VSI
Fundurídag
Samninganefndir Alþýöusam-
bandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins hittast hjá sáttasemj-
ara kl. 14 í dag. Guðlaugur Þor-
valdsson ríkissáttasemjari sagöi
í morgun aö engu væri hægt að
spá fyrir fundinn. Þá sagði hann
að ekki væri von á tillögu frá
sáttanefnd og hefði ekkert um
slíka tillögu verið rætt.
Sambandsstjórn Vinnuveit-
endasambandsins samþykkti í
gær að boða til verkbanns frá og
með 18. júní hjá þeim verkalýös-
félögum sem boðað hafa verkfall
frásamatíma. -JH.
Starfsemi útvarps lömuð eftir að tæknimenn gengu út:
Útvarpsmenn óttast
langvinnt verkfall
Hvorki gengur né rekur í deilu tækni-
manna útvarps og viðsemjenda þeirra.
Enginn sáttafundur hefur verið
boðaður en eins og kunnugt er lögðu
tæknimenn niður vinnu í gærkvöld og
þar með var tekið fyrir útsendingar út-
varps.
1 morgun var heldur rólegt um að
litast í útvarpshúsinu við Skúlagötu.
Menn sátu, sötruöu kaffi, borðuöu
vinarbrauð og spjölluöu saman. Á
tæknideildinni voru fjórir af nítján
starfsmönnum mættir til starfa. Það
voru deildarstjóri, varadeildarstjóri,
verkfræðingur og einn tæknimaður.
„Eg er hér til að sjá um að útvarpa
veðurfregnum en þeim er útvarpað
átta sinnum á sólarhring. Svo ef upp
koma neyðartilkynningar frá lögreglu,
almannavörnum eða Tilkynningar-
skyldu, verð ég að vera til taks,” sagði
tæknimaðurinn, Magnús Hjálmarsson.
Tæknimenn hittust í morgun klukk-
an 9 í húsakynnum BSRB við Grettis-
götu til skrafs og ráðagerða. Klukkan
10 var svo fundur hjá Starfsmanna-
félagi Ríkisútvarpsins.
I samtölum við starfsmenn útvarps
kom fram að heldur voru menn svart-
sýnir, óttuðust langt verkfall. Og veltu
fy rir sér afleiöingum þessa.
Þórir Steingrímsson, talsmaöur
tæknimannanna, sagöi i morgun aö
hann vonaðist til að fundur yrði
boðaður í dag. Hvort hann hefði eitt-
hvað fyrir sér í því? „Eg bara vona
það,” svaraði Þórir.
Einu sinni áður hefur komiö til verk-
falls, þannig að útsendingar útvarps
hafa stöðvazt. Það var í allsherjar-
verkfalli BSRB 1977. Það verkfall stóð
í hálfan mánuö, 11. til 25. október, og á
meðan var ekkert útvarp.
-KÞ.