Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUR 4. JUNI1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Alls kr. Jf Fiskbakkar frá Fylltum fiski sf hafa að geyma iinuýsu meO ostefyllingum sem hafa m.e. aO geyma rækjur eOa skinku. Þær ódýrustu kosta þriðjung þeirra dýrustu Raftækjaverzlanir hafa aö undan- fömu auglýst mjög hvers konar tæki til hljómflutnings. Utvörp, segulbönd og grammófóna. Eflaust hefur verið mikiö keypt af slíku til fermingar- gjafa og jafnvel til stúdentagjafa. En þegar búiö er aö velja úr öllum þeim ótal gerðum segulbanda sem til em á markaðnum er enn eftir erfitt val. Það er aö velja snældur í tækin. Þó mikið sé til af tækjum er úrvalið af snældum samt ennþá f jölskrúðugra. Við rákumst nýlega á grein í Norska dagblaðinu um snældur. Þar er út- skýrður munur á f jórum aðaltegund- um snælda. Þær em alltaf fáanlegar hér á landi utan kannski ein hliðar- tegund, þaö er snældur úr krómliki. Því látum við greinina fara hér á eftir nokkuð stytta. Upplýsingar um verð era fengnar í Fálkanum. Það er ekki sama hvaða gerö af snældum er keypt í hvaða tæki. Snældunum má skipta í fjóra grófa flokka. Fyrst skal telja það sem kall- að er (því miöur eru öll orðin sem hér á landi eru notuð útlend) „normal” snælda. I henni er annað hvort jám- oxíð eöa önnur járnblanda (seinni gerðin er yfirleitt kölluð ferró til aö greiningar frá þeirri fyrri). Þá má nefna krómdíoxíö og líki þess í öðrum flokki. I þriðja flokki era síðan snældur úr blöndu úr jámi og krómi. Fjórði flokkurinn era síðan „metal” eöa málm snældurnar. Þær eru nefndar svo því auðvitað séu allar hinar úr málmi. Hvað á að kaupa? Það sem mestu ræður um það hvernig snældu bezt er að kaupa er tækiö sem nota á hana í. Einfalt segulband af ódýrri gerð sem nota má í bílinn eða úti við hefur ekkert að gera við fína og dýra krómkassettu. I slík tæki er best að kaupa „normal” snældu. Þær kosta þetta 50—70 krónur eftir vöramerkjum. Er þá miðaö við klukkutíma langa snældu. A þessar snældur er einnig gott að taka upp í flóknari tæki tal og einfalda tónlist. Sé tekin upp marg- brotin tónlist vill hins vegar verða nokkur björgun á þessum snældum. Það fer eftir vörumerkjum og er oft- ast hægt að marka af verði hversu mikilhún verður. Hæfni snældu felst nefnilega í því hversu vel hún getur skilað því út sem inn fór. Flestar snældur sem keyptar era áleiknar era af óvand- aðri gerð. Þær eru yfirleitt af „Normal” gerðinni og úr ódýrasta verðflokki. Það kemur ekki að sök í einföldum tækjum. En fæstum finnst gaman að því að hlusta á slíkar snældur í dýrum og fínum tækjum. Það er svo sem allt í lagi ef keypt er popptónlist sem hvort sem er er hlustaö á í einföldu tækjunum og það aöeins í vissan tíma. En vilji menn kaupa snældur með vandaðri tónlist á ættu þeir að kanna hvort ekki fást betri snældur en þessar ódýru. Krómsnældur Krómsnældur koma næst í verði á eftir „normal” snældunum. Klukku- tíma snælda kostar svona 90—100 krónur. I Noregi er hægt að fá snæld- ur úr efnum líkum krómi en viö vit- um ekki til þess aö þær fáist hér. Aðeins fá fyrirtæki í heiminum hafa fengiö leyfi til framleiðslu á króm- snældum. Hin hafa farið út í þessar likingar. Mörg tæki era með sér- staka stillingu til upptöku og spilun- ar á þessum snældum. Era þeir merktir ýmist með „Cr” eða „High”. úr blöndu af krómi og járni. Þessir tveir flokkar eiga það sameiginlegt aö frá þeim kemur minnstur hávaði af eigin völdum. Há tíðni er einkenni krómsnældanna en lág jámsnæld- Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þáltlak- andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé mcðaltal heimiliskostnaðar fjolskvIdu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- læki. Nafn áskrifanda . Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í maímánuði 1982 Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. anna. Því er blanda úr þessu tvennu sniöug til að ná öllu tíðnisviðinu. „Metal" snældur Nýjasti flokkurinn í snældu hópnum eru „metal” snældumar. Þær komu á markaö með brauki og bramli fyrir nokkram árum síðan. En í ljós kemur að þessar snældur standast ekki þær miklu kröfur sem til þeirra hafa veriö gerðar. Sífellt hefur hins vegar verið unnið að end- urbótum. Og það skrýtna er að þar eru menn sífellt að færast nær upp- ranalegum snældum sem voru fyrst fjöldaframleiddar árið 1934. Nýjustu metalsnældurnar skila því mjög vel sem inn á þær fór. En á þeim er einn stór galli. Þær era dýrar. Klukku- tíma snælda kostar hér á landi um 180 krónur. Þessar snældur slitna fljótt og frá þeim er nokkur eigin hávaði eða suö. Þaö liggur að síðustu í hlutarins eöli að ef þessar spólur era geymdar lengi, ég tala nú ekki um í raka, geta þær hreinlega ryðg- að. Að síðstu má telja fram enn einn galla. Það er ekki hægt að nota metalsnældurnar í hvaöa tæki sem er. Á tækinu þarf að vera sérstök stilling til þess, yfirleitt merkt „metal”. Reyndar er hægt aö leika Þegar búið er að velja sór segulbandstæki á enn eftir aö velja snældurnar í það. af þessum snældum á „króm” still- ingu með slæmum árangri en alls ekkiaötaka upp. Eins og sjá má er hægt að fá „normal” snældur fyrir innan við þriöjung af verði „metal” snældu. Krómböndin koma þarna eiginlega mittámilli. DS/þýttogstaðfært. Fiskskammtar með ostafyllingum — nýttfráFylltum fiski SF. Fylltir fiskskammtar eru nýir fisk- réttir sem nú eru fáanlegir víða í verzlunum. Fiskskammtarnir era út- búnir hjá fyrirtækinu Fylltum fiski sf, Hraunbæ 102, og eru fjórar tegundir komnar á markað sem eru allar með ostafyliingum. Ný línuýsa er notuð í réttina, öll bein tekin burt, fiskinum velt úr brauð- mylsnu, síðan er hann kryddaður. Fiskréttirnir bera heitin: Skinku og ostafylling, þá er skinka og ostur hakk- aö saman og látið inn í fiskinn. Rækju og ostafylling er rækjur og rækju- smurostur. Hvítlauksfylling hefur að geyma hvítlauksost sem er kryddaður með hvítlauksdufti og sítrónupipar en hann er settur á alla réttina. Fjórði skammturinn ber heitið Camembert ostafylling. I hverjum pakka eru 5 fiskstykki, og vegur pakkinn um 6—700 gr. Kílóið kostar 60 krónur þar af leiðandi er hver fiskbakki á verðinu 35—40 krónur. Fiskurinn er tilbúinn beint á pönnuna, steiktur á venjulegan hátt úr smjörlíki eða matarolíu, framreiddur með kartöflum, heitri sósu og hrásalati. -RR Heill frumskógur af segulbandssnældum:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.