Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 4. JUNI1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Tvískinnungur stjórnvalda í garð f riðar- hreyfinga Suður-Kórea: SLAKAÐ Á RITSKODUN I janúar síöastliðiö ár var rit- skoöun á dagblööum aö mestu hætt í Suður-Kóreu. Ritskoðun hefur veriö í gildi þar í landi skv. herlögum síðan Park Chung-Hee forseti var myrtur áriö 1977. I staö ritskoðunar koma eins konar reglur um störf blaöa- mannaog stjómvaldaumhvaðmegi fjalla oghvaö beriaðforðast. I raun hefur verið komiö á nokkurs konar „sjálfs ritskoöun” blaöanna. Rauði þráðurinn í „leiöbeiningum” er að blöðin skuli ekki birta neitt sem stofnaö geti öryggi þjóðarinnar i hættu með hliösjón af þeim mögu- leika aö Norður-Kórea ráðist suður yfir landamærin. Suður-Kóreanskur • blaðamaður sagði við kollega sinn hjá Reuter „að vitaskuld gæti stjórnin tengt svo að segja hvað sem væri við þjóðaröryggi.” Fjölmiðlar þar í landi telja þó slökun á ritskoöun vera raunverulega, því að stjómin hefur verið nokkuð hófsöm á bönn. Nokkur dæmi má nefna um hvað má fjalla um og hvað ekki. Gjarnan má fjalla um liðhlaup og flótta norðanmanna til suðurs og sömu- leiðis má gjaman birta fregnir um fangabúðir í norðri. Blátt bann er hins vegar lagt við fréttaflutningi af iiöhlaupi til norðurs og sömu sögu er að segja um fréttaflutning af vinnu- búðum fyrir pólitíska fanga í Suður- Kóreu. önnur viðkvæm mál em til dæmis viðskipti landsins við Kína og kommúnistaríki í Austur-Evrópu. Suður-kóreanskir blaðamenn eru hvergi bangnir og segjast kunna aö sigla milli skers og bám. Allt gengur vel ef ekki er um aö ræða gagnrýni á stjórn Chun, forseta seg ja þeir. Þó að langt sé í frá að ritfrelsi riki hefur ástandiö skánað mikiö. Þaö þótti tíöundum sæta nýlega, er blöö birtu greinar um mútuþægni frænda eigin- konuforsetans. Frændinn, Lee-Kyu Kwang fyrrv. hershöfðingi var handtekinn fyrir að taka við mútum frá fjárplógsmanni nokkrum sem stundaði lánastarfsanL Þetta mál var allt hið óþægilegasta fyrir bæði forsetann og hinn ríkjandi flokk: Lýðræðislega Réttlætis- flokkinn. Það var prófsteinn á slökun og á ritskoöun og Chun forseti leyfði umfjöllun um málið í blööum. Fjár- plógsmaðurinn sem hneykslinu olli er fyrrverandi varaforstjóri kóre- önsku leyniþjónustunnar og því mjög tengdur hinum rikjandi aöiljum. Enda þótt ríkissaksóknarinn hafi hreinsað Réttlætisflokkinn af öllum áburði um að vera flæktur i máliö, þá viðurkennir talsmaður hans að málið hafi skaöaö flokkinn. Stjómarand- staöan hefur krafizt afsagnar þeirra ráðherra sem ábyrgð bera á málinu en fjárplógsmaðurinn komst yfir ævintýralega fjárhæð eða milljarð dala með svindli sem tókst vegna veikleika í bankakerfinu. Sala á erlendum tímaritum hefur verið leyfð innan vissra marka. Nýlega birti bandariska vikuritiö „Newsweek” grein um að Chun forseti hefði kæft hallarbyltingu í fæðingu. Háværar raddir voru uppi um það í stjórninni að banna sölu ritsins í landinu en eftir að sölu þess hafði verið frestað í nokkra daga leyfði stjórnin sölu þess, á þeim for- sendum að ef það væri bannað þá gæfi stjórnin í skyn að eitthvað væri hæftígreininni. -ÁS —Reuter—■ Austur-Þýzkaland: Tékn friðarhrayfingar/Austur-Þýzkatandl: Ungur maðurbnytír sverðiiplóg. þetta slagorð fellur um sjálft sig. Einn þeirra lét hafa eftir sér að „Dagblöð okkar” þ.e. Austur-þýzku stjómvaldanna” hefði sagt frá því undanfarin tvö ár að friðarhreyf- ingin í vestur-hlutanum, sé fram- sækin í eðli sínu. Af hverju á þá að hindra okkur í að verja sömu sjónar- mið og hún gerir í vestrinu?.... og krefjast einnig, hér hjá okkur; aðgerða í þágu afvopnunar.” I Leipzig tóku þúsundir ungmenna þátt í dagskrá „Rokk í þágu friðar” Og þar hljómaði slagorðið: Vopnlausan frið! I kirkjum landsins ber það æ oftar við aö ung- menni rísi upp og kveöji sér hljóðs hjá kirkjugestum og lýsi yfir að „AUir sem saman séu komnir í kirkj- unni séu baráttumenn fyrir friði, raunvemlegum, vopnlausum friöi... >1 Einnig hefur veriö dreift í kirkjum plaggi sem ber þann boðskap að krefjast skuli „borgaralegrar þegn- vinnu í stað herþjónustu” og einnig að hætt verði að lesa í skólum rit sem beri lof á vopnaburð. Af þess konar lestrarefni er gnægð í austur-þýzku skólakerfi. Það er ætíð sama sagan ef atburðir eins og þeir sem greint er frá hér á undan eiga sér stað, þá er viðkomandi prestur yfirheyrður af lögreglunni. En prestamir vita aldrei neitt, gefa engin nöfn. Yfir- völd kirkjunnar hafa verið vöruð við af stjómvöldum og hafa hvatt til stillingar. „Við óttumst að þetta verði bælt niöur,” segir kirkjunnar þjónn „því ef þessu heldur áfram veröur það óhjákvæmilegt, því að austur-þýzkum yfirvöldum geöjast ekki að friðarhreyfingu, — í austri. „Dóttir hins þekkta stjórnarand- stæðings, kommúnistans Roberts Havermanns (semer nýlátinn), fékk að finna fyrir því. Franziska, níu ára gömul var beðin um að mála skriðdreka. Hún gerði eins og fyrir hana var lagt og málaöi skriðdreka í öllum regn- bogans litum, og bætti við fyrir neðan: Með skriðdrekanum em menn drepnir. Kennslukonan skipaði henni að strika út þessi orð. Franziska litla neitaði. -ÁS. Byggt á Nouvel Observateur. Friðarhreyfingu hefur skotiö upp í Austur-Þýzkalandi þó í smáum stíl sé, enn sem komið er. Nokkuð hefur borið á ungu fólki sem ber merki í barminum sem á er letrað „Breytiö sverðum í plógjárn”. Þessi setning sem tekin er úr bibUunni er orðin slagorð þar í landi. Þaö er ekki vitað með vissu hver hefur framleitt þessi barmmerki og svar ungmenna sem VOPOS (leynilögreglan) hand- tekur og yfirheyrir vegna merkisins, er gjarnan „Vinur minn gaf mér það.” Yfirvöld telja að útgáfu þessara merkja og ýmsa aðra starf- semi í þágu friðar megi rekja til evangeUsku kirkjunnar í Austur- Þýzkalandi. Víst er um það að ýmsir kirkjunnar þjónar taka þátt í friðar- hreyfingunni sem nýtur ekki náðar stjórnvalda. Má þar nefna Reiner Eppelmann, prest. Hann samdi „Berlínar-áskorunina” en inntak hennar er: Vopnlaus friður. Á skömmum tíma safnaði hann þúsundum undirskrifta. Klerkur var handtekinn og yfirheyrður varðandi þessa undirskriftasöfnun. Á sama tíma hömuðust æskulýðs- samtök hins opinbera: „Frjáls æska Þýzkalands” undir slagorðinu „Vopnaður friður”. En starfsmenn stjórnarinnar gera sér grein fyrir að K Sjálfsagt er útílokað að raunveruleg friðarhroyfing nái nokkru sinni viðiika áhrifum í austurhluta Þýzkalands og i vesturhlutanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.