Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 4. JUNI1982. Spurningin Hverja telur þú vinna heims- meistarakeppnina í knatt- spymu í sumar? Sveinbjöm Strandberg námsverka- maðnr: Vestur-Þjóöverja. Meö menn eins og Breitner og Rumminegge hljóta þeiraösigra. Hafsteinn Pétursson kennaranemi: örugglega ekki Englendingar. Ætli það veröi ekki Brasilíumenn sem standa uppi semsigurvegarar. Bergþór Baldvinsson skrifstofu- maður: Maöur vonar aö Englendingar sigri. Halldór Þórðarson verkamaður: Veit ekki. Er ekkert inni í þessu. Vilhelm Sigurjónsson nemi: Býst viö að Argentínumenn sigri. Þeir hafa knattspymusnillinginn Maradonna. Hann er sá bezti í dag. Finnbogi Finnbogasonstýrimaður: Hef tkki hugmynd um það. Gizka á Brasiliu. Þeir hafa alltaf staðiö sig vel. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur ,/ Hafnarfirði er elliheimili, Hrafnista. Þangað eða þaðan er vist þeim einum ætlað aO komast sem hafa einkabíl til umráða," segir Steinunn Jóhannesdóttir. Engar strætisvagna- ferðir að Hrafnistu í Haf narfirði? Steinunn Jóhannesdóttir skrifar: öldrunarráð — þaö er stórkostlegt nafn. Jú, þaö er ár aldraöra, ekki satt? I Hafnarfiröi er elliheimili, Hrafnista. Þangað eöa þaðan er víst þeim einum ætlaö að komast sem hafa einkabíl til umráöa. Er til of mikils mælzt aö eitthvert ráö eða nefnd reyni aö koma því í kring aö strætisvagn komi þar aö dyrunum svona 3—4 sinnum á dag ef ekki oftar — þótt ekki væri nema um helgar? Er þaö kannske of lítilfjörlegt fyrir þau háu ráö og nefndir aö hugsa um svo einfalda hluti? RokkíReykjavík: Erákvörðun kvikmyndaeftirlitsins brot á tjáningarf relsi? H.G., 4211—1589, skrifar: Eg er einn þeirra sem ekki hafa haft tíma til aö hanga 20 ár í skóla og reyna aö skilja stjómarskrána. bæta inn í myndina aðvörun í formi hljóös eöa texta svo ekkert fari á milli mála. Ég er einn af þeim sem lýsa yfir aö ég viðurkenni ekki fulikomið lýðræöi á Islandi fyrr en búiö er aö fyrirbyggja freklegan yfirgang á skoöanafrelsi og ritfrelsi. Eg er einn af þeim sem fylgdist meö því þegar Kvikmyndaeftirlitið lét banna mynd innan 14 ára en síðan var klippt úr viötal svo hægt væri að banna hana innan 12 ára. Viðtal þetta hefði örugglega komiö ungum sem öldnum tilgóða. Ég er einn af þeim sem veit aö þaö er lýðræði á Islandi en er byrjaður að efast um aö þaö sé virt. Meö því aö klippa viðtaliö úr mynd- inni Rokk í Reykjavík gengur Kvik- myndaeftirlitið framhjá homsteini lýöræðis: skoðanafrelsi og ritfrelsi. Þykir mér mjög leitt aö það skeður hjá þjóö sem sýndi það frjálslyndi aö velja sér kvenforseta. Meö því aö banna myndina gengur eftirlitiö framhjá aöilum sem berjast gegn fíkniefnum og vímugjöfum en ég man ekki betur en að ríkið, lögreglan, æskulýðsfulltrúi og hin hlægiiega úti- deild reyndi aö koma í veg fyrir að unglingar byrjuðu aö sniffa og yrðu al- gjörir hálfvitar. Nú, ef þessir aðilar em hræddir um aö boðskapurinn komist ekki til skila þá er hægt aö „MeO þviaO kllppa vlOtallO úr Rokki i Reykjavík, gengur Kvikmynda- eftiriitiO framhjá hornsteini h/OræOis: skoOanafrelsi og ritfrelsi. Þykir mér mjög leitt aO þaO skeOur hjá þjóO sem sýndi þaO frjálslyndi aO velja sór kvenforseta," segir H.G., 4211—1589. Úrborgarlífinu: Ryksugan á fullu... Á.T. skrifar: Nú þegar sumarið hefur rétt sem snöggvast tyllt sér niöur hjá þér kætist þú, tekur fram sumarfötin og spásserar niöur í bæ. Þaö er kyrrö í miðbænum og sólskiniö fær þig til þess að hægja á ferðinni. Allt í einu mætir þú hressum krökkum sem em aö háma í sig gómsætan ís í brauöformi og finnur þá til ákafrar svengdar. Því ákveður þú að gæöa þér á kræsingum veitingahússins viö Austurvöllinn. Þér líður vel langt frá öllu véla- skrölti og útvarpi og beinir athyglinni aö kyrröinni. En þegar inn í veitinga- húsið kemur glymur viö óvæntur hávaöi úr einu vinsælasta heimilistæki Islendinga, ryksugunni. Fagur stjórn- andi þessa glæsilega silfurlitaöa tækis heldur notkun þess áfram þar til staöurinn hefur veriö því sem næst dauöhreinsaöur. Hvorki fara fætur þínir né boröfélagans varhluta af þeirri hreinsun. Þetta hefur aö vonum hvorki góö áhrif á matarlystina né samræöurnar við borðfélagann. Þaö skal tekið fram aö þessir atburöir eiga sér staö á þeim tima sem staðurinn er auglýstur opinn og gestimir yfir- gefa hann fyrir auglýstan lokunar- tíma. Finnst þér ekki ráölegra aö slík þrif, sem á gólfi og stólum, fari fram eftir aö viöskiptavinir hafa yfirgefið staöinn og honum jafnframt verið lokaö? Eg efast stórlega um aö ef veitingastaður sem þessi byði upp á matseöil fyndust á honum þau óskemmtilegu systkini, há- vaði og ryk. Kóngsins Kaupmanna- höf n er f rá- bært leið- sögurit — segja ánægðar vinkonur ,Jíftir aö hafa kynnt okkur og notað leiðsögurit Fjölva, Kóngsins Kaupmannahöfn, sem hjónin Jónas Kristjánsson og Kristín Halldórsdóttir hafa tekiö saman,viljum viö eindregið lýsa þakklæti okkar fyrir frábært leið- sögurit. Viljum viö eindregið benda fólki á aö notfæra sér bókina á ferðum sínum um Kaupmannahöfn. Leiðsögurit sem þetta yrði áreiöanlega vel þegiö um fleiri stórborgir eöa aöra merka staði,” sögöu Kristín Bjamadóttir og Valgerður Guðjónsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.