Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1982, Qupperneq 26
34
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUp 4. JUNI1982.
Andlát
Siguröur Björgvin Þorsteinsson sjó-
maður, frá Aðalbóli á Jökuldal, Fann-
borg I, lézt 21. maí. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Elín Jónsdóttir, Valshamri, Álftanes-
hreppi, veröur jarðsungin frá Lang-
holtskirkju laugardaginn 5. júní kl.
10.30.
Agnes H. Kristjánsdóttir, Poulsen,
Norðurvör 13 Grindavík, er lézt að-
faranótt 26. maí, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju í dag kl. 14.30.
Lára Bjarnadóttir, Hjarðarholti Olafs-
vík, verður jarðsungin frá Olafsvíkur-
kirkju laugardaginn 5. júní kl. 14.00.
Jóhanna Bjarnadóttir, Grænukinn 18
Hafnarfirði, lézt á sjúkradeild Hrafn-
istu að kvöldil. júní.
Kristbjörn Guðlaugsson, Eiríksbúö,
Arnarstapa, Snæfellsnesi, verður jarð-
sunginn f rá Hellnakirkju laugardaginn
5. júní kl. 14.00. Athöfnin hefst með
húskveðju að heimili hins látna kl.
13.00.
Jónína H. Eggertsdóttir, Deildartúni 4
Akranesi, sem lézt í sjúkrahúsi Akra-
ness aðfaranótt 30. maí, verður jarö-
sungin frá Akraneskirkju laugardag-
inn5. júníkl. 14.30.
Pálína Krlstíana Schewing lézt 27.
maí. Hún var fædd í Vestmannaeyjum
29. nóvember 1890. Pálína giftist Gunn-
laugi Bárðarsyni en hann lézt í janúar
áríð 1981. Pálina eignaöist 4 böm.
Utför hennar verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15.
Sigríður Halldórsdóttir, Melgerði 5
Kópavogi, lézt 25. maí 1982. Hún var
fædd 5. október 1905 aö Sauðholti.
Sigríður var tvígift. Fyrri maður henn-
ar var Andrés Sigurösson en eftir-
lifandi maður hennar er Helgi Jónsson.
Sigríður eignaðist þrjár dætur. Utför
hennar verður gerð í dag f rá Fossvogs-
kirkjukL 13J0.
Tilkynningar
Skaftfellingafélagið
í Reykjavík
ætlar að fara í dagsferö um Suöurland laugar-
daginn 5. júní, ef næg þátttaka fæst. Farið
veröur frá Umferöarmiöstööinni kl. 9. Pantið
far í síma 71491,86993 eöa 14237.
Fræðslufundur
Krabbameinsfélagsins
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur á
kveðið að taka upp þá nýjung að halda opna
fræðslu- og umræðufundi um krabbamein og
krabbameinsvarnir fyrir félagsmenn og
annað áhugafólk.
Á fyrsta fundinum, sem haldinn verður nk.
mánudagskvöld, munu Sigurður Björnsson og
G. Snorri Ingimarsson, sérfræðingur í
krabbameinslækningum, flytja stutt erindi
og svara fyrirspurnum um lyfjameðferð ill-
kynja sjúkdóma og um efnið interferon.
Þá mun formaður félagsins, Tómas Á.
Jónsson yfirlæknir, gera grein fyrir væntan-
legum byggingarframkvæmdum krabba-
meinsfélaganna og áformum umauknastarf-
semi í því sambandi.
Útimarkaður
í Njarðvík
Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju heldur úti-
markað á laugardag kl. 2 e.h. á túninu við
kirkjuna.
Þar verða til sölu sumarblóm, fjölær blóm,
Enn fremur verður sýnd kvikmyndin „Frá
einni frumu”, stutt bandarísk fræðslumynd
með íslenzku tali um eðlilegan og iilkynja
frumuvöxt.
Fundurinn verður sem fyrr segir haldinn
nk. mánudag, 7. júní, og hefst kl. 20.30. Fund-
arstaður er Hótel Hekla við Rauðarárstig.
Kór Njarðvíkur
heimsækir Árnessýslu
Blandaður kór sem starfað hefur af miklum
krafti við tónlistarskóla Njarðvikur, ætlar í
ferðalag um helgina og syngja á tveim
stöðum i Ámessýslu. Á laugardag kl. 2 e.h.
syngur kórinn í Hveragerðirkirkju fyrir vist-
menn á Ási, svo og alia þá sem heyra vilja.
Síðan heldur kórinn í Skálholt og syngur þar
kl. 6 síðdegis á laugardag. Aðgangur að
söngvunum er ókeypis. Stjórnandi er Gróa
Hreinsdóttir. Vetrarstarfseminni mun ljúka
með tónleikum í Ytri-Njarðvíkurkirkju á
mánudagskvöld kl. 20.30.
Frá Leikfélagi Kópavogs
Aðalf undur Leikfélags Kópavogs verður hald-
inn laugardaginn 5. júní kl. 14 að Fannborg 2,
2. hæð. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Veitingar verða í boði félagsins. Félagar era
beðnir að mæta vel og stundvíslega.
pottablóm, kökur og kaffi.
I fyrra um svipað leyti hélt félagið svona
markað og gafst hann mjög vel, aðsókn var
gífurleg og mikið fjör.
Systrafélagið hvetur Suðumesjabúa alla
að koma á kirkjutúnið til að fá sér blóm.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sæviðarsundi 38, þingl. eign Vilhjálms Guðmunds-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaidheimtunnar í Reykjavík, Iðnlánasjóðs
og Sparisj. Rvíkur og nágr. á eigninni sjálfri mánudag 7. júní 1982 kl.
11.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á hluta í Kambsvegi 25, þingl. eign Friðriks Brynleifs-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni
sjálfri mánudag 7. júní 1982 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 84., 85. og 86. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á Engjaseli
66, þingl. eign Vaigarðs Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Helga V.
Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudag 7. júní 1982 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 84., 85. og 86. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á Bakkaseli
23, þingl. eign Guömundar I. Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu
Guðjóns Á. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudag 7. júní 1982 kl. 16.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á hluta í KötiufeUi 11, þingl. eign Gísla Jósefssonar,
fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar hri. á eigninni sjálfri mánu-
dag 7. júní 1982 kl. 15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Kemur
bíliinn
á ÖPEL-/ediLL?
GETRAUNIN
OPEL-seðill 1 birtist
á morgun.
VERTU MWASKRIFANDI
ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022.
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR HF. 3.100
TVOFOLD NYJUNG!
RJÓMASKYR ,,
Nýtt, mjúktog ólýsan- fi'
lega bragögott.
RJÓMASKYR
Próteinríkt, kalkríkt og
sérlega hollt.
Aðeins 67 h.e. í 100
grömmum.
nmr
RJÓMASKYR MEÐ
MYNTUSÚKKULAÐI
Splunkunýtt!
Hefur alla kosti Rjóma-
skyrs, en þetta nýja
myntusúkkulaðibragð
hefurðu tæpast fundið
úðurafskyri.
Aðeins 85 he. f 100
grömmum.
„hu ftiómaskyr
dagl^3.