Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1982, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR 5. JUNI1982.
Kvikmyndir________Kvikmyndir_______Kvikmyndir________Kvikmyndir Kvikmyndir
RAGTIME
Persónur Ragtime, taldar sólar-
sinnis: Lögreglustjórinn (James
Cagney), dansmærin Evelyn Nesbit
(Eiizabeth McGovern), mamma
(Mary Steenburgen), þeldökki rag-
píanistinn Coalhouse Walker
(Howard E. Rollins), arkitektinn(
Stanford Wbite (Norman Mailer),
geðsjúki moröinginn og milljóna-
mæringurinn Harry K. Thaw
(Robert Joy)„ yngri bróðir mömmu
(Brad Dourif).
— bandarí§kt þjéðlíf upp úr aldamðtum
I skáldsögu er hægt að setja efnið
fram eins og bita í púsluspili. Með
lestri sínum fær lesandinn smán
saman fram mynd og ef honum þykir
eitthvað óskýrt eða finnst hann hafa
misst þráðinn er alltaf hægt að fletta
til baka. En það er ekki hægt að
fletta til baka á hvíta tjaldinu.
Áhorfandinn þarf að geta fylgt þræði
frásagnarinnar þó hann þurfi auð-
vitað ekki að vera alveg sléttur og
snurðulaus.
Skáldskap og
raunveruleika
blandað saman
Milos Forman og handritshöfund-
urinn urðu því að velja og hafna efni
úr sögu Doctorows. Af þeim sökum
er að líkindum skemmtilegra að
lesa bókina eftir að hafa séð mynd-
ina því annars er hætt við að
áhorfandinn falli í þá gryfju að fara
að mæla hvað vanti í hvert atriði
myndarinnar af upphaflegri sögu
Doctorows. Þessi viðvörun kemur
auðvitaö alltof seint til margra aödá-
enda Doctorows því Ragtime kom út
á Islandi í prýðilegri þýðingu
Jóhanns S. Hannessonar árið 1977.
Og þegar öllu er á botninn hvolft er
það líka viss skemmtan að bera k vik-
mynd saman við bókina sem hún er
samin eftir, því þannig fæst skilning-
ur á því hvernig og hvers vegna leik-
stjórinn valdi og hafnaði úr köflum
bókarinnar.
Eins og áður segir er í Ragtime
blandað saman persónum úr raun-
veruleikanum og persónum úr
hugarheimi Doctorows. Meðal þeirra
persóna sem Doctorow sækir i raun-
verulega sögu áranna fyrir fyrra
stríð eru anarkistinn frægi Emma
Goldman (hún kemur einnig mjög
við sögu í nýjustu mynd Warrens
Beattys, Reds), fimleikamaðurinn
og töfrabragðakóngurinn Harry
Houdini, auöjöframir Henry Ford og
J.P. Morgan og dansmærin Evelyn
Nesbit.
Ýmsir atburðir Ragtime eru líka
sannleikanum samkvæmt, til dæmis
er greint frá Ameríkuför Sigmunds
gamla Freuds en aðrir atburðir
Ragtime eru tæpast úr raunveru-
leikanum þó persónurnar sem koma
við sögu í þeim hafi eitt sinn dregið
andann hér á jörð. Það er til að
mynda hæpið að fundum gamla
kapítalistans J.P. Morgans og bíla-
framleiðandans nýríka, Henry Fords
hafi nokkm sinni borið saman. Fund-
ur Morgans og Fords er líka fyrst og
fremst táknrænn, en atburðir sem
lesandanum virðast eðlilegir þó
sennilegir séu fá allt aðra þýðingu í
kvikmynd einkum vegna þess hve
kvikmyndin er í hugum áhorfenda
natúralistísk og tengd raunvera-
leikanum.
Gamlar kempur í
stórum hlutverkum
I staö þess aö persónugera hin
kapítalísku öfl með tveim mönnum
eins og Doctorow kýs að gera fer
Forman aðra leið. Fyrsti hluti
myndarinnar iðar af margskonar
fulltrúum kapítalismans, þarna er
að finna stórskrítna milljónamær-
inga, spillta lögfræðinga, miskunn-
lausa lögreglustjóra, hræsnisfulla
lækna og svo mætti lengi telja. Næst-
um allir þessara manna em komnir
að fótum fram og Forman hefur
fengið ýmsa þekkta ellilífeyrisþega
til að taka að sér hlutverk í mynd-
inni. Meðal þeirra em James
Cagney, Pat O’Brien og Norman
Mailer (ef til vill er orðum aukið að
Mailer sé kominn á ellistyrk, en það
er ekki langt í land hjá honum!).
Sagan sem færir þessa gömlu
ríkisbubba saman fjallar um hlægi-
lega en jafnframt banvæna afbrýði-
semi milljónamæringsins Harry K.
Thaw. Thaw er neyddur til að giftast
óþekktri dansmey, Evelyn Nesbit.
Evelyn hafði áöur haldiö við arki-
tektinn Stanford White og af því að
þetta löngu liðna samband fer í
taugarnar á Thaw gerir hann sér lít-
ið fyrir og skýtur White. Evelyn
vitnar eiginmanninum í hag, skilur
ánægð við hann og fær væna peninga-
fúlgu að launum. En Evelyn er ekki
lengi eigandi milljóna, hún skellir
sér út í nýtt ástarævintýri, fjölskylda
Thaws kemst að leynilegu bralli
hennar og sviptir hana lífeyrinum.
En ungi maðurinn sem skreiðuppí
hjá Evelyn og hafði svo slæm áhrif á
fjárhag hennar er úr fjölskyldunni
sem í reynd er miðpunktur kvik-
myndarinnar Ragtime. Þessi ungi
maður leiðir áhorfandann gegnum
öll lögsamfélagsins.
Ameríska
fjölskyldan
Fjölskyldan sem hér um ræðir er
engin önnur en ameríska fjölskyldan
í hnotskurn. Heimilisfaðirinn stjóm-
ar verksmiðju sem framleiðir flug-
elda og litla fána til að nota á þjóö-
hátíðardaginn og við áþekk tækif æri.
Doctorow segir sögu f jölskyldunnar
frá sjónarhóli drengs og kallar fjöl-
skyldumeðlimina einfaldlega
„pabba”, „mömmu", „yngri
bróður mömmu” og„drenginn”. Hér
er kjamafjölskyldan komin í allri
sinni dýrð, rétt áður en hún byrjar að
liðast í sundur. Þessa fjölskyldu sýn-
ir Forman með undmn og dálítilli
aðdáun en þó eins og þetta séu vemr
frá öðrum hnöttum.
Fjölskyldan finnur h'tið negrabam
í garðinum og skömmu seinna finnst
l móðirþess.Mammaákveðuraðtaka
litla blökkubamið og móður þess að
sér og þegar f aöirinn, ungur þeldökk-
ur píanisti, Coalhouse Walker að
nafni kemur í heimsókn eru allar
aðalpersónumar komnar til
skjalanna.
Efnaður negri og
írskir fátæklingar
Walker er auðvitaö rag-pianisti.
Hann er afkomandi þræla, en stoltur
og honum gengur flest í haginn.
Hann vill giftast bamsmóður sinni
og allt virðist í stakasta lagi þegar
atburöarásin tekur óvænta stefnu.
Walker á nefnilega fínan Ford T-
módel. Á leið til fundar við
unnustuna ekur hann fram hjá
slökkvistöö sem mönnuð er sjálf-
boöaliöum, írskum lágtekjumönnum
sem ekki þola að sjá negra aka um á
glansandi bifreið. Grátt gaman
þeirra vekur tilfinningar Walkers
fyrir æru sinni og frelsi. Engan
gmnar að gamansemi Iranna á
slökkvistöðinni eigi eftir að hafa
morð og hermdarverk í för með sér.
Fjölskyldan dregst smám saman
inn i atburðarásina og þegar
Coalhouse Walker hefur sett yfir-
völdunum lokakostina og hvorugur
aðilinn vill láta undan, þá tekur
pabbi að sér starf milligöngumanns.
En þegar flokkur vopnaðra lögreglu-
manna stendur andspænis blökku-
manni með sprengiefni í höndunum
eiga sáttasemjarar fárra kosta völ
og allt erfiði pabba er unnið fyrir
gýg-
Vel valið í
hlutverkin
James Cagney fer með hlutverk
hins harðsvíraða lögreglustjóra í
Ragtime. Cagney hefur oft leikið
kalda karla og hann er enn við sama
heygarðshomið þegar hann íhugar
að verða við kröfum Walkers og
afhenda honum forsprakka Iranna.
Þó Irinn sé fyrirlitlegasta persóna
myndarinnar verður fæstum um sel
þegar Cagney segir: „They tell me
you’re a worthless piece of slime”
og hyggst senda ræfilinn beint fyrir
byssukjaftinn.
Forman virðist hafa tekizt vel til
við val leikara. Líkt og Doctorow
blandar saman persónum úr ýmsum
áttum hefur Forman valið leikara úr
röðum stjarna jafnt sem þeirra lítt
þekktu. Rithöfundurinn og kjaftask-
urinn Norman Mailer leikur arki-
tektinn Stanford White, algerlega
óþekktur leikari, Robert Joy fer með
hlutverk morðingjans Harry Thaw
og leikarinn í hlutverki Coalhouse
Walker, Howard E. Rollins er einnig
ókunnur. Mary Steenburger sem
hlaut óskarsverðlaun 1980 fyrir leik
sinn í kvikmyndinni Melvin og
Howard leikur mömmu og Evelyn
Nesbit er leikinn af Elizabeth
McGovern, en hún varð þekkt fyrir
leik sinn í Ordinary People.
Bandarískir gagnrýnendur hæla
flestir myndinni í hástert og segja
hana lýsa vel anda tímabilsins sem
hún fjallar um. Brezkir gagnrýnend-
ur em heldur hógværari (að vanda).
Tónabíó hefur fengið myndina til
sýninga og þeirra verður líklega ekki
langtaöbíða.
-SKJ
Milos Forman hefur nú gert kvik-
mynd eftir sögu E.L. Doctorows,
Ragtime, og segja má að við þetta
verk hafi Forman ekki færzt lítið í
fang. Ragtime er margslungin
skáldsaga og gefur mikla yfirsýn yf-
ir ástand þjóðfélagsmála í
Bandaríkjunum upp úr aldamótun-
um síðustu. Stíll Doctorows hefur
verið orðaður við „new joumalism”.
Honum þykir takast einkar vel að
lýsa fmmbernsku f jöldaframleiðslu í
iðnaði, uppgangi kapítalisma, upp-
hafi vakningar meðai þeldökkra
manna í Bandarikjunum og upphafi
þess að bönd borgarlegu fjölskyld-
unnar tóku að losna. Allar þessar
breytingar komust á skrið á árabil-
inu frá aldamótum fram að fyrri
heimsstyrjöldinni.
Freisting
kvikmyndagerðarmanna
Doctorow hefur tekist fjarska-
lega vel að spinna saman ólíka þætti
skáldsögu sinnar. Hann blandar
saman sögufrægum persónum og
persónum sem urðu til í hans eigin
hugskoti. Sama máli gegnir um at-
burðina, þeir em ýmist fengnir úr
sögunni eða uppdiktaðir. Skáldsaga
Doctorows er oft á tíðum mjög mynd-
ræn og hefur yfir sér dáhtinn blæ
eftirsjár.
Bókin býður upp á marga
freistingu fyrir kvikmyndagerðar-
mann. Auk þess að vera myndræn á
mörgum stöðum er bókin fastbundin
ákveðnu tímabili og umhverfi og í
henni getur að líta fjölbreytt úrval
persóna. Þessir eiginleikar bókar-
innar gefa auðvitað ótal möguleika
en um leið veröur afar erfitt að koma
öllum þáttum hennar til skila í kvik-
mynd.