Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1982, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 5. JUNI1982.
Popp
Popp
Popp
Popp
Tvennir t»n-
lelkar
í Laugar •
dalshöll
áföstn*
og langar-
V.
nc
, / ht'O'Va
i.,
mm/mm
XS
A yejj „ c.syf- e/. . / A? > «%,■
£%%$>£/$$'&"/ <z%z
í?//4^>>
> /m/ÍSSíffi /
/ > X*W^»f >
/
«i#ta9#«t»
?/4sá%M'/«s
N.. >í>%< / „45^ 5
y"*' ®>d / 4 Á ■■ Jr
' M', *« >N ^
' /°<? «/„>m 4V/. N /4
4*,/° C>Ó>/WV
aS5>7» ' «^Oq 4» A?/y» ^jbfí,
**»*■&* 0,1* 2 <&
'Há, ’ W , <rj átll,f<
V.VvVÍ
/ ’<SSeV<*
>>.N
Taktu sjö náunga frá Noröur-
Lundúnum, bættu við nokkrum hljóö-
færum, löngun til þess að framleiða
hressilega danstónlist, aukinheldur
því sérstaka efni sem fyrirfinnst í
öllum stórhljómsveitum, — og hvað
hefurðu þá? .. . Ef svarið er að
klöngrast frá raddböndunum, upp í
góminn og varirnar byrja að mynda
emm, þá ertu heitur! Endar á ess og
þú hefur nælt þér í MADNESS.
Madness er skólabókardæmi um
það hvað tíminn er fljótur að líða.
Mér finnst það hafa verið í gær sem
ég heyröi þessa strákhnokka fyrst
nefnda. Mesta lagi í fyrradag. Svo er
manni sagt að þeir hafi verið
vinsælir í þr jú ár, starfað í f jögur.
Madness koma manni alltaf í gott
skap og það er ekki svo lítið hrós á
þessum síðustu & verstu tímum.
Þessi makalausa léttúð þeirra er svo
assgoti smellin, á myndböndunum
finna þeir einlægt uppá einhverju
bjálfalega skemmtilegu sem hæfir
„nöttísándinu” eins og þeirkalla tón-
list sína. Við hvert og eitt lag sem
Madne' hefur skotið upp á vin-
S'-’ óttast maður að þetta sé
a síðasta, það sé ekki hægt aö
a. jika tónlist þeirra meira. Oðara
þarf maður að éta óttann ofaní sig,
endurvekja hann síðan aftur og
þannig koll af kolli. „Nöttísándið”
lifirgóðulífi.
Nýlega kom út platan „Complete
Madness” sem er safn sextán
vinsælla laga af áöur útgefnum
plötum auk nýja lagsins „House Of
Fun”. Það lag var ekki lengi að
komast í hóp „hit”-laganna því það
trónar nú á toppi breska listans og er
þar með fyrsta Madness lagiö sem
kemstíefsta sæti!
Saga Madness sem spannar orðið
fjögur ár er nánast óslitin sigur-
ganga. Madness var stofnuð árið
1978 (þá hétu þeir til að byrja meö
The Invaders) og Madness nafnið
var fengiö úr samnefndu lagi eftir
Prince Buster. Það lag prýddi B-hliö
fyrstu smáskífunnar síösumars árið
1979. Aðallagið var „The Prince” og
þaö náði 16. sæti breska listans.
Breiðskífan „One Step Beyond”
fylgdi í kjölfarið þetta haust og af
henni nokkrar vænar smáskífur (og
ein fjögurra laga plata )sem allar
seldust vel. Haustið 1980 kom
„Baggy Trousers” og nokkru síöar
breiðskífan „Absolutely”. Af henni
uröu nokkrar smáskífur sigursælar.
I mars 1981 hófu Madness gerð
kvikmyndar „Take It Or Leave It”
sem er heimildarkvikmynd um
bernsku hljómsveitarinnar. Smá-
skífan „Gray Day” kom út um vorið
og ,,Shut Up” um haustið. Þriðja
breiöskífan, „Seven” kom út síöasta
haust og frumsýning á kvikmyndinni
fylgdi á eftir. Þá kom út lagið „It
Must Be Love”, síöan „Cardiac
Arrest” og nú í sumarbyrjun „House
Of Fun” sem fylgir með á sextán
laga breiöskífunni „Complete Mad-
ness”.
—Gsal.