Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR18. JUNI1982. 19 Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina Tónleikar Boris Christoff: Viðburður sem ekki verður endurtekinn Bassasöngvarinn frægi, Boris Christoff, kom til landsins á þriðjudag og mun halda tónleika í Laugardalshöll á sunnudaginn. Sinfóníuhljómsveitin mun leika á tónleikunum og verður Gilbert Levin stjórnandi hennar. Christoff mun á tónleikunum syngja hluta úr þekkt- ustu óperuhlutverkum sínum, meðal annars, söng Filippusar II. úr óperunni Don Carlos eftir Verdi og dauða Boris keisara úr óperunni Boris Godunov eftir Mussorgsky. Boris Christoff er fæddur í Sofia í Búlgaríu og er nýbúinn að halda upp á sextíu og þriggja ára afmælið. Afi Christoffs og faðir voru báöir þekktir söngmenn og Boris hóf ungur aö syngja í kór áhugamanna, Gosula kórnum. Arið 1942 hóf hann svo söngnám á ttalíu en varð aö hverfa þaðan vegna stríðsástandsins. Hann fór til Salzburg 1943 og hóf söngnám þar en sneri aftur til Italíu og fyrri kennara sins, Maestro Strachari, þegar stríðinulauk. Söngferill Christoffs má heita óslitin sigurganga. Hann hefur sungið í öllum helztu. óperuhúsum Evrópu og Bandaríkjanna. Gagnrýnendur hafa keppzt við að hlaða á hann lofi og þótt hann eiga fáa sina líka í söngmenntinni. Islendingum gefst einstakt tæki- færi til að hlýða á Boris Christoff á sunnudagskvöldið í Laugardaishöll klukkan 17:00. Á efnisskránni hjá Christoff og Sinfóníuhljómsveit Islands verða verk eftir Mozart, Verdi, fyrir hlé, en eftir hlé er dag- skráin helguð rússnesku tónskáldun- um Glinka, sem kallaður hefur verið faðir rússneskrar óperu, Tchai- kovsky og Mussorgsky. -SKJ. Leiklist Þjóðleikhúsið um helgina: Aðeins ein sýning verður í Þjóöleikhúsinu um þessa helgi og verður það sýning á Meyja- skemmunni, eftir Franz Schubert á laugar- dagskvöldið. Eru þá aðeins tvær sýningar eftir á þessari vinsælu óperettu, en búið er að sýna verkið tuttugu sinnum. Með helztu hlut- verkin í sýningunni fara Sigurður Björnsson, Katrín Sigurðardóttir og Júlíus Vífill Ingvars- son. Tilkynningar Norræna félagið Eins og undanfarin ár verður í sumar haldið Norrænt æskulýðsmót — Nordisk ungdoms- treff 1982 —. Fer mótið aö þessu sinni fram í Noregi dagana 7.—14. ágúst nk. Mót þessi eru haldin og skipulögð af nor- rænu æskulýðssamtökunum, og hafa lands- samtök í sérhverju Norðurlandanna veg og vanda af mótinu til skiptis. A síöastliðnu sumri var slikt mót haldið í Finnlandi og þá i fyrsta sinn með þátttöku frá Grænlandi svo og öllum hinum Noröurlöndunum. Á þessum æskulýðsmótum gefst gott tæki- færi til kynna milli norræna ungmenna og er þátttaka öllum heimil sem náö hafa 15 ára aldri. Mótsstaðurinn í ár er á strönd Þelamerkur- fylkis í bænum Kragerö við vestanverðan Oslófjörð. Ráðgerð er hópferð frá tslandi og veitir skrifstofa Norræna félagsins í Norræna húsinu v/Hringbraut allar nánari upplýsingar en þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt skrifstofunni fyrir20. júní nk. Sími 10165. Norræna félagið Vinabæjarferð til Finnlands 30. júní til 7. júlí 1982. Á vegum Norræna félagsins verður farin vinabæjarferö til Finnlands í sumar. Þangað fara þátttakendur til 5 bæja sem eiga vina- bæjatengsl hér. Hluti af hópnum mun dvelja i Helsingfors, en flogið verður beint þangað. Þá koma til landsins meö sömu ferð gestir frá Finnlandi sem heimsækja 12 bæi hér á landi sem eru i vinabæjartengslum við finnska bæi. Er þetta liður í að auka ferðalög um Norð- urlönd, en árið 1982 er norrænt ferðaár. Vegna forfalla eru enn nokkur sæti laus í þessa ódýru og áhugaverðu ferð. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu félagsins i síma 10165. Húsmæðraorlof Kópavogs verður á Laugarvatni dagana 5.—12. júlí. Tekið verður á móti greiðslu 25. júní í Félags- heimili Kópavogs, 2. hæð, frá kl. 16—18. Nánari upplýsingar veita Rannveig í síma 41111, Helga 40689 og Katrín 40576. Leiksýning helgarinnar: Beint úr óhrjálegum veruleikanum — „Skilnaður” eftir Kjartan Ragnars á Listahátíð Á laugardagskvöld kL 20.30 veröur frumsýnt í Iönó splunkunýtt leikrit eftir Kjartan Ragnarsson, ,,Skilnað- ur.” önnur sýning verður á sunnu- dagskvöld, en síöan veröur leikritið geymt til hausts og þá sýnt áfram í Iönó. Leikritiö er hörkuspennandi frá upphafi til enda. Ekki er rétt að ljóstra neinu upp um efni þess. Við látum nægja að segja aö þarna ger- ast óhrjálegir atburðir, en ekki eru þeir heilaspuni höfundar heldur sótt- ir beint í fjölmiöla. Leikurinn er inn- legg í umræðu um beizkan veruleika sem alltof margir kannast við. Sviðsetningin er mjög nýstárleg. Leikiö er á miöju gólfi áheyrendasal- ar, en leikhúsgestir sitja allt um kring í upphækkuöum sætum, einnig á sviðinu þar sem sýningarnar fara venjulega fram. Fjögra rása hljóð- kerfi er hér notaö í fyrsta sinn viö leiksýningu í Reykjavík. Gefur þaö möguleika til að láta leikhljóð óma úr öllum hornum salarins i einu. Höfundur leikstýrir verkinu sjálf- ur. Leikmynd og búninga hefur Steinþór Sigurðsson gert og spáum viö því aö hvort tveggja muni vekja athygli, sem og fjórrödduö leikhljóö Áskels Mássonar. Þá annast Daníel Williamsson lýsingu. Guörún Ásmundsdóttir og Jón Hjartarson leika hjónin sem skilja, en Sigrún Edda Bjömsdóttir dóttur þeirra. Ennfremur fara Soffía Jakobsdóttir, Aöalsteinn Bergdal og Valgeröur Dan með stór hlutverk .ihh Af æfingu á „Skilnaði” Kjartans Ragnarssonar. Kvenfélagið Seltjörn minnir á ferð til Þykkvabæjar með eldri bæjarbúum laugardaginn 19. júní. Ferðalög Útivistarferðir Dagsferðir sunnudaginn 20. júní: a. kl. 8.00, Þórsmörk. Verð 250 kr. b. kl. 13.00. 11. ferð á Reykjanesfólkvang: Selatangar. Verð 150 kr. frítt f. böm m. full- orðnum. Farið frá BSt, vestanverðu. Mánudagur 21. júní kl. 20.00. Sólstöðuferð í Viðey. Leiðsögumaður Lýður Bjömsson, sagnfræðingur. Verð 90 kr. Frítt f. böm m. fullorðnum. Brottför frá Sundahöfn (komhlaðan). Miðvikudagur 23. júní kl. 20.00. Áttunda Jónsmessunæturganga Útivistar. Sumarleyfisferði: a. öræfajökull. 26,—30. júní. (mástytta). b. Esjuf jöU — Mávabyggðir. 3.-7. júlí. e. Homstrandir. Margir möguleikar. SJÁUMST. Útivist HELGARFERÐIR: Föstudagur 18. júní. 1. Þórsmörk. Gist í nýja Útivistarskálanum í Básum. Gönguferðir f. aUa. Útivist 2. EyjafjaUajökuU, 1666 m. Hámark 12 þátttakendur. GistiBásum. Laugardagur 19. júní. Suður um Reykjanesfólksvang. Bakpokaferð (göngutjöld) Brottför kl. 9.00. Góð æfing fyrir lengri ferðir. Sjáumst. Uppl. og farseðlar á skrifstofunni, Lækjar- götu6a,s. 14606. Kjarvalsstaðir: r r ISLENZK TONVERK Tvennir tónleikar verða haldnir á Kjarvalsstööum um helgina. Á iaugardaginn veröa flutt verk eftir Hafliða Hallgrimsson, en á sunnudag eru tónsmíöar Þorkels Sigurbjörns- sonar á dagskrá. Þetta eru síðustu tónleikarnir á Kjarvalsstööum í tengslum viö Listahátíö. Á tónleikunum á morgun mun Halldór Haraldsson leika .IFimm stykki fyrir píanó” eftir Hafliða Hallgrímsson. Nora Kombluhe selló- leikari, Oskar Ingólfsson klarínettu- leikari og Snorri S. Birgisson píanó- leikari leika síöara verkiö á tón- leikunum, en þaö ber nafnið „Brunnu beggja kinna björt ljós” og er eftir Guðmund Haf steinsson. A sunnudaginn veröa leikin tvö verk eftir Þorkel Sigurbjömsson. Olöf K. Haröardóttir syngur „Níulög við ljóö eftir Jón úr Vör” við undir- leik tónskáldsins sjálfs. Síöara verk- iö á efnisskránni er „Petits Plaisirs” smáglens). Flytjendur þess eru Rut Ingólfsdóttir fiöluleikari, Unnur María Ingólfsdóttir fiöluleikari, Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og Höröur Áskelsson sem leikur á sunnudag hefjast báöir klukkan 17-00. -SKJ „Fimm stykki fyrir pianó” eftir Hafliöa Hallgrímsson verða flutt á Kjarvalsstöðum á morgun. sembal. Tónleikamir á laugardag og Þorkell Slgurbjörnsson. Tónleikarnlr á Kjarvalsstööum á sunnudag verða helgaðir verkum hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.