Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1982, Blaðsíða 2
DV. FÖSTUDAGUR 27. ÁGUST1982. Sjónvarp Heimilisfang óþekkt, sjónvarp kl. 22.00 föstudag 3. sept. Bandarisk mynd sem gerist á uppgangstimum nasista i Þýskalandi. Ralph Stanley og Clinchfjallastrákarnir, sjónvarp kl. 21.00 laugardag 4. september. Blágrásatónlist i Waterlooþorpi. Fjárhættuspilarinn, sjónvarp kl. 22.10 laugardag 4. september. Mynd um fjárhættuspilara. Meðal leikara Omar Sharif, Jose Ferrer, Hope Lang og Oallas-drottningin Victoria Principal. SJONVARP KL 23.30, LAUGARDAG - Ottinn nagar sálina: Óttinn nagar sálina Mynd eftir Rainer Werner Fassbinder Sjónvarpið sýnir annað kvöld þýsku bíómyndina Ottinn nagar sál- ina (Angst essen Seele auf). Leik- stjóri myndarinnar er enginn annar en sá öndvegishöldur Rainer Werner heitinn Fassbinder. Aöalleikarar í myndinni eru Birgitte Mira, E1 Hedi Salem og Bar- bara Valentin. Myndin var áöur sýnd í sjónvarp- inuíapríll977. Fassbinder geröi þessa mynd árið 1974 og hefur hún hlotiö mjög góða dóma. I stuttu máli er efni hennar um Emmi, roskna ekkju sem á uppkom- in böm. Hún kynnist ungum verka- manni frá Marokkó og giftist honum þrátt fyrir andstööu barna sinna og vina. Leikstjórann, Rainer Wemer Fassbinder, þekkja flestir hér á landi. Hann lést sem kunnugt er svip- lega hinn 10. júní síöastliöinn. Rainer Werner Fassbinder fæddist hinn 31. maí 1946 og haföi því nýlega haldið upp á 36. afmælisdag sinn er hann dó. I grein um Fassbinder látinn hér í blaöinu hinn 12. júní síöastliöinn sagöi Baldur Hjaltasonm.a. „Líktog aörar myndir fmmkvöðla nýbylgj- unnar þá eru myndir Fassbinders í nánum tengslum við raunveruleik- ann og þaö sem er aö gerast í kring- um okkur. 1 myndum sínum lagöi Fassbinder áherslu á aö lifið sé eng- inn dans á rósum og aö fólk verði því oft og tíöum aö hafa æöi mikið fyrir því aö komast án mikilla áfalla gegnum lífiö. Einnig var Fassbinder óhræddur viö aö stinga á kýlum þjóö- félagsins og taka fyrir efni sem aörir leikstjórar þorðu ekki að snerta viö. Fassbinder var alltaf vakandi fyrir vandamálum sérhópa í þjóðfélaginu, hópa sem oft og tíðum er útskúfaö af samborgurum sínum.” Og víst er um þaö aö ekki er al- gengt myndefni líf skúringarkonu sem aö manni sínum látnum tekur upp samband viö verkamann frá Marokkó. ás. Til hægri: Rainer Wemer Fassbind- er (1946—1982). BÓK f BLAÐFORMI Varnarrœða gegn ragnarökum. Bls. 38 JJndrahundarmr frd Border- hæðum. __ Bls. 32 Hlaupagarpurinn sem keppti við póstvagna Bókin: Mdttur hugarorkunnar. Bls. 81 J00 Skop............................. 2 Þau gömlu, góðu sumur............ 3 Kuwait er Mídas arabaríkjanna . . 8 Völundarhúsið.................... 16 Heimsmet er ekki allt............ 17 Leitin að orkunni................ 21 Frelsisstyttan og höfundur hennar............. 31 Varnarræða gegn ragnarökum: 1. Fólksfjölgun er af hinu góða 38 II. Hungurspár................. 42 Buggy kominn til Sovét........... 46 Hugsun í orðum .................. 50 Undrahundarnir frá Border-hæðum................ 52 Úrvalsljóð................... 59 Nýttflóð......................65 Úr heimi læknavísindanna ..... 68 Hlaupagarpurinn sem keppti við póstvagna........... 71 Lækning fyrir deyjandi þjóðvegi . 75 Máttur hugarorkunnar......... 81 Viljinn dregur hálft hlass.......111 Martröð undir Mississippi...115 Af síðum jafnréttisbaráttunnar. . 122 Hugsuníorðum ................124 Laugardagur 4. september 16.00 íþróttir. Umsjónarmaður: Bjarni Felixson. 19.00 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingarogdagskrá. 20.35 Löður. 69. þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þýðandi: Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Ralph Stanley og Clinchfjalla- strákarair. Bandarískur þjóðlaga- þáttur frá Blágrashátíöinni í Waterlooþorpi. Þýðandi: Halldór Halldórsson. 21.30 Hveraig er þetta hægt? Hvar sem kvikmyndahetjur bjóöa háska birginn hefur kvikmynda- tökumaöur líka verið. Þessi mynd fjallar um einn þann djarfasta úr þeim hópi, Leo Dickinson, sem hefur kvikmyndaö marga svaðil- för. Þýðandi: Björn Baldursson. Þulur: Ellert Sigurbjörnsson. 22.10 Fjárhættuspilarinn. (Pleasure palace). Ný bandarísk sjónvarps- kvikmynd. Leikstjóri: Walter Grauman. Aðalhlutverk: Omar Sharif, Jose Ferrer, Hope Lang og Victoria Principal. Myndin er um fjárhættuspilara í Las Vegas sem teflir á tvær hættur, bæöi í spilum og ástum. Þýðandi: Jón O. Edwald. 23.45 Dagskrárlok. Kvikmyndagerðarmaðurinn Carl Dreyer, sjónvarp kl. 22.45 sunnudag 5. sept. Sunnudagur 5. september 18.00 Sunnudagshugvekja. 18.10 Ævintýri hvutta. Bandarísk teiknimynd um hvolpinn Pésa í nýjum ævintýrum. Þýöandi: Guöni Kolbeinsson. 18.35 Náttúran er eins og ævintýri. 4. þáttur. Skógar og tré, kýr og hestar í haga er efniviöur þessa þáttar. Þýöandi: Jóhanna Jóhannsdóttir. Þulur: Katrín Árnadóttir. (Nordvision — Norska sjónvarpiö). 19.00 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingarogdagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Umsjónarmaöur: Magnús Bjam- freösson. 20.50 Ég vil stilla mína strengi... Sænsk mynd um Norrænu unglingahljómsveitina, tekin í Lundi í fyrrasumar. Meðal 85 ung- menna af Norðurlöndum var þar efnilegur 14 ára fiðluleikari úr Garöabæ, Sigrún Eðvaldsdóttir, og beinist athyglin ekki síst aö henni. Þýöandi: Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Sænska sjón- varpið). 21.50 Jóhann Kristófer. Fimmti hluti. Efni fjóröa hluta: Jóhann Kristófer dregur fram lífiö í París meö píanókennslu og önnur tæki- færi í tónlistinni ganga honum úr greipum. Þá kynnist hann Colettu, sem kemur honum á framfæri viö heldra fólkiö. Ríkur stjórnmála- maður kostar sýningu á óratórí- unni Davíö, en hún veldur bæöi al- menningi og höfundi mestu von- brigðum. Þýðandi: Sigfús Daöa- son. 22.45 Kvikmyndageröarmaöurinn Carl Dreyer. Fyrri hluti. Bresk- dönsk heimildarmynd um ævi og verk Carls Th. Dreyers sem var brautryöjandi í danskri kvik- myndagerð. Fyrri hlutinn Iýsir æsku Dreyers og þeim áhrifum sem hún hafði á ævistarf hans. Þýöandi og þulur: Hallmar Sigurðsson. (Nordvision — Danska sjónvarpiö). 23.40 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.