Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1982, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1982, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 27. ÁGUST1982. Sýmngar — Tonleikar — Bækur Kvikmyndir BING & GRONDAHL KYNNIR FJÖLBREYTNIPOSTULÍNS Dönsku postulínsverksmiöjurnar Bing & Grondahl opnuöu í gær list- sýningu aö Kjarvalsstööum. Á sýningunni getur að líta sjaldgæfa postulínsmuni, muni eftir íslenska listamenn, verðmætt safn jólaplatta og verk eftir nútímalistamenn. Sýningin er fyrsta listsýning Bing & Grondahl hér á landi en áöur hefur fyrirtækið haldiö hér sölusýningar. Á sýningunni á Kjarvalsstöðum eru fáeinar styttur gerðar eftir högg- myndum Bertels Thorvaldsen. Stytt- umar eru úr ómáluöu og óglerhúö- uðu biskvípostulíni, en fyrstu munim- ir sem Bing & Grondal framleiddu voru einmitt munir eftir Thorvald- senafþessutagi. Heildarsafn jólaplatta Bing & Grondahl hefur veriö hengt upp á vegg á Kjarvalsstööum. Athygli vekur aö þama er að finna nokkra platta sem hafa verið framleiddir sérstaklega f yrir Islandsmarkaö. Á ganginum fyrir framan Vestur- . sal Kjarvalsstaða eru sýndir munir sem Bing & Grondahl fjöldafram- leiðir eftir verkum nútímalista- manna. Margir þessara muna em alger andstæöa bláu postulínsstytt- anna sem fyrirtækið er þekktast fyrir. Þessi hluti sýningarinnar ætti því að koma þægilega á óvart. Meöal nýjunga í framleiöslu verksmiöj- anna eru veggflísar eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur, eða Rúnu. Munirnir frá Bing & Grendahl eru handskreyttir enn þann dag í dag og því em engir tveir munir nákvæm- lega' eins. Einn af skreytingamönn- um Bing & Grondahl hefur flutt verk- stæði sitt til Islands í tilefni af sýningunni og þar gefst fólki tæki- færi til aö sjá stellið Empire hand- skreytt. Tólf fyrirtæki keppa í boröskreyt- ingum á Bing & Grondahl sýning- unni. Sýningargestir geta því aflaö sér nýrra hugmynda aö borðskreyt- ingum. Á meöan Bing & Grondahl sýningin stendur em fáanlegir pappadiskar til aö nota í samkeppni um bestu diskaskreytinguna. Diskamir fást hjá öllum umboösmönnum Bing & Grondahl og hver búð veitir styttu í fyrstu, önnur og þriöju verðlaun. Bing & Grondahl sýningin stendur aöeins í fimm daga og henni lýkur næstkomandi mánudagskvöld. Sýningin er opin alla dagana frá klukkan 14 til 22. -SKJ. Viltu skoða Þórsmörk eða ganga með Hengladalsá? Fjölbreytnin í listmunum frá Bing & Grendahl er mikil. Hér sést sýnishorn af hvítum styttum sem sýndar era á Kjarvalsstöðum. DV-mynd Þó. G. Heimsfræg andlit í Lista- safni alþýðu Verk franska ljósmyndarans Denise Colomb em nú til sýnis í Listasafni alþýðu. Áriö 1948 hófst ljósmyndaferill Colomb og í fyrstu tók hún aðeins fjölskyldumyndir jafnframt því sem hún æföi sig í myrkraherberginu. Þannig kynntist hún möguleikum t jáningarmiðilsins. Nokkmm árum seinna sá skáldið Antonin Artaud myndir Denise og sat fyrir hjá henni. Kynni hennar af skáldinu uröu afdrifarík því eftir aö hún myndaði þaö hóf hún aö ljós- mynda ýmsa heimsþekkta lista- menn. I ljósmyndum sínum af listamönn- ; um reynir Denise Colomb aö höndla „falinn sannleika” sem er í senn , listamaöurínn og verk hans. I formála að sýningarskrá fyrir I sýningu Colomb er vitnað til um- jmæla hennar um iistgreinina ljós- ; myndun: „Því eins oghún segir sjálf þá er túlkun og tjáning ljósmynd- arans ekki „uppfinning í eiginlegri merkingu heldur umfram allt ákveö- iö val, sem getur allt eins verið leif tursýn augnabliksins.” A sýningunni í Listasafni alþýðu getur aö líta ljósmyndir af mörgum heimsfrægum manninum. Meðal þeirra má nefna: Chagall, Braque, Miro, Lansky, Le Corbusier, Picasso, Max Ernst og þannig mætti lengitelja. Sýningin í Listasafni alþýðu er : opin frá klukkan 14 til 22, en henni 1 lýkur nú á sunnudagskvöld. -SKJ Aðalferð Utivistar um helgina verður á Sprengisand. Lokiö veröur við gerð Hallgrímsvörðu. Byrjað var á henni í fyrra. Hún er reist til heiöurs Haligrími Jónassyni, kenn- ara og rithöfundi. Hin helgarferð Utivistar er í Þórs- mörk. Þar verður gist í skála félags- ins í Básum. Lagt verður af stað í báöar ferðirnar frá Umferðarmið- stööinni klukkan 20 á föstudags- kvöld. Á sunnudaginn verða tvær ferðir á vegum Útivistar. Klukkan 8 verður lagt af stað í Þórsmörk. I Hvalfjörð verður fariö klukkan 13. Þar verður gengið á Þyril. I dagsferðimar , klukkan 13. Lagt verður af stað frá irnar og er heimkomutími um kvöld- Umferðarmiðstöðinni í allar ferð- matarleytiðásunnudag. -GSG. , verður einnig lagt af stað frá Umferðaimiðstööinni. Heimkomutími hjá Utivist er um kvöldmatarleytiö á sunnudag úr öilum ferðunum. Ferðafélag Islands fer í fjórar helgarferðir klukkan 20 á föstudags- kvöld. Farið veröur í Þórsmörk. ' Einnig verður ferð í Landmanna- ; laugar og Eldgjá. Þriðja ferð Ferða- ; félagsins er Fjallabaksleið syðri að Álftavatni. Að lokum verður fjórða ‘ helgarferðin á Hveravelli, með við- komu í Hvítárnesi. Er þetta síðasta ferð sumarsins á þessar slóðir. Á sunnudaginn verða tvær dags- i férðir á vegum Ferðafélagsins. Sú ; fyrri er í Brúarskörð og Rauðafeli. Lagt verður af stað klukkan 9. I seinni ferðinni veröur gengið með- fram Hengladalaá og hefst sú Denise Colomb tók þessa mynd af fransk-ungverska myndiistarmanninum Vasarely árið 1967. Ferðalög

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.