Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1982, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1982, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER1982. 19 t d !, 'i Myndlist Myndlist — Skák — Myndlist — Tónleikar ÍI' OVISSUFERD” EÐA BERJAFERD Á SNÆFELLSNES Ferðafélag Islands fer í Þórsmörk, klukkan átta á laugardagsmorgun. Vegna myrkurs verður ekki farið á föstudagskvöld eins og verið hefur i sumar enda ámar tilalls vísar. ; —------^ - A föstudagskvöld klukkan 20 legg- ur Ferðafélagið upp í þrjár helgar- ferðir. Fyrsta skal telja „óvissu- ferð”. Veit þá enginn nema farar- ; stjórinn hvert haldið verður. Einnig 1 verður farið í Landmannalaugar og , Eldgjá. Þriðja helgarferðin er <• Fjallabaksleið syðri að Alftavatni. Tvær dagsferðir verða á vegum J Ferðafélagsins á sunnudag. Sú fyrri hefst klukkan 9. Verður farið á Hlöðufell og Hlöðuvelli eftir línuveginum norðan Skjaldbreiðs. Seinni dagsf erðin verður farin klukk- H an 13. Þá verður gengið á Skálafell : sunnan Hellisheiðar. Heimkomutími úr öllum ferðum Ferðafélagsins er um kvöldmatar- leytið á sunnudag. Lagt er af stað frá Umferðarmiðstöðinni. A vegum Utivistar verður farið í helgarferð á Snæfellsnes. Er ferðin hugsuð sem berja- og skoðunarferð. Gist verður að Lýsuhóli í Staöar- sveit. Utivist fer einnig í Þórsmörk. I báöar ferðimar verður lagt af stað klukkan 20 á föstudagskvöld. Utivist verður með tvær dagsferðir á sunnudag. Sú fyrri hefst klukkan 10.30. Verður gengið á Hengil, yfir Sporhelludal og i Grafning. Klukkan 13 verður svo lagt af stað i aðra ferö í Grafning og á Nesjavelli. Um er að ræða létta gönguferð fyrir alla. Utivist kemur úr öllum ferðum sínum um kvöldmatarleytið á sunnu- dag. Lagt er af stað frá Umferðar- miöstöðinni — vestan megin. -GSG. Sören Sass arkitekt, Janus Paludan sendiherra, frú Dyveke Helsted forstöðumaður Thorvaldsenssafns, Bjarae Jöraes, Eva Henchen og Sören Rasmussen safnverðir vlð lágmynd Thorvaldsens „Nóttin” sem gerð var i Róm áriðj 1815. “ DV-mynd: Bj. Bj. Thorvaldsen á Kjarvalsstöðum r_j__ I,_I__ ■ r r I «v Bertel Thorvaldsen var einn fræg- asti listamaöur Evrópu um sina daga. Næstkomandi föstudag verður opnuð yfirlitssýning á verkum hans að Kjarvalsstöðum. Sýningin kemur frá Thorvalsenssafni i Kaup- mannahö&i. Þetta er í fyrsta sinn í 134 ára sögu Thorvaldsens- safns sem staðið er að sýningu á verkum hans á eriendri grund og jafnframt í fyrsta sinn sem haldin er sýning á verkum hans hér á landi. Bertel Thorvaldsen var íslenskur í föðurætt, sonurGottskálks Þorvalds- sonar tréskuröarmanns, en móðir hans var dönsk og ólst hann upp í Danmörku. Hann nam dráttlist og höggmyndalist í Danmörku og síðar í Rómaborg þar sem hann bjó lengst af ævinnar. Hann varð fyrir miklum áhrifum af fornrómverskri list og varð einn helsti frumkvöðull ný- klassísku stefnunnar. Eftir 40 ára dvöl í Róm fluttist Thorvaldsen aftur heim til Kaupmannahafnar 1838 og lést þar 1844 fjórum árum áður en safn hans var opnað. A Thorvaldsenssafni eru 860 verk en mikill f jöldi verka hans er dreifð- ur viða um lönd. Af verkum hans hér á landi er til dæmis skírnarfonturinn í Dómkirkjunni sem hann „gaf ætt- jörð sinni” eins og segir í áletrun á fontinum frá 1827, enda fór hann aldrei i grafgötur um uppruna sinn. Til Islands kom hann þó aldrei. A þúsund ára afmæli Islands- byggðar gaf Kaupmannahafnarborg landsmönnum sjálfsmynd Thorvald- , sens og stóð hún fyrst á Austurvelli en var árið 1931 flutt yfir í Hljómskálagarðinn. Meðan á sýning- - unni stendur prýðir styttan garð Kjarvalsstaða. Á sýningunni er einn- ig brjóstmynd af Jóni Eiríkssyni konferensráði úr eigu Þjóðminja- safnsins og marmaramynd af Gany- medesi sem Listasafn Islands á. öll önnur verk, 75 talsins, koma frá Thorvaldsenssafninu í Kaupmanna- höfn og er sýningarsvæðinu á Kjarvalsstöðum skipt i herbergi sem líkjast sölum safnsins í smækkaðri mynd. Hugmyndina að safninu átti sendi- herra Dana á Islandi, Janus Paludan, sem er mikill aðdáandi Thorvaldsens. Frú Dyveke Helsted forstööumaður Thorvaldsenssafns hefur unnið að uppsetningu sýningarinnar ásamt Sören Sass arkitekt og safnvörðunum Evu Henchen, Bjarne Jömæs og Sören Rasmussen. Af hálfu Islendinga hafa' unnið Júliana Gottskálksdóttir list- fræðingur og Stefán Halldórsson ásamt Þóru Krist jánsdóttur listráðu- nauti Kjarvalsstaöa og fleirum. I tilefni af sýningunni hefur veriö gefið út veglegt rit og er Kristján Eldjám fyrrverandi forseti einn af höfundum þess. Kristján er sérstakur vemdari sýningarinnar ásamt Ingiríði drottn- ingu. Við opnun sýningarinnar munu Einar Hákonarson stjómarformaöur Kjarvalsstaða og Bent Nebelong stjórnarformaður Thorvaldsens- Astarguðinn Amor og bln mennska stúlka Psykke hafa sameinast aftnr og lyftir hún skál með ódáinsvíni að vörum sér. DV-mynd: Bj. Bj. safns og borgarstjóri i Kaupmanna- höfn flytja ávörp en síðan mun for- seti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, opna sýninguna. Sýningin verður á Kjarvalsstöðum í tvo mánuði og opin daglega frá kl. 14—22. Aðgangur er ókeypis. -gb.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.