Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. ,, Ef brögð voru í tafli hefði þurft tvo ti V9 — segir verkf rædingur sem fenginn var að Saurum til ad finna vísindalegar skýringar á fyrirbærunum „Eg er efagjam á öll hindurvitni og hjátrú. Og ég reyndi aö skoöa máliö meö opnum huga, enda var ég fenginn aö Saurum til aö athuga hvort vísindalegar skýringar fynd- ust á fyrirbærunum. En þaö geröist ekkert meöan við stöldruöum þarna viö þessa tvo daga, svo viö gátum ekki slegiö neinu föstu.” Þetta sagöi verkfræöingur sem ekki vill láta nafns síns getiö af per- sónulegum ástæöum. Menn voru fengnir aö Saurum frá Raunvísinda- stofnun Háskólans og Orkustofnun til að kanna hvort vísindalegar skýr- ingar mætti finna á hræringunum noröur í Skagahreppi. Vísindamennimir dvöldu tvo daga að Saurum. I samtölum viö heimilis- fólk kom fram aö þaö voru einkum húsmunir, sem stóöu upp viö veggi hússins, er vom á hreyfingu. Vís- indamennirnir settu upp jaröskjálfta- mæli inni í húsinu og geröu svo til- raunir. Þeir til aö mynda hoppuðu í kringum húsiö og viö það kom hreyf- ing á skjálftamælinn. Húsiö stendur á sjávarkambi og þeir komust aö því að nánast holt var undir húsinu, en þaö haföi verið byggt á gömlum rekadrumbum. Húsið hallaði fram og virtist vera aö síga niður kamb- inn. Og ef mikil spenna myndaðist i undirstööunum við sigið væri ekki óliklegt aö rekadrumbamir gætu skroppið til. Þau högg gæti leitt út í hliðarstoöir hússins, nægilega mikiö til að valda þessum hræringum. Ernnig voru þeir meö infrarauöan kiki sem hægt var aö sjá með i myrkri. „Þótt við hefðum ekki oröiö varir viö neitt þessa tvo daga, sem við dvölduin þarna, var engin ástæða til aö draga frásagnir fólksins í efa, enda heiöarlegú- íslenskir sveita- menn er hlut áttu aö máli,” sagöi verkfræðingurinn. — En hvaö heldur þú aö þarna hafi gerst? „Þaö er auðvitaö óráðið mál, en ég er sannfærður um og þaö var eigin- lega alveg ljóst aö ef um plat hefur verið að ræöa hefur þurft samvinnu tveggja til. Hins vegar er víöa skráð í sögusögnum að ef fólk er í einhverri geðshræringu fari einhverjir hlutir á borö viö þessa að gerast. Og þar komum við aö svokölluðu „polter- geist”, það er aö segja aö eins og allir vita gefur heilinn frá sér ákveðnar bylgjur og þannig getur hugur manns haft áhrif. J.B. Rhine, prófessor við háskólann í Indiana, hefur gert rannsóknir á þessu. Sumir trúa á þetta, aörir draga í efa eins og gengur. Til sæmis var sú tilraun gerö aö á höfuð stúlku voru sett rafskaut sem tengd voru magnara er aftur var tengdur viö skerm og á honum var punktur einn. Ef stúlkan einbeitti sér nógu mikiö gat hún fært til punktinn með hugsuninní einni saman. Auðvit- að er svona lagaö aldrei óvefengjan- legt. En í þessu sambandi var talað um að gamla konan vildi komast frá Saurum, um að ræöa einhvers konar duldar langanir og viö þaö hafí hrær- ingamar byrjað. En hvaö svo sem þarna hefur gerst er hugsanleg skýring sú aö húsiö hafi hægt og sígandi veriö aö renna til á kambinum og við það hafi myndast spenna í undirstööunum og bitarnir hrokkiö til,” sagöí verkfræöingurinn. -KÞ. Þá skalf allt tsland... lýsingar um, hvað raunverulega gerðist, voru aldrei birtar. En aö minnsta kosti voru Saura-undrin lið- in tíð og ekkert varö um hræringar þar norður f rá aftur. Þótt ekki væri fjallað um málið meira í blööum var það samt aðal- umræðuefni manna á meðal lengi vel. Og ekki leið á löngu þar til komst í hámæli, hvað átti að hafa gerst: það var haft fyrir satt, aö sonurinn á bænum, handlaginn maöur í meira lagi, heföi bundiö nælonþræði í helstu húsmuni inni í bænum og svo kippt í þræðina við og við til að gera fólki bilt viö. Meiningin var að þetta væri smágrin, og auðvitað gat hann ekki órað fyrir framvindu málsins. Og þegar allt var komið í hnút, var ekki aftur snúið. En sennilega hefur þó heimilisfólk og yfirvöld, aö minnsta kosti þegar á leiö, vitað hvers kyns var og þau síðamefndu tekið þann kost aö svæfa máliö. Hvort þessi skýring er sönn eða ósönn skal ósagt látiö hér. Hins veg- ar verður ekki framhjá því litið, aö fjölmiölar, andatrúarfólk og stór hluti almennings í landinu gerði sig aö viöundrum í Saura-undrunum. -KÞ tók saman úr dagblöðum, Þjóð- sögum Jóns Árnasonar og Gráskinnu hinni meiri. Margrét húsfreyja Benediktsdóttir. í hræringunum að Saurum var þgtta aigeng sjón, brotið leirtau á við og dreif.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.