Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. 5 / helgarblaði fyrir nokkru var okkur tiðrætt um leikföng, þá einkum þau er minna okkur á strið og styrjaldarógnir. Við höldum leikfangaumræðunni áfram um nokkurt sinn, þó i nokkurri annarri mynd en áður. Á myndunum hér á síðunni getur að skoða heldur s/aldséð leikföng, sem raunar eru ekki aðeins leikföng þegar betur er að gáð heldur einnig hinir ágætustu hægindastólar, jafnvel má nota þau sem svefnbekki, sem er ekki ónýtt þegar til þess er hugsað að börn þreytast iðu- lega nokkuð á daglöngum leikj- um sínum og þá ættu þessi sér- stæðu leikföng að vera nærtæk. Ef lesandinn er i einhverjum vafa um fyrirmyndir þessara lei. fanga þá skal fúslega bent á þaö að þær eru sóttar i dýrarikið. Ennfremur skal bent á það að nefnd leikföng eru ekki fram- leidd i stórum verksmiðjum heldur einfaldlega i heimahúsi einu i Los Angeles i Bandarikjun- um. Efnið — svampur og klæðis- bútar — er að visu aðkeypt, en útlitið er að öllu handverk for- eldra þeirra barna er sjást á myndunum. Já, þeir verða seint taldir hugmyndasnauðir félagar okkar i henni Ameriku. . . Dýrsleg leikföng Eitt af mörgum VENUS—EIK Verðkr. 14.754,- yy Rúm”-bezta verzlun Íandsins INGVAR OG GYLFI GRENSÁSVEGI 3 108 REYKJAVÍK, SÍMI: 81144 OG 33530. Sérverzlun með rúm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.