Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Qupperneq 11
DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. 11 dýrasta og fullkomnasta fer fram á eftirfarandi hátt: „Heilinn er numinn burt um nasa- holurnar með krók járni. Það er rist á kviðinn, innyfli dregin út. Holiö er skolað með pálmavíni og síöan fyllt myrru og ööru reykelsi. Síðan er líkið látiö liggja í natróni í sjötíu daga. Þá er það þétt vafið líni. Loks er það lagt í kistu með mannsmynd utaná.” Gríski sagnfræðingurinn Heródótos var fæddur um 484 fyrir Krist. Hann hefur skrifað ýmsar furðusagnir um egypsku faraóana, meðal annars hvernig Keops fór að þvi að láta reisa stærsta pýramida Egypta- lands. Sendi dóttur sína á hóruhús Heródótos kann margar litríkar smásögur af faraóunum. Hann kemst svo að orði um faraó Keops, sem reisti stærsta pýramídann: „Hann lokaði öllum helgidómum og bauö Egyptum aö vinna fyrir sig. Eitt hundrað þúsund manns unnu þrjá mánuöi í einu. Það tók tíu ár að leggja veginn, sem steinarnir voru dregnir eftir. Tuttugu ár tók að byggja sjálfan pýramídann. Með lyftistöngum var steinunum lyft frá einum stalli til annars. Keops gekk svo langt í ágirndinni að hann sendi dóttur sína í hóruhús, þegar hann vantaði meiri peninga. Henni var ætlað að afla góðra tekna. Stúlkan hlýddi föður sínum, en skóp um leið minnismerki um sjálfa sig. Hvem mann sem hún tók á móti bað hún nefnilega um stein! Úr þessum stein- um var seinna byggður pýramídinn sem stendur í miðið af þeim þremur sem eru fyrir framan pýramídann mikla.” Elsti leynilögreglu- maður heimsins Heródótos skýrir einnig frá því hvemig faraó Rampsinitos lét byggja herbergi úr steini til að geyma þar auöæfi sín. En bygginga- meistarinn kom því þannig fyrir að auövelt var að taka einn steininn í múrnum úr. Þegar hann var að dauða kominn sagði hann sonum sín- um frá þessu leyndarmáli. Þeir urðu fljótir til að nota tækifærið og verða ríkir, en í því botnaði hann ekki. Þeg- ar þetta endurtók sig kom konungur gildru fyrir í fjárhirslunni og einn af sonum byggingameistarans festist í henni. Hann hrópaði þá á bróður sinn og bað hann að höggva af sér höfuðið og taka það með sér, svo hann leiddi ekki óhamingu yfir fjölskylduna og allt kæmist upp. Er faraó fann síðar höfuðlausan kroppinn lét hann hengja hann upp og lagði stranglega Menn á ferð á úKöldum ieyðimörkinni. Pýramidarnir miklu ibaksýn. fyrir verðina aö þeir skyldu gefa því nánar gætur ef einhver gréti eða hefði kveinstafi í frammi hjá hinum dauða en þá skyldu þeir tafarlaust taka hann fastan. Með brögðum heppnaðist bróðum- um samt að ná í líkiö og greftra þaö. Þegar konungurinn fékk fréttir af þessu skipaði hann dóttur sinni að ráða sig á hóruhús og krefjast þess af hverjum manni, sem heimsækti hana þar aö hann yrði að byrja á því að segja henni frá lævísasta og guð- lausasta verknaði, sem hann heföi framiö. Þjófnum hafði borist þetta til eyma og ákvað aö leika einu sinni enn á faraó. Hann skar annan hand- legginn af nýdauða bróðurnum og gekk inn til konungsdótturinnar og faldi handlegginn undir kápunni. Við hvatningu hennar sagði hann svo frá afreki sínu. Er stúlkunni var það ljóst að þarna var kominn maðurinn sem faðir hennar var að leita að, þreif hún í hann og hrópaöi á hjálp. En í myrkrinu rétti hann henni hönd þess er dauður var. Hún hélt fast í höndina og þjófinum tókst aö sleppa. Nú fannst faraó svo mikið til um þennan lævísa þjóf að hann lét boð út ganga um náðun og ríkuleg laun ef hinn seki gæfi sig fram við hann. Þjófurinn tók orð konungs trúanleg og Rampoinitos var furðu lostinn, er hann hafði heyrt alla söguna og ákvað að gefa honum dóttur sína þar sem hann væri slægasti maður í veröldinni! Satt eða ósatt? Að sjálfsögðu spyr gagnrýninn les- andi að hve miklu leyti megi trúa sögum og lýsingum Heródótosar. Augljóst er að sjálfur trúir hann ekki ávallt því sem honum er sagt. Hann gerir sínar athugasemdir. Þar að auki vitum við nú að Heródótos hefur misskilið ekki svo lítið af því, sem honum hefur veriö sagt, sakir málaörðugleika. Mörgum af frá- sögnum hans, eins og pýramida- byggingunni, verður að taka meö varúð. Samt veröur ekki fram hjá því litið að þekking okkar á sögu fornaldar væri miklu minni ef Heródótosar heföi ekki notið við. VUfáN. er ekki sérrit heldur fjölbreytt og víðlesið heimilisblað býður ódýrasta auglýsingaverð allra íslenskra tímarita. — Nú býður VIKAN nýja þjónustu fyrir auglýsendur: samn- inga um birtingu heil- eða hálfsiðu í lit eða svarthvítu, — í hverri VIKU eða annarri hverri VIKU. Hér eru rökin fyrir birtingu auglýsinga i VIKUNNI. nœr til allra stétta og allra aldursstiga. Auglýsing í Vikunni nær því til fjöldans en ekki aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa. hefur komið út í hverri viku í meira en 40 ár og jafnan tekið breytingum I takt við tímann, bœöi hvað snertir efni og útlit. Þess vegna er VIKAN svona fjölbreytt og þess vegna er lesendahópurinn svona stór og fjölbreyttur. selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Þess vegna geta auglýsendur trevst því, að auglýsing í VIKUNNI skilar sér. er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni óviö- komandi. Þess vegna er VIKAN svo vinsæl og víðlesin sem raun ber vitni. veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsamlegu verði og hver auglýsing nær til allra lesenda VIKUNNAR. hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar. Upplýsingar um auglýsingaverð VIKUNNAR eiga við hana eina og þær fást hjá A UGLÝSINGADEILD VIKUNNAR ísíma 85320 (beinn sími) eða 27022 S.78803 S. 85711 M01USTAH HF. TEPPAHREINSUN Tökum aö okkur hreinsun á teppum í heimahúsum, stigagöngum, skrifstofum, stökum teppum, mottum og fl. í bílum hreinsum við teppi, sæti og huröaspjöld. Erum meö nýjar, fullkomnar vélar. HREINT TEPPI ENDIST LENGUR BILATEPPI TEPPALAGNIR Tökum aö okkur allar teppalagnir, viögeröir og strekkingar teppa og dúkleggjum bíla, stóra sem smáa. Sköffum bílateppi og dúka í ýmsum litum. ÞJÓNVSTAN B Smiðjuvegi 28 Kópavogi. Símar: 78803 — 85711.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.