Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Page 15
DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. 15 Bókmenntir Bókmenntir Bókmenntir Jesús Kristurú Dagsbrúnartaxta — Jónas Guðmundsson stýrimaður um lífsmátann í „Yerkó” Það er bókaútgáfan Hildur sem gefur út söguna um togaramanninn Guðmund Halldór. Jónas segist halda að hún komi út um mánaða- mótin. „Ef hún verður ekki bönnuð. Voru þeir ekki að banna bók eftir einhvem ösk ukarl um daginn ? ” Svo heldur hann áfram: — Togaramaðurinn Guðmundur Halldór flokkast líklega á aug- lýsingamarkaði undir s jómannabæk- ur, en Guðmundur Halldór, sem fæddur var árið 1887 og lést fyrr á þessu ári, stundaöi sjóinn í um það bil 65 ár, fyrst á opnum skipum og lá þá við í grjótbyrgi eða fjárhúsum vestur í Arnarfiröi. Síöan var hann á skútum, bæði hjá Pétri Thorsteins- son á Bíldudal og eins hér fyrir sunn- an. Þá var hann mannsaldur háseti á togurum, en erfiðisvinnu vann hann þar til hann varö níræður. Vann sein- ast í fiski og í hamphúsum Bæjarút- geröar Reykjavíkur. Guðmundur Halldór og kona hans, Sólveig Jóhannesdóttir, fluttu í fyrstu verkamannabústaðina eöa Verkó fyrir hálfri öld, en Verkó var Breiðholt þess tíma. Þessi hús voru bylting og voru reist af byltinga- mönnum. Undarleg veröld Fyrstu verkamannabústaðirnir voru undarleg veröld og þar bjuggu erfiðismenn sem gengu til vinnu sinnar hvern dag í soðnum f ötum. Það var í sjálfu sér ekkert tiltöku- mál heldur var þaö hitt að með lög- um frá árinu 1929 var ákveðiö að verkamenn á íslandi og aðrir laun- þegar þyrftu ekki endilega aö búa í vondum húsum, kjöllurum, risloft- um eða skúrum, heldur í húsum. Það gekk víst ekki átakalaust, fremur en annað sem gjöra þurfti í heimskreppunni, en áriö 1931 var byrjað að reisa þessi fallegu hús handa fólki sem boröaöi meö sjálf- skeiöungum. Og mér hefur verið sagt að mjög margir, sem fluttu inn, heföu aldrei áður séð rafmagnselda- vél, vatnssalemi eða baðkar, nema þá á mvnd. Hvað þá þvottahús og þurrkklefa, en í stóra svarta pottin- um í kjallaranum vom föt grafar- anna soöin, — líka slátriö á haustin og allt ilmaði svo þekkilega. Til einföldunar mátti skipta þess- um mönnum í tvo hópa, sjómenn og verkamenn, þótt einn og einn fengist við annað. Það sem menn áttu sam- eiginlega var aðeins fátæktin, ef hún þá getur talist til eigna. 1 raun og veru var þó lítill munur á þessum tveimur hópum, eða á verkamönnum og sjómönnum, einkanlega þegar atvinnuleysið var sem tilfinnanlegast. Samt kunni ég betur viö sjómennina sem voru í senn dularfullir og glaðir. Það var stormur í augum þeirra og einhver undarleg glóö. Fiskreitirnir eins og hvít segl Aö vísu þótti okkur börnunum þaö æði dularfullt starf að vinna í kirkju- garðinum, en þaö gjörðu margir í Verkó. Það voru grafaramir sem stungu vota moldina þrjár álnir niður og svo þegar grátandi líkfylgd- in var farin flýttu þeir sér að moka yfir svo að eilífðin gæti tekiö til starfa. Konurnar unnu líka úti. Breiddu hvítan saltfisk á reitina í Haga og í Dverg, en til þeirra var kallaö með því aö draga upp sérstakan fána. Þegar sólin skein á björtum degi, litu fiskreitirnir út eins og hvít segl, eða brúöarsængur, og skip heiðríkjunnar sigldi hægt. Timinn var ekki lengur td. Konumar vora allar hvítklæddar, eins og saltfiskurinn, og með hvítar skuplur yfir höföinu. Þær minntu meira á himnaríki en saltfisk. Og þegar þær gengu, sólbrúnar og þögl- ar, til og frá vinnu nam ég oft staöar til að horfa á þessar hátíölegu. hvítu konur. Þær vora fulltrúar hreinlætis- ins í Verkó. Hin hvítskúraða fátækt millistríösáranna réö þar ríkjum. Þama áttu sögumennirnir heima, þeir Guðmundur Halldór og Guð- mundur J. og einnig ég. Og um þessa kynlegu veröld snýst sagan, þótt aö öðra leyti hangi bókin uppi á sömu lýrikk og Atlantshafið. fólkið hafi allt verið keypt á útsölu- markaði. Keypti Ijösberann — Þú segir að Jesús Kristur hafi verið á Dagsbrúnartaxta? — Já, Guðmundur J. var oröinn Stalínisti áður en hann náði ferm- ingaraldri og vitnaði óspart í Marx og Lenín, enda gekk hann í samskon- ar pokabuxum og þeir og vissi engu minna um lífið og dauðann en þeir. Hann sat fyr.r hjá Einari Jónssyni myndhöggvara þegar hann var aö höggva Krist og heimtaöi þá Dags- brúnartaxta sem Einar borgaði meö glöðu geði, enda keypti hann Ljós- berann eitt blaða og það er líklega í eina skiptið sem Frelsarinn komst í launaflokk og gamlar konur í vestur- bænum heilsuðu þessum ósvífna frelsara á pokabuxunum af lúterskri lotningu og með sérstakri virðingu. — Nú hefur þú ritaö um það bil tuttugu bækur. Er þessi aö veralegu leyti frábrugðin fyrri bókum þínum? — Þaö held ég. Hún er gerð á annan hátt. Fyrstu bækur mínar vora skrif- aðar úti á sjó í miklum veltingi og þaö þarf eiginlega handföng til aö geta lesið þær sæmilega. Þetta vora vondar bækur og engum þótti vænt um þær nema mér. Það er annar veltingur í þessari sögu og ég held ég hafi aldrei skemmt mér betur við að skrifa en í þessari bók. Já, þetta er eiginlega saga úr vesturbænum, fyrst og fremst, og það er svo sannarlega ekki viðmæl- endum mínum að kenna ef bókin fær slæmar viðtökur. — Það kemur fram að sagan ger- ist á kreppuárunum. Nú telja sumir að heimskreppa standi yfir. Er þetta samskonar kreppa og fyrir stríð? — Nei, það held ég ekki. Áður vora menn því nú vanastir að lifa á vond- um mat og guösblessun. Núna er þetta líkast því að veriö sé að rífast út af dánarbúi Fjallkonunnar. Erfingjarnir sýna enga miskunn. Og ég verö aö segja eins og er að ég hefi miklar áhyggjur af penmgalausum nútímaíslendingi. Hann er til alls vís. (Endir). Eins konar fjölskyldusaga Eg veit aö það er mjög í tísku um þessar mundir að menn séu að koma sér upp fátækt og öröugri æsku til að setja í bækur. Þetta er ekki svoleiðis bók því að allsleysi sannra Islend- inga varávallt virðulegt. Þetta er sumsé einskonar fjöl- skyldusaga, saga um lífsmáta, þar sem aðsteðjandi veöur og hafið vaka umhverfis fólkið. Að stofni til er þetta smábók — er ég ritaði eftir Guðmundi Halldóri fyrir tuttugu árum. Lengi hafði stað- iö til aö skrifa ofurlítiö meira, en af því varð ekki. Bókin var löngu upp- seld og þegar forlagið ákvað að gefa bókina út aftur varð það að ráði að ég skrifaði meira og þá varð Guðmund- ur J. sögumaðurinn. Það hjálpaði mikiö að ég nauð- þekkti þetta fólk og hafði verið á tog- ara með gamla manninum lengi og svo hafa þessir feðgar mikla frá- sagnargáfu. Það er á hinn bóginn örðugt að lýsa bókinni ööravísi en í heilli bók. Jesús Kristur kemst meú-a aö segja fljót- lega á Dagsbrúnartaxta hjá Guð- mundi J. Svo ör var þessi þróun. Þetta voru sérstakir tímar og guð teiknaði þá einstaklingana alla á sér- stæðan hátt. Nú á dögum virðist mér allt fólk vera eins. Einstaklingarnir era allir ems og þaö er eins og nýja Rafsuðuvélar og vír Haukur og Ólafur flrmúla 32 -Sími 37700. FLOTT ÚRVAL TRÚLOFUNAR' HRINGA munstradir og sléttir í öllum breiddum. Sendum litmyndalista. Við smídum hringana. OG ÓSKAR LAUGAVEGI70. S. 24910. HÚSBYGGJEIMDUR Að halda að ykkur hita er sérgrein o kkar: Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi til föstudags. Afhendum vQruna á bygging- ; arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verd og grciðsluskilmálar við flestra hæfi. Aðrar söluvörur: Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar- pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna- plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pípueinangrun: frauð- plast/glerull. ^ BORGARPLAST HF II Borgarnesi simi 93-7370 II __________Kvóldslmi og helgarslmi 93—7355 FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX Sérstakt kynningarverð.' PflUL hrærivélar Heimsþekktar vesturþýskar úrvalsvélar á góðu verði. Hérlendis fékkst stærri gerðin einkum fyrr á árum, og hefur reynst nær óslítandi vinnuþjarkur. Nú hefur Fönix fengið umboðið og býður bæði ... PAUL MIXI - afkas tamikla vinnuþjarkinn fyrir stóru heimilin - og PAUL KUMIC - lipra dugnaðarforkinn fyrir smærri heimilin. Báðar eru fjölhæfar: Hræra, þeyta, hnoða, kurla, mauka, blanda, hrista, hakka, móta, mala, rífa, sneiða, skilja, pressa - og fara létt með það' Frábær hönnun, fyrir augað, þægindin og endinguna: Þú þeytir t.d. eða hrærir á fullu, án þess aó upp úr slettist eða hveiti sogist inn í mótorinn. /FQnix Hatuni 6a Sími 24420

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.