Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982. Bílar Bflar 17 Bflar Árgerd 1984! Chrysler G-24 Nú, þegar bílaframleiðendur kynna 1983 árgerðirnar af bílum sinum, er þegar farið að tala um 1984 árgerðirnar. Frést hef ur af ’84 árgerö af nýj- um bíl frá Chrysler sem nú er kallaöur G—24. Þetta er fram- hjóladrifinn sportbíll, byggður á K-Iínunni sem Chrysler kynnti eftir uppstokkunina á Evrópu- markaðinum. Mótorinn í G-24 mun verða 2,2 lítra, 4 strokka, með beinni innspýtingu. Þar við bætist ennfremur turboútgáfa. Reiknað er með að bílinn verði formlega kynntur í júlí—ágúst 1983 og fái þá endanlegt nafn. Daihatsu selnr evrépskan bflí Japan Nú hefur dæmið snúist við. Japönsku bílaverksmiðjurnar Daihatsu ætla aö selja evrópskan bíl í Japan! Bíllinn er italski smábíllinn Innocenti Mini. Ástæöunnar er að leita til þess að fyrir nokkru ákváöu Innocentiverk- smiöjurnar að í staö 4 strokka vélar- innar sem veriö haföi í Mininum yrði breytt um og í bílinn sett 3 strokka vél- in úr Daihatsu. Þess vegna munu Daihatsuverksmiðjurnar nú flytja Innocenti til Japan. Ennfremur er gert ráð fyrir að Evrópuumboö Daihatsu muni á næst- unni taka við og selja Innocenti Mini í Evrópu. Getur bremsu- vökvt oröid hættulegur? Mjög fáir láta skipta um bremsuvökva á bremsukerfinu í bílnum sínum. Fram til þessa hefur verið taliö nóg að gæta þess að hafa nægilegan vökva á kerf- inu og halda því að ööru leyti í lagi. Nú hafa rannsóknir á vegum sænska tryggingafélagsins Folksam í Svíþjóð sýnt að bremsuvökvinn getur oröiö hættulegur. Eftir eins árs eða 20 þúsund kílómetra akstur getur vökvinn hafa dregið til sín svo mikið vatn að hann getur orðið lífshættulegur. Með vatni í bremsuvökvanum kemur upp hætta á loftbólum vegna raka- myndunar og þar með engar bremsur. Vatn í bremsuvökvan- um eykur einnig hættuna á ryð- myndun í bremsukerfinu, eink- um í hjóldælunum. Bflar Bflar Opel Corsa: Lítill en riimgóöur Nýr Audi 100: Minni loftmótstaða Eitt nýjasta trompið á smábíla- markaöinum kemur frá Opel. Þetta er Opel Corsa sem nú kemur fram á markaöinn í tveimur gerðum, þriggja dyra skutbíll og tveggja dyra meö skotti. Skutbíllinn er aðeins 362 sentimetrar á lengd en tveggja dyra bíllinn er 396 sentimetrar. Opelverksmiðjumar segja þetta vera minnsta smábílinn frá Þýskalandi. Þrátt fyrir aö bíllinn er svona stuttur hefur tekist að halda loftmótstöðunni í lágmarki og er cw-gildið aöeins 0,36. Það verður um þrjár vélargeröir að velja. I grunnútgáfunni verður hinn 21 árs Kadett mótor,993 rúmsentimetrar og 45 hestöfl. Hinir tveir verða með yfirliggjandi knastás, 1196 rúmsentim, 54 hestöfl og 1297 rúmsm, 69 hestöfl. Stýriö er tannstangarstýri, diska- bremsur að framan og skálar að aftan. Bíllinn verður f jögurra gíra með minni mótorunum en fimm gíra meö stærstu vélinni. Einn stærsti kosturinn er, að sögn erlendra bílablaöa, hve vel plássiö inni í bílnum nýtist. Það var sagt fyrir bílasýninguna á dögunum í París aö hinni nýi Audi 100 myndi keppa við Citroén BX um hvor yrði talinn vera eftirtektarveröari. Hvað loftmótstöðu varðar er Audi 100 methafinn. Cw-gildið er aðeins 0,30 en Citroen og Ford Sierra halda sig á bilinu 0,33—0,34. Það að loftmótstaðan er orðin jafnlít- il og raun ber vitni er vegna lögunar bílsins og sléttra flata. Meira aö segja hliðarrúðurnar falla slétt við yfir- bygginguna vegna sérstaks frágangs. F jórar gerðir af mótorum verður um að velja: 4 strokka 1,8 lítra 75 hestöfl, og þrjá fimm strokka, 1,9 lítra 100 hest- öfl, 2,2 lítra með beinni innspýtingu 136 hestöfl og 2 lítra dísil 70 hestöfl. Að útliti verður aöeins um eina gerð að ræða, fjögurra dyra, en útbúinn á fjóra mismunandi vegu. Bíllinn hefur veriö stækkaður um nokkra senti- metra á hvem veg, sem gefur aukna nýtni í plássi og eitthvert stærsta farangursrými í heiminum. Citroén BX — útlitið frá Bertone en samt „ekta” Citroén. Að innan útlit sem enn er á sömu línu og áður. Citroen BX: Nýr 99nnillibfll99 frá Citroen Því hefur verið haldiö fram að með hinum nýja Citroén BX ætli verk- smiðjumar að reyna að ná til fleiri en þeirra sem fram að þessu hafa talist vera áhangendur sérkenni- legra forma Citroén. Það er móður- fyrirtækiö PSA sem gefur þessa línu. Þetta er skýringin á nýrri útlitslinu á BX. Fyrstu útlitshugmyndir frá hönnuðum Citroén vom lagðar til hliöar og hugmyndin fengin frá Bertone en fínpússuð heimafyrir. Aðildin að móðurfyrirtækinu PSA kemur greinilega fram í vélarhús- inu. Minnstu vélarnar em eins og í Visa komnar frá Peugeot 62 og 72 hestöfl. BX 16 verður með nýhönnuðum PSA mótor, sem síðar meir kemur væntanlega fram bæði í Talbot og Peugeot. Þessi nýi mótor er 1580 rúmsm og 90 hestöfl. Gagnstætt 1360 mótomum, sem er meö innbyggðum gírkassa, verður þessi með sjálf- stæðum kassa á endanum. Það verður 5 gíra kassi bæði á 72 og 90 hestaflageröunum. Afturhjólaf jöörunin er hin sama og á GSA og CX en að framan er komið f jaðrakerfi af sérstakri gerð. Lengd- in er 423 sm og breiddin 166 sm, eða aðeins 3 sentimetrum lengri og breiðari en GSA, en nýtingin á pláss- inu er greinilega betri. Meðal sérkenna í BX má nefna að bensíntankurinn er úr polyethylen, vélarhlifin úr polyesterplasti og sömuleiðis afturdymar. Stuöarar era úr gegnumlituðu polypropylen, sem taka höggi m jög vel. Eins og í GSA og CX eru diska- bremsur með hjálparátaki og stýrið er að sjálfsögðu tannstangarstýri. En fyrst og fremst er hér um að ræöa „ekta” Citroén, framhjóladrif- inn sem fy rr, og innréttingu sem eng- inn annar en Citroén myndi bjóöa upp á. Loftmótstaðan er sem fyrr góð, cw 0,33—0,34. Tor- færutröll Sérsmíðaöir torfærabílar eru margir í Bandaríkjun- um en þessi slær öll met. King Kong kallar eigandinn hann og er það nafn með réttu. Þetta torfæratröll er knúið áfram af turbo-dísil sem gefur 370 hestöfl. Gír- kassinn er sjálfskiptur, sex gíra. Millikassi er úr herbíl og sömuleiöis era hásihgamar, sem koma úr Rockwell 6x6, báöar hásingamar eru framhásingar þannig aö trukkurinn getur beygt bæði að framan og aftan. Að framan er venjulegt stýri en að aftan er beygju stjómað meö sérstökum vökvatjakki. Hjólin eru engin smá- smíði. Handsmíðaðar felgurnar era 26 tommu breiðar og á þeim eru 48x31x20 Goodyear Terra dekk. Hvert hjól með felgu vegur nær 250 kíló. Ofan á öllu þessu situr yfirbygging af Ford F-250 Ranger XLT frá 1975, sem eigandinn, Jeff Dane, hefur átt frá upphafi og hefur „tröUið” vaxið smám saman í höndunum á honum. Ýmsar breytingar voru gerðar á y firbyggingunni. Hægt er að lyfta bæði samstæöunni í heUd að framan og eins paUinum að aftan svo að hægt sé að komast að því sem undir er. --——

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.