Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1982, Page 21
DV. LAUGARDAGUR 23. OKTOBER1982.
21
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Locklear var síöan látinn laus þar
sem fjölskylda hans var fær um aö
leggja fram tryggingarfjárhæðina.
Bloom var hins vegar ekki eins hepp-
inn og varö því að bíöa síns dóms á
bak viö lás og slá, þar sem hann situr
enn.
Missir allan
rétttilarfs
Búist er viö því aö Bloom fái vægan
dóm þar sem hann hefur veriö mjög
samvinnufús viö rannsóknarlög-
regluna um aö upplýsa morðið á
fööur sínum eftir aö hann á annað
borö lenti undir grun. Engu að síður
getur hann átt á hættu að hljóta allt
að þrjátíu ára fangelsisdóm fyrir
aöild að morði. Samkvæmt lögum
mun hann sjálfkrafa missa allan rétt
til þeirra 85 þúsund dollara sem faðir
hans haföi ánafnaö honum í erfða-
skrá sinni. Enginn vafi er hins vegar
talinn á aö Locklear muni veröa
dæmdur til lífstíðarfangelsis. Vegna
tryggingarinnar gengur hann nú um
frjáls maður og samkvæmt lögum er
hann talinn saklaus þar til annað
hefur veriö sannaö fyrir dómi.
Crowe fylkissaksóknari hefur sagt
að samkvæmt sínu mati sé morðið á
Leon Bloom eitthvert þaö ógeösleg-
asta sem hann hafi haft meö aö gera
á ferli sínum. Telur hann það vera
lýsandi dæmi um hvert eiturlyfja-
neyslan sé að leiða æskulýö Banda-
ríkjanna.
engin fordæmi aö einn fjölskyldu-
meðlima innan þess réöist á þennan
hátt á annan. Þaö var því erfitt aö
trúa því, aö þessi viðkunnanlegi ungi
maður, Herbert Bloom, heföi ráöist á
fööur sinn á þennan viöurstyggilega
hátt. Engu aö síöur voru nagandi
spumingar sem þurfti aö svara áöur
en hægt væri að hreinsa Bloom und-
an grun um aðild aö verknaðinum.
Lögreglan aflaöi sér þvi heimilda til
húsleitar í íbúö sem hann bjó í ásamt
móöur sinni og í bíl hans, auk þess
sem leyfi var fengiö til töku blóðsýn-
is. Heimildimar vom undirritaðar
aö kvöldi hins 30. ágúst og klukkan
fjögur um nóttina fór lögreglan aö
heimili Blooms, geröi húsleit og haföi
meö sér nokkuö af fötum til frekari
rannsóknar, auk þess sem Bloom var
tekinn til áframhaldandi yfirheyrslu.
Athugun sýndi að Herbert Bloom
var í B-blóðflokki, en faöir hans aftur
á móti í A-flokki. Blóöblettirnir sem
fundust í baöherbergisvaskinum
reyndust vera af B-flokki og þar meö
var komin ástæöa til að ganga harö-
ar fram í y firheyrslum yfir Bloom, —
og nú ekki lengur sem hann væri
vitni, heldur grunaöur.
Steinhice lögregluforingi stjórnaöi
yfirheyrslunni og hann spuröi Bloom
án þess aö vera meö vífilengjur
hvaöa upplýsingar hann gæti gefiö
um stungusárin á líki fööur hans.
Bloom virtist gera sér þaö strax ljóst
aö hann gat ekki haldið áfram aö
fóöra lögregluna á lygasögum, auk
þess sem hann hafði orðiö þörf fyrir
aö létta á sér þeirri byröi sem
vitnesk jan um þessa atburði var hon-
um. Hann kvaöst því fús til að segja
alla söguna.
Sonurinn leysir
frá skjóðunni
Honum sagðist svo frá aö eftir
vinnu á laugardagskvöld 28. ágúst
hafi hann hitt kunningja sinn, Lonnie
Locklear, sem væri af indverskum
uppruna. Locklear heföi haft í fórum
sínum skammt af kókaíni og hafi
jjeir farið heim til Blooms þar sem
þeir höföu sprautaö efninu beint i æö.
Það hefði hins vegar ekki nægt þeim
til aö komast í nægilega mikla vímu.
Þá hafi þeir ákveöið að brjótast inn á
heimili eiturlyfjasala sem Locklear
kannaöist viö, en þar sem hann haföi
verið heima hafi ekkert orðið úr
þeirri hugmynd. Þeir reyndu þá aö
fá lánað fé til kaupa á kókaíni, en
enginn heföi viljaö lána þeim. Þá
datt Bloom í hug aö reyna aö fá lánaö
fé hjá föður sinum.
Þeir komu aö húsi fööur Herberts
Bloom um klukkan hálfeitt um nótt-
ina. Faöirinn haföi brugöist hinn
versti við þegar hann var truflaöur á
þessum tíma nætur og tók ekki í mál
að lána syni sínum fé. Eftir stutt þref
á milli þeirra feöganna dró Locklear
skyndilega upp hnif og réöist á Leon
Bloom. Þessi árás kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti og þar sem
þetta haföi alls ekki verið fyrirætlun
Herberts Bloom, reyndi hann aö
koma föður sínum til hjálpar en
hlaut við þaö djúpan skurð á hend-
inni. Vegna vímunnar varö sársauk-
inn honum óbærilegur og hann hljóp
inn á baöherbergi, setti höndina und-
ir kalt vatn og vaföi hana í hand-
klæði.
Þegar Herbert Bloom kom aftur
fram í forstofuna sá hann Locklear
krjúpandi á hnjánum yfir föður hans.
Viti sínu f jær af skelfingu rauk
hann þá út úr húsinu og skildi Lock-
lear eftir. En þegar hann var aö aka
burt frá húsinu hafi Locklear komiö
hlaupandi og sagt um leið og hann
henti sér inn í bílinn aö nú gætu þeir
farið og keypt meira kókaín þar sem
hann heföi náö peningunum. En Blom
vildi fyrst fá gert aö sárum sínum
þannig að þeir fóru á næsta sjúkra-
hús þar sem skurðurinn var saum-
aöursaman.
Þeir eyddu síöan þeim tíma sem
eftir liföi nætur í árangurslitla leit aö
eiturlyfjum. Undir morgun gátu þeir
þó fengið keypt lítiö magn fyrir 20
dollara sem þeir neyttu í íbúö
Blooms, þar sem þeir féllu síöan
báöir í svefn um morguninn.
Endurminningin ekki
óþægilegur draumur
Þegar Bloom vaknaöi á hádegi
næsta dag varö hans fyrsta verk aö
koma blóðfötum sínum í þvottavél-
ina. Eftir að hafa ekiö Locklear heim
til sín sneri Bloom aftur til íbúöar
föður síns, þar sem blóöstorkið líkiö
bar vitni um aö endurminningin um
atburöi kvöldsins væri ekki slæmur
draumur, heldur gallharöur raun-
veruleikinn. Hann hringdi þá til
móöur sinnar sem kom þegar á staö-
inn í fylgd tveggja ættingja. Fyrsta
verk þeirra heföi síðan veriö aö kalla
á lögregluna.
Lonnie Locklear haföi þrisvar áöur
komiö viö sögu lögreglunnar, hand-
tekinn fyrir aö vera meö eiturlyf í
fórum sínum. Handtökuskipun var
þegar gefin út á hendur honum, en
hann gaf sig sjálfkrafa fram við lög-
regluna er hann kom á lögreglu-
stööina í fylgd meö fööur sínum. And-
stætt Bloom, vildi Lonnie Locklear
engar upplýsingar gefa og játaöi
ekkert á sig, en vísaði þess í stað til
heimildar sinnar um aö neita aö
svara spurningum. Faöir hans gaf
hins vegp.r samþykki sitt fyrir aö
húsleit færi fram og þau sönnunar-
gögn tekin sem tengst gætu glæpn-
um. Húsleitin fór samstundis fram.
Lögreglumenn fundu hulstur af hníf
en hnífurinn sem tilheyröi því fannst
hvergi. Einnig voru tekin til frekari
rannsóknar föt sem nýkomin voru úr
þvotti, en þegar til kom reyndist ekki
unnt aö nota þa ; sein sönnunargögn,
þótt greina mætti í þeim blóöbletti.
Bæöi Herbert Bloom og Lonnie
Locklear voru handteknir en gefinn
var kostur á aö þeir yröu látnir lausir
meöan þeir biöu réttarhaldanna
gegn því aö lögð yröi fram 100 þús-
und dollara tryggingarfjárhæð.
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál