Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Síða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 Bflar 19 Bflar Bflar Bflar Bflar gott, nema kannski á ská aftur úr, öll sætin eru há frá gólfi og gefa góöan stuðning við lærin, en aðeins skortir á að rými sé nægilegt fyrir hné aftursætisfarþega, séu þeir stór- vaxnir og framsætin í öftustu stöðu. Einnig skortir á að hægt sé aö færa bílstjórasætið nógu aftarlega, ef bíl- stjórinn er mjög langfættur. Hins vegar er ríflega hátt til lofts, einkum frammi í og set er óvenju þægilegt fyrir fjóra meðalstóra menn, miðað við það sem gerist í jeppum af þess- ari stærö. Þrír menn rúmast í aftur- sæti, en sé setið alveg út við glugga skapar hjólskálin þreytu í ytri rass- kinnum þeirra sem við glugga sitja. Þetta gætu menn lagað með því að skera lítillega ofan af hjólskálunum og setja nýjan bekk alveg út að gluggum og síðast en ekki síst: hækka bakið á aftursætinu, sem er alltof iágt og veitir ekki stuðning við herðablöð og axlir. Fjöðrunin er hæfilega mjúk, mjög skynsamleg málamiðlun milli fólksbílseiginleika og jeppaeiginleika. Hemlarnir eru prýðilegir, og það var sama hvemig bílnum var ekið í vatni og aur, að ekkert lát var á þeim. Eins og orðin er hefð á japönskum bilum, er billinn ágætlega útbúinn. Þó saknaði ég ljóss, sem sýndi þegar innsog var á. Bílstjórasætið fjaörar upp og niöur, eins og gerist á mörgum sendi- og flutningabílum, og er hægt að stilla þessa sætisf jöörun með tilliti til lík- amsþunga þess sem í sætinu situr og raunar nauðsynlegt að hafa fjöðrun- ina á bilstjórasætinu ekki of lina, þvi að þá fer bilstjórinn fullmikið á ið. Góð upphitun Hitari er undir aftursætinu, aldeil- is f yrirtakstæki, og tvö hliðarsæti eru fýrir aftan aftursæti. Heldur er lágt til lofts fyrir fullvaxna í þessum sæt- um, enda er hæð þeirra fremur miðuð við blæjubílinn af Pajero held- ur en málmhúsið, sem er lægra. En þessi sæti eru ágæt fyrir börn eða unglinga og Pajero tekur sem sé sjö í sæti, ef þau eru notuð. Þá er reyndar orðið lítið rými fyrir farangur og mun minna en í skæðasta keppi- nautnum, Izuzu Trooper. Pajero er með einni heilli aftur- hurð, sem sýnist við fyrstu sýn vera vel þétt og laus við skrölt.Varahjólið er á hurðinni utanverðri, en reynslan verður að leiða í ljós hvort hurðin fer að skrölta þegar bíllinn eldist. Senni- lega er ekki eins mikil hætta á skrölti eins og þegar um tvöfaldan hlera er aðræða. Hljóðlátur nema á stórgerðri möl Pajero er á grind en ekki heilsoð- inn, eins og Lada Sport. Hann er því mun hljóðlátari en Ladan á malar- vegi, en hávaðinn samt öllu meiri frá mölinni en á gamla Broncó, eða 81— 82 desibel á 70 kílómetra hraða. Á mjög grófri möl gat hávaðinn stokkið upp í 83 til 84 desibel. öftustu hliðar-' sætin eru hengd upp í ólum þegar þau eru ekki i notkun, en það marr- aöi leiðinlega i þessum ólum ef sætin voru hengd upp, svo að betra var að hafa sætin felld fram þótt það rændi nokkru farangursrými. Hjólbarðar og torfæru- eiginleikar: málamiðlun Sem áður sagði er þessi jeppi skemmtilegur í borgarakstri. Hjól- barðarnir eru málamiðlun: mynstrið örlítið grófara en á vetrarhjólbörð- um, furðulega líkt gamla stríðs- jeppamynstrinu hjá Willys, en samt fínna er á gripmestu jeppadekkjum. Fyrir bragðið syngur ekki í hjól- börðunum á malbiki en skort getur á grip í verstu ófærum. Stærsti kostur Pajero í torfærum er vélaraflið. Jeppinn er ekkert sér- stakur þegar komiö er í virkilegar torfærur, en með því að beita vélinni rétt kemst hann alveg furðulega mikið. Hið mikla vélarafl er ótvíræð- ur kostur í bröttustu brekkum, þegar skort getur á að gripið í þessum málamiölunardekkjum sé nóg. Eg bjóst satt að segja ekki við miklu af þessum bíl í verstu ófærunum vegna þess aö kappkostað er aö halda þyngdarpunktinum neðarlega og þvi er öllu lægra undir undirvagninn er t.d. á Lada-Sport. Hann er lægri undir kviö og sílsa en Lada Sport, fjaðrimar að aftan eru undir öxlin- um, bensíngeymirinn, sem er fyrir aftan afturöxul, flúttar nánast við miðlinu öxulsins og sigur niður fyrir hana sé bíllinn hlaðinn, og undir bíl- inn að framan eru um 24 sentimetr- ar, sem getur f jaðrað niður í minna en 20, vegna þess að fjöörunin er' sjálfstæð. Hæðir undir framvagn, miUikassa, afturkúlu og afturfjaðra- hengsli eru á bilinu 23,5 til 27 senti- metrar, svipað eða örlítið lægra en á óbreyttum Willys, Land Rover eða Range Rover. Það kom mér hins vegar á óvart hve lítið bíllinn tók niðri, þótt ekiö væri um mjög óslétt landslag. Þetta er því að þakka hve billinn er tiltölulega stuttur og hlut- föllin hagstæö. Fyrir bragðiö smýgur hann vel og lipurlega framhjá hindrunum og tekur furðulítið niðri að aftan eða á kviðnum. Veikasti punkturinn er ef hann nær að dúa mikið að framan, til dæmis ef ekið er greitt í djúpum för- um í öldóttu landslagi. Þá má gæta sín aö reka hann ekki niður að fram- an þegar hann f jaðrar niður. Jeppar með heilan framöxul hafa ekki þennan ókost, því að framásinn helst alltaf jafnhátt frá jörðu á þeim þótt bíllinn fjaðri. Þennan ókost á Pajeró sameiginlegan með öðrum jeppum með sjáifstæða fjöðrun að framan, t.d. Lada Sport og Izuzu Trooper. Vélin situr hátt í Pajero og kveikj- an er efst á henni fremst bakborðs- megin. Sá galli er þó á'gjöf Njarðar að kveikjan er beint aftan við kæli- viftuna. Það var þó ekki fyrr en eftir fimm kílómetra hraða keyrslu yfir læki og polla með tilheyrandi gusu- DV-myndir Einar Ólason. gangi að vélin bleytti sig, en hún náði sér strax á strik aftur. Hljóðlátt dríf og kassar Bíllinn, sem ekið var, hafði sjálf- virkar framdrifslokur. Þær skapa þann kost að þegar ekið er á aftur- drifinu eingöngu snúa framhjólin ekki öxlum, drifi og drifskafti með sér, og þetta sparar bensín. En kosti sídrifs, eins og í Lada Sport og fleiri jeppum hefur svona Pajero ekki. I millikassa er notuð keðja í tannhjóla stað og er milli- kassinn mjög hljóðlátur og laus við þann söng, sem drifasöngurinn í Lada Sport eða jafnvel Range Rover er í mörgum jeppum, allt upp í Range Rover. Pajero er áægtlega varinn með hlífðarpönnum undir viðkvæmustu hluta og pannan að framan er ágæt- asta skiði í snjó. Niðurstaðan úr all- ítarlegum reynsluakstri á Pajero er sú að vel hafi til tekist um gerð þessa bíls í fyrstu tilraun framleiðandans til þess að smíða jeppa af hentugri millistærð. Rökrétt framhald undir- ritaös virðist vera að reynsluaka þeim keppinaut, sem likastur er að stærð og verði: Izuzu Trooper, sem er lengri og því með meira farang- ursrými, en um leið hættara við að setjast niður á kviðinn og ekki alveg eins lipur. A sinum tima tóku Islend- ingar miklu ástfóstri við frumgerð- ina af Ford Bronco, sem varð arftaki Land Rover. Með Pajero er kominn bíll i nákvæmlega sama, vinsæla stæröarflokknum, og spurningin er hvort hann á eftir að taka við sæti hinna vestrænu f yrirrennara. Sæti þægilega hátt frá gótfi, góður stuðningur undir iæri, hátt tii lofts, takmarkað rými fyrir hná fyrir stór- vaxna, ef framsæti er i öftustu stööu. 34 sentimetrar undir bensingeymi, lægra þegar bill er hiaðinn. HHf undir geymi. Tvö aukasæti aftast, heil hurö. 37sentimetrar undir sils, álíka og á Range Rover, en 7sentimetrum lægra en á gamla Broncó. Þægilegt að stiga upp í bilinn. Taskan er 33 sentimetrar. Slátt gólf, gottað þrifa. Sáð ofan i válina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.