Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1982, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER1982 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL „Ferðin til Skotlands ógleyman- leg reynsla” — sjómaðurinn Finnur Torfi Stefánsson tekinn tali um siglingar á seglbátum Hann er fyrrverandi þingmaöur. Er meö próf í lögfræöi og þjóðfélagsfræði. Hefur spilaö í vinsælli dægurlaga- hljómsveit og flogiö litlum flugvélum. Hann hefur einnig fengist við siglingar á seglbátum og unnið Islandsmeistara- titil í þeirri grein. Og þá er hann fyrr- verandi formaöur Siglingasambands Islands. Maöurinn heitir Finnur Torfi Stefánsson. „Siglingaáhuginn byrjaði þegar ég var úti í Englandi viö nám í þjóðfélags- fræði,” sagöi Finnur og hélt áfram: „Eg komst yfir seglbát úti og sigldi honum talsvert á Irlandshafi. En eftir aö ég kom heim fékk ég mér litla kænu, sem ég sigldi mikiö á, en hef ekki getað stundaö siglingarnar sem skyldi síöustu árin. Tók þó þátt í Islands- Finnur Torfí á skrifstofu sinni hjá Fáiagi isienskra hijómiistarmanna. „Sigiingaáhuginn byrjaði þegar óg var úti í Engiandi við nám i þjóðfóiagsfræði." DV-mynd: Bjarnleifur. mótinu í sumar, svona til aö tapa kunn- áttunni ekki alveg.” Treystá vindinn Finnur sagöi aö þaö sem geröi siglingar á seglbátum jafnskemmti- legar og raun bæri vitní væri sú staö- reynd að með þeim rifu menn sig út úr vélvæddu þjóðfélaginu út á fley þar sem þyrfti að treysta á vindinn og önnur náttúruöfl. Þetta væri einnig ástæðan fyrir þeim miklu vinsældum sem siglingar á seglbátum nytu viöa umheim. Finnur Torfi sigldi til Skotlands árið 1974 og lenti í minni háttar basli á leið- inni. Ég fór þessa ferð meö vini mínum, Gunnari Hilmarssyni. Við sigldum fyrst til Færeyja og síðan til Skotlands. I þessari ferð lentum við í talsverðu óveðri og brotnaði stýrið aftan af skútunni, en viö gátum lagað það.” Skotarnir heldur betur undrandi Hann sagði ennfremur að ferðin hefði verið mjög skemmtileg og þetta hefði verið ógleymanleg reynsla. Það hefði verið stórkostlegt að koma að ókunnri strönd. Leggja bátnum og kanna máliö frekar, fá þaö staðfest að menn væru á réttum staö. Rölta síðan upp á næsta pöbb og segja Skotunum að hér væru lslendingar á ferð. „Þeir voru heldur betur undrandi,” bætti FinnurTorfi við. Aðspurður sagði Finnur Torfi að siglingar á seglskútum væri alls ekki erfitt aö læra. Menn gætu stundað þetta sem íþrótt eða sem dægradvöl þar sem siglt væri í rólegheitum meö fjölskyldunni. „Siglingarnar eru fjöl- breyttar og litlu kænumar eru alls ekki Aiit frá hatti oni sjó. Finnur á fartinni með vini sinum, Gunnari Hilmarssyni, fyrir nokkrum árum á ieið að íslandsmeistaratitlinum. Farkosturþeirra hór er svokallaður kænubátur. Og hatturinn fer Finni vel. dýrar. Menn halda aö þetta sé dýrt vegna þess aö stóru skúturnar eru nokkuð dýrar.” Víðátta hafsins stórkostieg Hann sagöi einnig aö aöstaðan væri ákjósanleg hér við land því að hér væri oft rok. „Og kuldann geta allir klætt af sér.” Að lokum sagði Finnur Torfi að sigl- ingar væru upplögð dægradvöl. Veittu mönnum mikla frelsistilfinningu. „Enda stórkostlegt að hafa víðáttu hafsinsfyrir sér.” SEGLBÁTAR Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Gunnar V. Andrésson Við fjöiium um seglskipin með vindum þíðum. Stöndum upp i stafni, skoðum fley og fagrar árar og ræðum svo við nokkra vikinga. Að lokum höldum við tii hafnar. „Spilakassinn var hjátrú” — segja sægarpar úr Garðabæ sem tóku þátt í heimsmeistarakeppninni í Topper-siglingum í Devon í Englandi í sumai Jón Gunnar Aðils, Guðmundur Ó. Guðmundsson og Guðmundur Kjœrnested skoða myndir frá heimsmeistarakeppninni i Devon i Eng- landi. „Fyrir utan að keppa er það friskt sjávarioftið sem gefur þessu gildi." Guðmundur Kjærnested (lengst tíl hægril er sonarsonur Guð- mundar Kjærnested skipherra. DV-mynd: JGH. Rótt fyrir eitt „startíð" i heimsmeistarakeppninni. „Það kom oft fyrir að við þurftum að synda með bétana að rásmarkinu vegna logns," sögðu þeir fóiagar. „Það var alveg hrikaleg pressa á okkur í keppninni. Viö sváfum í tjöldum og á hverjum morgni fórum við í klúbb siglingafélagsins og beint í spilakassann. Enda var þaö hjátrú hjá okkur aö spila því aö viö töldum það vera boö um góðan dag,” sagði Jón Gunnar Aðils, er viö ræddum við hann og félaga hans, Guðmund Kjærnested og Guömund 0. Guömundsson. En þeir félagar tóku þátt í heimsmeistarakeppni í Topper-siglingum sem fram fór í De von í Englandi í sumar. Þeir félagar sögöu aö níu þjóöir heföu tekið þátt í þessari keppni og hefðu um níutíu keppendur tekið þátt í keppninni. „Okkur brá lítillega þegar við sáum nokkra öldunga á meðal keppenda,” sögðu þeir félagar. Siglingasambandiö borgaöi far- gjöldin fyrir þá, en síðan sáu þeir um sig sjálfir. Með þeim í ferðinni var Daníel Friðriksson og var hann fararstjóri. Þeir félagar eru allir í Siglingaklúbbnum Vogi í Garðabæ. Keppnin í Devon fór fram í byrjun ágúst og tók um viku. I Devon bauðst þeim einnig að taka þátt í keppni í Noregi, sem þeir þáðu. Þeim félögum gekk ágætlega í keppninni í Devon, lentu allir um miðbik hennar og er það mjög viðun- andi árangur. En hvað er nú svona spennandi við siglingar á seglbátum? „Fyrir utan að keppa er það frískt sjávarloftið ■sem gefur þessu gildi,” sögðu þeir aö lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.