Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 258. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 11. iNÓVEMBER 1982. RITSTJÓRN SÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022 Sorgarlög ísovéska sjónvarpinu — spáirMagnús Torfi Ólafsson „Eg er þvímiður full ókunnugur innan dyra í Kreml til að geta spáð með nokkurri vissu um hver verður eftirmaður Breshnews,” sagði Magnús Torfi Olafsson, blaðafull- trúi ríkisstjómarinnar, er þessi spuming var borin fyrir hann. ,^n ekki kæmi mér á óvart að þeir Chervenenko og Andropov stöðvi hvor annars framrás til æðstu valda, svo að gerð verði málamiðlun og Thikonov forsætis- ráðherra verði um einhvém tíma merkisberi nýrrar samvirkrar forystu.” OEF Hðhyrningavaða heimsótti Reykjavík laust eftir hódegi í gœr. Um tíu hóhyrningar syntu inn ó Viðeyjarsund um tvö- leytið. Svömiuðu þeir inn að Kleppsvíkinni en sneru þar við. Friðrik Olafsson tapaði fyrir Filippseyingnum Campomanes í for- setakosningunum til Alþjóðaskák- sambandsins í morgun. I fyrri um- ferðinni fékk Campomanes 52 atkvæði, Friðrik 37 og Júgóslavinn Kazic 19 atkvæði. Campomanes og Friðrik kepptu því á ný, þar sem enginn fékk meirihluta og fékk Campomanes 65 atkvæði en Friörik 43. Campomanes er því nýr forseti FIDE. „Sovétmenn og þeirra fylgiþjóðir fóru yfir á Campomanes,” sagði Friðrik nú rétt fyrir hádegi. ,,Ég býst við að þeir hafi ekki getað fyrir- gefið mér Kortsnoj-málið. Eg gekk þar á móti þeim, en hafði áður lýst því yfir að ég stæði og félli með því máli. Eg hef reynt að þjóna skákinni og FIDE eins og ég hef best getað. Nú hafa náð yfirhöndinni þau öfl sem vilja annað og meira en skákina. Atkvæði Campomanesar eru fengin eftir öðrum leiðum en bjóðandi er alþjóðasamtökum sem þessum. En það er ekkert við því að gera. Atkvæði voru keypt. Eg veit ekki hvað þessi úrslit þýða. Þaðeru erfiðirtímarframundan.” -JH. Starfsmenn Hljómbæjar við Hverf- isgÖtu fylgdust með útsendingum sovéska sjónvarpsins i morgun. 1 sjónvarpinu voru eingöngu leikin sorgarlög. Sovéska sjónvarpið sendir yfirleitt ekki út á þessum tima, en vegna andlátsins var brugðið út af vananum. -KMU/DV-mynd: Bj. Bj. Myndlistog þeirsemdunda viðslíkt — sjá Dægradvöl á bls. 36 og37 BREZHNEV LATINN voru þeir horfnir út ó hafsauga. Ekki vita menn hvaða erindi hvalirnir óttu. Helst hóldu menn þó vera ó eftir síld en kannski voru þeir bara að forvitnast. -KMU/DV-mynd: Kristjón Mór Unnarsson. Leonid Brezhnev, forseti Sovét- ríkjanna, andaðist snemma í gær- morgun, sjötíu og fimm áraáð aldri. TASS-fréttastofan tilkynnti þetta opinberlega ímorgun, umsólarhring eftir að fráfall hans bar að. Var ekki annað sagt í tilkynningu TASS en að andlát forsetans hefði borið skyndi- lega að. I Moskvu er uppi kvittur um að Brezhnev hafi andast fyrr en hin opinbera tilkynning greinir. Brezhnev var æðsti valdamaöur Sovétríkjanna um átján ára bil, eða lengur en nokkur annar, síðan Jósep Stalín leið. Síöustu árin hefur hann átt við krankleika að stríða sem hamlaði honum við embættisstörf, þótt aldrei væri staðfest opinberlega í Kreml. Heilsa hans leyfði honum ekki stjómarstörf nema lengst tvær stundir á dag síöustu mánuðina. Hann kom til valda eftir Nikita Krúsjeff og deildi í fyrstu völdunum með tveim frammámönnum öðrum, en fljótlega bar meira á honum í stöðu framkvæmdastjóra kommún- istaflokks Sovétríkjanna. I hans stjórnartíö hafa áhrif Sovétríkjanna i heiminum aukist til mikilla muna þótt slitnaði upp úr vináttunni við kínverska kommúnistaflokkinn. ,J3etente” eða þíðan eins og slökunin á spennu kaldastríðsáranna var kölluö varð til fyrir atbeina Brezhnevs sem leiddi Sovétríkin að samningaborðinu með vesturveldun- um á öryggisráðste&iu Evrópu. Mannréttindaákvæði Helsinkisátt- málans vöktu vonir um að Brezhnev- stjómin mundi lina Kremlartökin á sovésku þjóðinni og íbúum austan- tjaldsríkjanna. En í tíð Brezhnevs var innrásin gerð í Tékkóslóvakíu og Afghanistan hernumið. Vafalaust þykir að það hafi verið fyrir þrýsting frá Brezhnevstjórninni sem herlög voru innleidd í Póllandi, verkföU bönnuö og önnur starfsemi óháðra verkalýðsfélaga bæld niður. I tíð Brezhnevs, upp úr öryggisráð- stefnunni í Helsinki, hefur fjöldi mannréttindabaráttufólks í Sovét- ríkjunum verið ýmist hnepptur í fangelsi eða dæmdur til útlegðar. Margir hafa verið lokaðir inni á geð- veikrahælum. Um þíðuna er því ekki iengur talað sem spennuslökun í sambúð austurs og vesturs og á ævikvöldi Brezhnevs voru allar vonir kólnaðar um aukin mannréttindi til handa hinni sovésku þjóð undir handleiöslu hans. -GP. Thikonov tekurvið J FRIÐRIK TAPAÐI Campomanes keypti FIDE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.