Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 5
DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982
5
Fréttirfrá Hvammstanga:
A thafnalffíð á Hvammstanga er blómlegt og þorpið i stöðugum uppgangi.
Þar fá starfsmenn við
slátrun ókeypis mat
— nýr prestur kominn á Melstað
Athafnalífiö á Hvammstanga er tölu-
vert og þar er engin kreppa. Sauöfjár-
slátrun er lokiö en stórgripaslátrun
stendur yfir. Fjöldi manns hefur unnið
við þessa vertíð og góö laun borguð.
Auk þess fengu starfsmennimir ókeyp-
is mat sem var lagður á kostnaö
bænda. Það er líklega einsdæmi í sauð-
fjáriöndum. A.m.k. í Skotlandi, sem er
með stærstu sauðfjárlöndum Evrópu,
verður hver sem vinnur við slátrun að
borga fæði og húsnæði. Og rækjuvertíð-
in gengur vel á Hvammstanga en ef
menn fá ekki hærra verð fyrir rækjuna
munu þeir legg ja niður vinnu 1. desem-
ber. Þetta getur haft þær afleiðingar
að erfiðara verður að selja rækjuna á
erlendum markaði þar sem verðbólg-
an er minni en hér. Eg sé ekki að neinn
rækjufiskimaður svelti þó hann slái af
kröfum sínum. Og svo má segja um
aðrarstéttir.
Nýr prestur er kominn á Melstaö og
er nú unnið að því að grafa fyrir nýju
prestssetri. Sr. Guðni Þór Olafsson
hefur fengið veitingu fýrir Melstaðar-
prestakalli. Hann er ungur og hálærð-
ur maður sem allir vænta mikils af.
Hitaveitan á Hvammstanga skapar
mikla möguleika og hafa Brynjólfur
Sveinbergsson mjólkurbústjóri og
Þórður Skúlason átt mikinn þátt í þess-
ari viðleitni. Þá stendur til að fá pípu-
orgel í Hvammstangakirkju og hefur
Helgi Olafsson verið mesti atorku-
maður í fjársöfnun og öðru í þvi sam-
bandi. Þess skal getið að Húnavatns-
prófastsdæmi er eina prófastsdæmi á
landinu sem hefur ekki enn pípuorgel í
kirkju.
Þrengsli eru mikil í Hvammstanga-
skóla og reyndist því nauðsynlegt að
kenna einnig í stofu í félagsheimilinu.
I sveitunum i Vestur-Húnavatns-
sýslu voru ýmsar framkvæmdir á ný-
liðnu sumri. Hús hafa verið bætt, fjár-
hús og hlöður byggðar á ýmsum stöð-
um og í Ambáttadalnum inn af Vatns-
nesinu, sem er afskekktur vél, er
komið líf á innsta bæinn. Hann hefur
verið í eyði í f jölda ára. Þar eru ungir
Vatnsnesingar famir að búa. Þeir heita
Ásbjörn Guðmundsson og Kristín
Guðjónsdóttir. Þau hafa komið sér vel
fyrir, gert mikiö við bæinn og komið
upp einkarafstöð, auk þess að vera að
fjölga skepnum sínum. Það er líka
sæla í sveitinni. rj.
Stefán lónsson
hættir á þingi
Stefán Jónsson alþingismaður gefur
ekki kost á sér í framboð fyrir Alþýðu-
bandalagið í Norðurlandskjördæmi
eystra við næstu þingkosningar. Stefán
lýsti yfir þessari ákvörðun sinni á
fundi Alþýöubandalagsins á Akureyri
um sl. helgi en hann dvelst nú erlendis
þannig að ekki var hægt að fá
upplýsingar um ástæður fyrir ákvörð-
unhans.
Forval verður meðal alþýðubanda-
lagsmanna í Norðurlandskjördæmi
eystra sem að líkindum fer fram öðru
hvorum megin við áramótin. Þegar er
ljóst að a.m.k. Soffía Guðmundsdóttir
og Helgi Guömundsson gefa kost á sér í
efsta sætið sem Stefán Jónsson hefur
skipað. GS/Akureyri.
Stefén er ákveðlnn í að hstta.
EKKISTEINAR BERG
HELDUR HJÖRLEIFUR
1 frétt blaðsins í þriðjudagsblaðinu
um hveitimyllu í Reykjavík var
ranglega skýrt frá því að Steinar Berg
Björnsson væri framkvæmdastjóri
Fóðurblöndunnar hf. Steinar Berg er
formaður þess fyrirtækis, en fram-
kvæmdastjóri er hinsvegar Hjörleifur
Jónsson. Leiðréttist þetta mishermi
hér með.
Áskriftarslininn
er 27022-
pV-getraumn
VILTU
OPELINN?
Vertu áskrifandi
strax.
Sendu inn sedil og
þú gœtir ordið
einum Opel Kadett
ríkari 15. nóvember
nk.
NUDD - KVOLDTLMAR...
Ný þjónusta í Æfíngastöðinni Engihjalla 8, Kópavogi
Láttu ekki vöðvabólgu, höfuðverk og stress hrjá þig að óþörfu - Vertu jákvæður
gagnvart sjálfum þér, þú átt það skilið. Pantaðu þér nuddtíma strax í dag!
Til viðbótar nuddinu færð þú aðgang að sturtum, saunaböðum, ólgupottum,
hárþurkum' og krullujárnum rrtr _ .
> okkar hugguiegu baðdeiid. Ttmapantomr i sttna 46900
ÆFING ASTÖÐIN ENGIHJALLA 8, KÓPAVOGl