Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Side 7
DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Verðlaunahafi júlímánaðar:
Vöramar
hækka
meðhverri
sendingu
—segir Helga Haraldsdóttir á
Sauðárkróki
„Það er alveg ágætt að versla hér á
Sauöárkróki. Reyndar er hér ekki mik-
ið úrval af húsgögnum og öðrum svona
stórum hlutum. En að öllu öðru leyti er
hér gott úrval og góð þjónusta,” sagði
verðlaunahafi Neytendasíðunnar fyrir
júlímánuð, Helga Haraldsdóttir á
Sauðárkróki.
Helga valdi sér í verðlaun útvarps-
tæki frá Radíóþjónustunni á Króknum.
Átti hún ekkert útvarp fyrir þannig að
tækið kom sér mjög vel. Fréttaritarinn
okkar á Króknum skrapp í kvöldheim-
sókn til Helgu og f ærði henni tækið.
Helga hefur haldiö bókhald með
okkur frá því í febrúarbyrjun. Ég
spurði hana hvers vegna hún hefði
byrjaðáþví.
„Til aö geta fylgst betur með. Ég er
ekki frá því að ég geti eitthvað sparað
meö þessu þó eflaust sé hægt að spara
enn meira en ég geri.”
Helga vinnur í verslun sem nefnd er
Grána. Er það ein af kjörbúðumKaup-
félags Skagf irðinga. Hún hefur því gott
tækifæri til að fylgjast með verð-
hækkunum. Hún var spurð hvort henni
þætti mikill hraði á verðbólgunni.
„Mér finnst bókstaflega allt hækka
með hverri nýrri sendingu. Þetta er
alveg hryllilegt,” svaraði hún.
Erfíttaðláta
enda ná saman
Helga á þrjú böm, Berglindi Rós 11
ára, Ara Björn 9 ára og Silju Rut 1 og
1/2 árs. Hún vinnur allan daginn í búð-
inni en finnst samt erfitt að ná endum
saman. „Þetta er líka of mikil vinna
með þrjú böm,” sagði hún. 1900 krónur
af kaupinu fara beint í leigu fyrir íbúð-
ina sem þau búa í svo fljótt er aö sax-
astálaunin.
Helga sagði að núna væra útgjöldin
hjá sér líka mjög há. Hún kaupir naut í
hálfum skrokkum og kindakjöt í heil-
um. Slátur tekur hún einnig, en lítið,
því börnin em ekki of hrifin af því.
Helga sagði að á Sauðárkróki væri
núna í sláturtíðinni hægt að fá ófrosið
kjöt sem væri ódýrara en frosið. Sagð-
ist hún notfæra sér slíkt eftir mætti.
-DS/GÞG, Sauðárkróki.
Skora á fólk
að kaupa ekki
erlend-
ar kökur
Halldóra Jðnsdóttir hringdi:
Mig langar að koma þeirri áskorun
til fólks að kaupa ekki innfluttar kök-
ur. Það hefur komið fram að inn-
flutningur á kökum hefur aukist um
helming frá því í fyrra. Mér hefði
þótt í lagi aö hann minnkaði heldur
um helming. Ég vil ekki láta eyða
gjaldeyrinum okkar íþetta. Fólk veit
heldur ekkert þegar það er að kaupa
þessar erlendu kökur hvenær þær
hafa verið bakaðar. Þær geta verið
búnar að vera lengi á leiðinni til
landsins og lengi í misjöfnum
geymslum áður en þær eru borðaöar.
Ég vil að viö styrkjum heldur okkar
bakara og komum í veg fyrir að þeir
fari á hausinn með því að kaupa
fremur íslenskar kökur en erlendar.
Hildur Ragnars hringdi einnig:
Mig langar líka til að mótmæla
þessum kökuinnflutningi öllum. Ég
held að fólk sé ekki eins meðvitað hér
og víða erlendis um það hvað það læt-
ur ofan í sig. Þessar kökur eru til
dæmis fullar af rotvarnarefnum sem
íslenskir bakarar hafa marglýst yfir
að þeir noti ekki.
Við hérna getum tekið undir orð
þeirra Halldóru og Hildar. Þessar
erlendu kökur eru örugglega sumar
orðnar háaldraðar og lítil hollusta
hlýtur að vera í því að borða þær. Is-
lenskar kökur sem fást í búöum eru
oftast líka alveg samkeppnisfærar.
En þær geymast líklega ekki eins
lengi vegna skorts á rotvamarefni
og kannski er það þess vegna sem
fólk kaupir þær síður. En íslenskt, án
rotvarnarefna, hlýtur að vera betra
en gamalt, erlent með rotvarnarefn-
um.
DS
Holga Haraldsdóttir, verðlaunahafi júlimánaðar, meö börnunum sinum, Ara Birni, Berglindi Rós og Siiju
Rut. Berglind heldur ó útvarpstækinu sem Helga valdi sórsem vinning.
DV-mynd G.Þ. G. /Sauðárkróki.
Handsugan fró B&D er
hönnuð sérstaklega fyrir
smáóhöppin sem koma fyrir
á heimilum og þegar of
mikil fyrirhöfn er að nota
venjulegu ryksuguna.
Handsugan er nett og hand-
hæg og ávallt reiðubúin.
Börnin hafa líka gaman af
að ryksuga með nýju hand-
sugunni frá B&D.
ÚTSÖLUSTAOIR UMLANDALLT
G. ÞORSTEINSSOIM & JOHNSON
S—85533. ÁRNIÚLA1
Handsugan er hentug fyrir
ryksugun á húsgögnum,
tröppum og á aðra staði þar
sem venjuleg ryksuga er
óhentug.
Með B&D handsugunni
fylgir hleðslutæki og haldari
sem festist á vegg eða inni í
skáp.
B/ack&Decken
9330 HANDSUGAN SNÚRULA USA