Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Side 12
12 DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982 DAGBLAÐIÐ-VÍSIR . Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR.MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFÚR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreíðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. Sl'MI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI 1». Áskriftarverð á mánuði 130 kr. Verö í lausasölu 10 kr. Helgarblað 12 kr. Ekki bara hópsálir Eins og önnur flókin þjóöfélög þurfum viö mikið af góö- um embættismönnum, varðveizlumönnum kerfisins. Þeir þurfa ekki aö vera menn athafna og átaka, heldur þjálf- aðir í góðu, hnökralausu samstarfi svo aö allt gangi sinn vanagang. Enginn skortur er á slíku fólki, enda hafa skólamir, alla leiö upp í háskóla, frá ómunatíð lagt mesta áherzlu á aö framleiða embættismenn, slétta og fellda menn, sem engum vandræðum valda og eru góöir til samstarfs. Einnig þurfum viö mikið af góöum tæknimönnum, sem þekkja vel sérgreinar sínar án þess að vera þar menn nýj- unga eða uppfinninga. Þjóðfélag okkar er orðið svo tækni- vætt, að sérfræðingar þurfa að vera á hverju strái. Til skamms tíma skorti sérfræðinga á mörgum sviðum. Það er ört að breytast, enda einstefnir skólakerfið að há- skólanámi sem flestra. Straumurinn í Háskóla íslands er orðinn svo stríður, að skólinn er nánast að springa. Við erum jafnvel svo lánsöm að vera farin að eignast útgerðartækna, fiskiðnfræðinga og iðnaðarverkfræðinga, auk allra hefðbundnu fræðinganna og embættismann- anna. Við stefnum að því að eiga þrautskólaða tækni- menn á öllum sviðum. Meira að segja Háskóli íslands, sem lengst af var emb- ættisvígi guðfræðinga, lækna og lögfræðinga, er að verða að tæknistofnun. Hann er farinn að útskrifa lokaprófs- menn í ýmiss konar verkfræði og tækni í stórum stíl. Sem betur fer. Þannig hefur skólakerfið víkkað svo, að það stefnir ekki lengur eingöngu að framleiðslu deildarstjóra opinberra stofnana, heldur einnig að framleiðslu sérfræðingaliðs fyrir svokallaða starfshópa á vegum ráðuneytanna! Skólakerfið er kjörið til ræktunar þessara tveggja nyt- samlegu manngerða. Það leggur áherzlu á samstarf í hópum. Kennslan er miðuð við þarfir miðjunnar. Til við- bótar er stundum reynt að lyfta upp eftirbátunum. Hinir, sem eitthvaö geta umfram hið venjulega, eru að mestu látnir afskiptalausir. Sumu neistafólki leiðist svo aðgerðaleysið í skólunum, að það hrökklast þaðan brott. / Annað lætur skólana draga sig niður í meðalhófið. í þessum hópi eru efni í hugvitsmenn, sem gætu hvert orðiö þjóðinni meira virði en hundrað embættismenn og tæknimenn. En þeir rekast illa í meðalhjörð og þeim leið- ist hópvinna, þar sem enginn ber ábyrgð á neinu. Við vitum, að hugvitsmenn hafa sumir bylt hag heilla þjóða eða jafnvel allra þjóða jaröar. Við getum reiknað með, að það borgi sig að reyna að rækta þá í skólakerfinu, en samt lyftum við ekki litla fingri. I hópnum, sem skólakerfið viðurkennir ekki, eru líka efnin í braskara, mennina, sem hafa lag á að finna smug- ur og göt og að búa til auð úr engu. Slík efni veslast líka upp í áherzlu skólanna á hópvinnu og meðaltalsmennsku. Við vitum samt, að þjóðfélag eins og Sovétríkin mundi hrynja, ef ekki væru til braskarar til að útvega í hvelli þessar tíuþúsund skrúfur í dráttarvélar, sem völundar- hús kerfisins ræður ekki við að afhenda fyrr en eftir þrjú ár. Nú þegar við erum að verða birgir af tæknimönnum, til viðbótar gífurlegu framboði embættismanna, væri ekki úr vegi, að skólarnir færu að reyna að stuðla að útvegun hugvitsmanna og braskara, sem eru raunar enn mikil- vægari. Jónas Kristjánsson Aðsynb eðasökkva Hin gífurlega skuldasöfnun Islend- inga hefur undanfarið komist áþreif an- lega í umræður manna. Fyrst sagði seðlabankastjóri, dr. Jóhannes Nor- dal, þau einföldu sannindi í við- talsþætti í sjónvarpi að fullri atvinnu hefði ekki verið haldiö uppi með dýrtíð, heldur erlendri skuldasöfnun, síðan birtist frétt á sjónvarpsskjánum um það aö hvert mannsbam á Islandi skuldaði sem næst 4 þúsund Banda- rík jadali erlendis, eöa um 64 þúsund is- lenskar „ný”krónur. Við erum þannig hátt í þrefalt skuldugri hvert manns- bam en þær þjóöir, sem mest hafa ver- ið í heimsfréttunum vegna skulda sinna, Mexíkanar og Pólverjar. Að vísu eru aðstæður okkar að mörgu leyti ólíkar þeirra við aö borga skuldirnar, eða því trúum viö að minnsta kosti. Engu að síður ber okkur að gera það og það er alveg ljóst að við erum komin fram á ystu nöf hengiflugs sem ekkert bendir enn til að viö komumst hjá að. dúndra framaf. Hvenær fellur tjaldið? Sú regla er mjög aigeng, þegar skoðaðar em skuldir þjóða, að miða þær viö verðmætasköpun, gjaldeyris- tekjur og þjóðarframleiöslu. Eftir því fer lánstraustið og lánakjörin einnig að nokkru leyti. Oneitanlega stöndum við aö þessu leyti betur en flestar þeirra þjóða sem nú berjast haröast um í A FIMMTUDEGI Magnús Bjarnf reðsson okkur skilaöi aftur á land sem efna- hagslega sjálfstæðri þjóð. Við þekkjum úr okkar daglega lífi dæmi sem eru ákaflega hliðstæð stöðu okkar sem þjóðar nú. Þegar við förum til bankastjóra er hann yfirleitt með einhverjar upplýsingar um okkur á borðinu hjá sér, þegar viðtalið hefst. Þar sér hann hve góðir viðskiptavinir við höfum verið, hvernig viö höfum staðiö í skilum, hvert gjaldþol okkar virðist vera. Oneitanlega fara viðtök- umar oftast eftir því hvernig þessar upplýsingar eru þótt góðsemi komi á stundum inn í spilið, þegar ljóst er að illa stendur á. En stundum kárnar gamanið. Við skulum búa okkur til sögu um mann sem viö þekkjum öll úr daglega lífinu í kringum okkur. Við skulum kalla hann Jón. Hann er með allgóða menntun, var galvaskur ungur maður ,,Þaö er alveg ljóst að við erum komin á ystu nöf hengiflugs sem ekkert bendir enn til að við komumst hjá að dúndra fram af.” skuldafjötrunum. Engu að síður er svo sem var hvergi hræddur við að takast fyrir okkur komið að okkur er hollt að á við erfiðleika og sigrast á þeim. Við staldra aðeins við og virða fyrir okkur löðuðumst að honum og höfðum trú á gengna slóð áður en við hoppum fram því að hann spjaraði sig vel. af, það gæti orðið okkur að gagni ef Jón stofnaði ungur fyrirtæki og fór Þegar litið er yfir stjómmálabar- áttuna undanfarna áratugi og reynt að gera sér grein fyrir því, hvaða vopn hafa reynst beittust í stjómmála- baráttunni, kemur margt skringilegt í ljós. Blekkingar hafa verið alveg eins gagnlegar og sannleikurinn til áhrifa! Þetta er nöturlegt. Þótt stjórnmála- menn og hagsmunaforingjar verði berir að blekkingum, virðist það litla þýðingu hafa. Menn segja bara, ja svona er pólitíkin! Að sjálfsögöu em margir stjómmálamenn stálheiðar- legir og grípa ekki til blekkinga en fólk er ekki sammála um það, hvaða menn það eru. Ef leggja á sannleikann undir atkvæðagreiðslu, er engin vissa fyrir því að hann hljóti kosningu. Ef lygin er talin þjóna eigin hagsmunum eða eigin stjómmálaskoðunum, er hún talin góð og stundum sannleikur Hvar eru mörkin milli fíeipurs og fáránleika? Svavar Gestsson sagði nýlega í sjón- varpsþætti að efnahagsáfall íslensku þjóöarinnar nú eigi sér engar hliöstæður um áratuga skeiö. — Efnahagsáfallið 1967—1968 var miklu meira. Nálægt 45% af útflutnings- tekjum þjóðarinnar hurfu á einu og hálfu ári vegna aflabrests og slæms markaösástands á fiskmörkuöum. Þetta vita allir sem einhverja þekkingu hafa. Allaballar og fram- sóknarmenn telja það pólitíska frágangssök að minnast á þetta og stöðugt tyggja þeir þetta upp. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Tímans, ritaði leiðara eftir leiöara í blaði sínu um veturinn 1979-80 (fyrir síðustu alþingiskosningar) og hamraði í sífellu, að viðreisnartíminn hefði ein- kennsí af atvinnuleysi, lífskjara- rýmum og landflótta. Aldrei minntist sá „heiðursmaður” á það að þetta var mesta efnahagsframfaraskeið þjóð- arinnar en erfiðleikaárin í lok þess byggðust m.a. á hvarfi síldarinnar. Jónas Bjamason Þessir herramenn telja sig verða að gera meira en þegja yfir viöreisnarár- unum. Þeir fara með fleipur um þau. Lúðvík Jósefsson hélt því fram í lok síðasta áratugar að engin offram- leiðsla væri í landbúnaði. Fólk borðaði bara ekki nóg af kindakjöti og mjólkur- afurðum því það hefði ekki efni á þvív Ríkisstjóm Geirs Hallgrimssonar hefði rænt kaupmættinum! Þannig átti að slá tvær flugur í einu höggi! Það er fyrst núna sem fólk er farið að sjá það og viðurkenna að gífurleg offram- leiðsla var á kindakjöti og mikil í mjólkurframleiðslu. Kindakjötsát og mjólkurdrykkja Islendinga er og var í sérflokki. Verkalýðsleiðtogar hamra á því að vísitölubætur á laun valdi ekki verðbólgu og vitna í því sambandi m.a. 'í könnun sem Jón Sigurðsson forstjóri Þjóöhagsstofnunar gerði fyrir nokkrum árum síðan. Verðbólga var víst ekkert meiri á vissum tímabilum, bæði hérlendis og erlendis, þegar verðlagsbætur voru á launum. > Sannleikurinn mun vera sá að greinar- mun veröur að gera á ábyrgum og óábyrgum samningum og verðlags- bótum i kjölfar þeirra. Ef kjarasamn- ingar fela í sér kauphækkanir sem eru í samræmi við aukningu þjóðartekna og borgunargetu atvinnuveganna, eru verðlagsbætur ekki meira verðbólgu- valdandi en kjarasamningar án þeirra. En verðlagsbætur í kjölfar samninga eins og sólstöðusamning- anna eru stórlega verðbólguhvetjandi. Það er reyndar ótrúlegt að óprúttnir verkalýðsleiðtogar skuli enn komast upp með þvættinginn. Hver sjávarútvegsráðherrann á fætur öðrum heldur því fram að aðeins sé verið að endumýja fiskiskip þegar ný eru keypt. Það er skrýtin endur- nýjun sem á nokkurra ára tímabili hefur leitt til þess að flotinn hefur stækkað stórlega og er nú að hluta til verkefnalaus. Forystumenn bænda hafa um áratuga skeið talað um sveltandi heim og nauðsyn á markaðsstarfi fyrir íslenskt kindakjöt. Á sama tíma hafa þeir lamið fram gífurlega offram- leiðslu á kostnað skattborgaranna. Þegar grannt var skoðaö var augljóst að kindakjötsframleiðsla á Islandi yrði aldrei skynsamleg til aö bæta úr sulti eða til að keppa við Nýsjálendinga og ýmsa aðra um verð. Þetta var augljóst öllum sem vildu sjá. En ekki vantaði árásirnar á þá sem bentu á þetta. Svo samþykktu menn bara ályktanir um stórátak í markaðsmálum og héldu áframiðjusinni. Efnahagsitfió er rjúkandi rústir Herkostnaður blekkinganna á liðn- um áratug er nú að verða flestum aug- ljós. Verðbólga hefur verið á bilinu 50—60% lengst af. Forsendur atvinnu- lífs eru allt of ótryggar. Menn segja að verðbólga sé betri en atvinnuleysi en það sem hefur gerst er að atvinnuleysi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.