Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Blaðsíða 31
DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982
31
Andlát
Páll Einarsson lést 5. nóvember. Hann
fæddist 1. ápríl 1911. Sonur hjónanna
Guðrúnar Jónsdóttur og Einars Jóns-
sonar. Páll starfaði hjá Sláturfélagi
Suöurlands i mörg ár, síöan var hann
húsvörður hjá Sjálfsbjörg. Utför hans
var gerð frá Fossvogskirkju í morgun
kl. 10.30.
Þorsteinn Marinó Sigurðsson, Oðins-
götu 21, lést i Landspítalanum 9.
nóvember 1982.
Kristján Guðlaugsson hæstaréttarlög-
maður verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 12. nóvember
kl. 15. e.h.
Lárus Hinriksson, fyrrum bifreiðar-
stjóri frá Akureyri, verður jarðsung-
inn frá Kópavogskirkjuföstudaginn 12.
nóvemberkl. 13.30.
Ölöf Þorleifsdóttir frá Hömrum verður
jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 13. rióv. kl. 14.
Sigfrið Bjamadóttir, Heiði Reyðar-
firði, verður jarðsungin frá Búðar-
eyrarkirkju f östudaginn 12. nóv. kl. 14.
Margrét Tómasdóttir, Hamrabergi 12,
áður Grettisgötu 58b, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
12. nóv. kl. 10.30.
Tilkynningar
Ferðafélag íslands
Dagsferftir sunnudaginn 14. nóv.
Kl. 13 — Lambafell (546 m) — Eldborgir. Ekift
Þrenglsaveg. Verö kr. 150.00. Létt ganga fyrir
alla fjölskylduna. Frítt fyrir böm í fylgd full-
orðinna.
ATH: Oskilamunir eru á skrifstofunni, þar
á meðal nokkrar myndavélar.
Frá íþróttafélagi
fatlaðra
Hér með tilkynnist að Iþróttasamband fatl-
aðra hefur ráðið til sín framkvæmdastjóra,
Markús Einarsson. Einnig hefur IF. opnað
skrifstofu að Háaleitisbraut 11,2. hæð. Síminn
er 86301. Til að byrja með verður skrifstofan
opin 10 tíma á viku sem hér segir: þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 10—12, miðvikudaga og
föstudaga kl. 15—18. Það er von stjórnar IF.
að ráðning framkvæmdastjóra og opnun
skrifstofunnar megi verða til þess að auka
enn starfsemi sambandsins, og fleiri fatlaðir
fái tækifæri til að stunda íþróttir við sitt hæfi.
Að lokum vill stjóm IF. benda á að þó svo að
skrifstofan sé til húsa að Háaleitisbraut 11
viljum við sem fyrr að bréf til sambandsins
verði stUuð á: Iþróttasamband fatlaðra, box
864, Iþróttamiðstöðinni Laugardal, 104
Reykjavík.
Þetta er þó furðulegt... alfræði-
orðabókina misminnir Iika...
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Þessi þrjú böm, Kristín Þóra, 7 ára,
Egill öm, 4 ára, Egilsböra og Þórunn
Þórsdóttir, 5 ára, héldu tombólu í
„Jæja, þá eru það dömubindiiT
Að venju hófst dagskrá sjónvarps
með fréttum. Fréttir eru alltaf frétt-
ir og kemur enn á óvart hve lítið er
hægt að segja í jafnmörgum orðum.
Þulurinn hefur orðið, allir f jölskyldu-
meðlimir kepptust við að hlusta.
Enginn man síðan stundinni lengur
um hvað var fj allað.
Úr auglýsingaþættinum greip ég
eina setningu: „þá em það dömu-
bindin” — minnkuð fyrirferð.. .Ber
að lofa það sem vel er gert. Aldrei er
góð vísa of oft kveðin og var þáttur-
inn um meðferð gúmbjörgunarbáta
mjög þarfur. Meira i þessum dúr.
Nú Dalias var á sínum stað í dag-
skránni eins og vænta mátti yfirfull-
ur af fjölskylduvandamálum. Þó
kom það á óvart að þessi þáttur var
mikið til laus við væmni. Upplifði
maður ekta „ekta Westra” stemmn-
ing á tímabili. Af þessum þætti mátti
læra að enginn veit sína ævina fyrr
en öll er. Losnar þá gjarnan um mál-
beinin þeirra sem eitthvað hafa á
samviskunni. Er hér átt við bak-
þankaJock’sEwing.. .
Síðast á dagskrá var gítarleikur og
söngur Olle Adolphson. Er lista-
maðurinn án efa ágætur fulltrúi sinn-
ar listgreinar.
Anna Snædis Sigmarsdóttir.
Flóamarkaður
Kvenfélag Hreyfils verður með basar, flóa-
markað og kökusölu í Hréyfilshúsinu 14.
nóvember kl. 14.
Bókakynning í
Nýja kökuhúsinu
Nokkur undanfarin fimmtudagskvöld hafa
veriö bókakynningar í Nýja kökuhúsinu við
Austurvöll. Hafa höfundar kynnt þar bækur
sinar. Meðal annarra kynnti Guðmundur
Sæmundsson bók sína „O það er dýrlegt að
drottna”, Einar Laxnes las úr bókinni „Jakob
Hálfdanarson sjálfsævisaga, bemskuár
Kaupfélags Þingeyinga”. Síðasta fimmtudag
las Valgerður Þóra úr bók sinúi „Böm ór-
anna”, en þá las Aðalsteinn Bergdal leikari úr
verkum Bólu-Hjálmars.
I kvöld, fimmtudaginn 11.11.1982, les Guðrún
Svava Svavarsdóttir úr bók sinni „Þegar þú
ert ekki”. Er þetta fyrsta bók Guðrúnar, en er
hún þekktari sem myndlistarmaður en rit-
höfundur, og er mjög spennandi að sjá
hvemig henni hefur tekist til á ritvellinum.
Að lokinni kynningu Guðrúnar verður lesið
upp úr nýjustu bók Andrésar Indriðasonar er
nefnist „Maður dagsins”.
Upplesturinn hefst kl. hálf níu en húsið er opið
til kl. hálf tólf. Gengið er inn í Nýja kökuhúsið
frá Austurvelli en einnig er Bókaverslun Isa-
foldar opin frá Austurstræti.
Frá félagsvísindadeild
Háskóla íslands
Svanur Kristjánsson prófessor flytur opinber-
an fyrirlestur á vegum félagsvísindadeildar
Háskóla Islands fimmtudaginn 11. nóvember
1982 kl. 20.30 í stofu 101 Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist: „Kommúnistaflokk-
urinn: Þjóðlegur verkalýðsflokkur eða hand-
bendi Stalíns?” Fyrirlesturinn er öllum op-
inn. Félagsvísindadeild Háskóla Islands.
Námskeið í
skyndihjálp —
alla næstu viku
Rauða krossdeild Kópavogs gefur bæjarbúum
og öðrum sem hafa áhuga kost á námskeiði í
almennri skyndihjálp. Námskeiðið verður
haldið í Víghólaskóla Kópavogi. Kennari er
Guðlaugur Leósson og eru menn beðnir að til-
kynna þátttöku sina í síma 41382 á milli klukk-
an 15 og 20 sunnudaginn 14. nóvember. Nám-
skeiðið hefst mánudaginn 15. nóvember kl. 20.
Alls verður kennt 5 kvöld, samtals 12 tíma
sem samsvara 18 kennslustundum og er unnt
að fá þær metnar í fjölbrauta- og iðnskólum.
Reynt verður að veita sem mesta verklega
þjálfun á námskeiðinu. Einnig verða sýndar
kvikmyndir um skyndihjálp og áhrif kulda á
likamann.
Nýlega héldu þessar ungu stúlkur
hlutaveltu tll styrktar Rauða krossi Is-
lands. Alls söfnuðu þær 377,50 kr. Þær
Verkakvennafélagið
Framsókn
Félagskonur eru minntar á basarinn 20.
nóvember. Vinsamlegast komið basar-
munum á skrifstofuna sem er opin frá kl. 9—
12 og frá kl. 13-17.
Basar kvenfélags
Háteigssóknar
verður laugardaginn 13. nóv. kl. 13.30 í
Tónabæ. Mikið úrval verður af handavinnu og
kökum. Tekið verður við gjöfum til basarsins
i kirkjunni föstudaginn 12. nóv. milli kl. 17 og
20.
Leikfélag Hornafjarðar
sýnir Skáld Rósu í
Kópavogsbíói
Föstudagskvöldið 12.11 kl. 20.30 sýnir
Leikfélag Homafjarðar leikritið Skáld Rósa
eftir Birgi Sigurðsson. Leikstjóri er Jón
Sigurbjömsson og aðalleikarar Ingunn Jens-
dóttir, Haukur Þorvaldsson og Halldór
Tjörvi.
Ráðstefna
um vinnuvernd
Vinnueftirlit rikisins og aðilar vinnumarkað-
arins halda ráðtefnu að Hötel Loftleiðum 11.
og 12. nóvember.
Starfshópur skipaður fulltrúum Alþýðu-
sambands Islands, Bandalags starfsmanna'
ríkis og bæja, Vinnuveitendasambands Is-
lands, Vinnumálasambands samvinnufélag-
anna og Vinnueftirliti ríkisins hefur að undan-
förnu undirbúið ráðstefnu sem haldið verður
að Hótel Loftleiðum dagana 11. og 12. nóvem-
ber nk. Hefur meðal annars verið boðið til
ráðstefnunnar tveimur erlendum gestum,
Mogens Falk skrifstofustjóra danska Vinnu-
veitendasambandsins og Jörgen Elikofer full-
trúa í danska Alþýðusambandinu.
Ráðstefnan verður sett kl. 9.00 að fimmtu-
dagsmorgni þess 11. með ávarpi félagsmála-
ráðherra en að öðru leyti skiptist efni ráð-
stefnunnar í þrjá höfuðflokka.
Fyrsta efni á dagskrá nefnist, Viðfangsefni
vinnuveradar, og verða fluttir þar sex fyrir-
lestrar.
I öðra lagi verður tekið fyrir efnið Fram-
kvæmd vinnuveradar og verða þar fluttir
fimmfyrirlestrar.
Að síðustu verður á dagskrá efni sem ber
yfirskriftina Þjóðfélagsiegt gildl vinnuvernd-
ar. Þar flytur Eyjólfur Sæmundsson erindi
sem hann nefnir, Vinnuvemd og efnahagur.
Mogens Falk skrifstofustjóri mun kynna
mönnum viðhorf og starfsemi danska Vinnu-
veitendasambandsins á sviði vinnuvemdar
og Jörgen Elikofer fulltrúi mun f jalla um við-
horf og starfsemi danska Alþýðusambandsins
á þessu sviði. Sjónarmið aðila vinnumarkað-
arins hér á landi verða einnig kynnt. Ávörp
flytja þeir Ásmundur Stefánsson forseti
Alþýðusambands Islands, Þórarinn V. Þórar-
insson lögfræðingur Vinnuveitendasambands
Islands, Kristján Thorlacius formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Þor-
steinn Geirsson skrifstofustjóri fjármála-
ráðuneytisins og Júlíus Kr. Valdimarsson
framkvæmdastjóri Vinnumálasambands
samvinnufélaganna. Að síðustu munu fulltrú-
ar þingflokka stjórnmálaflokkanna flytja
ávörp.
Gert er ráð fyrir að umræður verði að lokn-
um hverjum efnisflokki fyrir sig. Ráðstefn-
unni lýkur síðan með móttöku félagsmála-
ráðuneytisins. Samhliða ráðstefnunni verður
efnt til sýningar nokkurra fyrirtækja sem
hafa á boðstólum vinnuveradarbúnað og leið-
beiningaraðila á sviði vinnuvemdar. Skráðir
þátttakendur á ráðstefnunni eru tæp tvö
hundruð víðs vegar að af landinu.
Sýning að
Kjarvalsstöðum
Dagana 5,—20. febrúar nk. verður efnt til
sýningar að Kjarvalsstöðum á verkum ungra
myndlistarmanna. Sýningin er haldin á
vegum stjórnar Kjarvalsstaöa og er þátttaka
miðuð við listamenn 30 ára og yngri. Frestur
tU þess að skUa vcrkum er tU 10. janúar nk.
Sérstök dómnefnd f jaUar um innsend verk,
en hana skipa myndlistarmennirnir Einar
Hákonarson, Jón Reykdal, Kristján
Guðmundsson og Helgi Gíslason, og Þóra
Kristjánsdóttir listráðunautur. Þá verður og
veittur ferðastyrkmyog velur dómnefndin úr
hópi þátttakenda þann sem styrkinn hlýtur.
Greidd verða dagleigugjöld fyrir þau verk
sem vaUn verða á sýninguna.
Þá er fyrirhugað að flytja verk ungra tón-
skálda á Kjarvalsstöðum í tengslum við þessa
sýningu.
Fjalakötturinn —
kvikmyndaklúbbur
Fimmtudaginn 11. nóv. verður aukasýning á
myndinni Under MUkwood sem gerð er í
Bretlandi 1972 eftir hinu fræga leikriti Dylan
Thomas með þeim Richard Burton, EUsabeth
Taylor og Peter O’Toole í aðalhlutverkum en
leikstjóri er Andrew Sinclair. Leiksviðið er
ímyndað þorp á strönd Wales en gæti verið
hvaða þorp sem er. Það gerist á einum degi
og lýsir hugsunum og gerðum þorpsbúa. Um
helgina lýkur sýningum á Trial eða Réttar-
höldunum. Leikstjóri er Orson Welles og er
myndin byggð á sögu Franz Kafka. Þessi
mynd er gerð í Frakklandi 1962 og fjaUar hún
um Joseph K. sem á að leiða fyrir rétt án þess
að nokkur sjáanleg ástæðu sé fyrir því. Það er
Anthony Perkins sem leikur aðaUilutverkið.
Um helgina verður einnig sýnd myndin Hníf-
ur í vatnlnu. Leikstjóri er Roman Polanski og
er myndin gerð í PóUandi 1962. Þetta er fyrsta
mynd hans í fuUri lengd og hefur hlotið f jölda
verðlauna. Hún fjallar um ung hjón sem ætla
að eyða helgi um borð í seglskútu. Á leiðinni
taka þau upp í bUinn ungan puttaUng og þegar
á leiðarenda er komið bjóða þau honum að
koma með á seglskútunni. MUli þessa fólks
myndast mikU spenna. Gríska myndin SteUa
verður einnig sýnd í síðasta sinn um helgina.
Sú mynd er gerð í Grikklandi árið 1956. Leik-
stjóri er Michael Cacoyannis, sá sem gerði
Zorba, en í aðalhlutverki er Melina Mercouri.
Skaftfellingar
SpUakvöld verður í Skaftfellingabúð, Lauga-
vegi 178, laugardaginn 13. nóv. kl. 21.00. Tríó
Þorvalds leikur fyrir dansi. Skaftfellingar
fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skaftfellingafélagið.
Frá Kattavinafélaginu
Siamslæða er í óskUum hjá Kattavinafé-
laginu, sími 14594.
Föndurnefnd Kirkjufélags
Digranesprestakalls
gengst fyrir námskeiði í sUkiblómagerð
laugardaginn 13.11. kl. 14 í safnaöarheimUinu
við Bjamhólastíg. Mætum vel og stundvís-
lega.
heita Anna Bára Ölafsdóttir, Agnes
Sigurðardóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir
og Lóa Dís Finnsdóttir.
Hafnarfirði. Söfnuðu þau 220 krónum
til styrktar hungmðu bömunum er-
lendls.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur
Konur munið lögfræðiþjónustu Mæðrastyrks-
nefndar. Lögfræömgur nefndarinnar er frú
Sólveig Pétursdóttir og eru viðtalstímar aUa
mánudaga frá kl. 10—12 f.h. Skrifstofa nefnd-
arinnar er opin þriðjudaga og föstudaga frá
kl. 14.-16.
Kvennadeild Breið-
firðingafélagsins
heldur fund miðvikudaginn 10. nóvember í
Bústöðum kl. 20.30. Snyrtivörukynning.
Stjórnin.
JC Breiðholt
Klúbbarnir öruggur akstur, Samvinnu-
tryggingar í Reykjavík. Almennur Borgara-
fundur.
Getum við dregið úr tíðni umferöarslysa?
Hvar kreppir skórinn í þeim efnum? Eru ein-
hverjar úrbætur á döfinni í þessum málum?
Viö vUjum hvetja þig tU þess að koma á opinn
almennan borgarafund um umferðarmáUn
fimmtudaginn 11. nóvember 1982 að Hótel
Sögu Súlnasal kl. 20.00, hlýða á framsögu-
erindi um þessi mál og taka þátt í opnum
umræðum á eftir.
Við vUjum heyra þitt álit, það getur skipt
sköpum í baráttunni gegn umferðarslysum.
Okeypis kaffiveitingar verða á fundinum og
erum við sannfærð um að við förum öll mun
fróðari heim eftir fundinn en áður. Fjölmenn-
Um, þín þátttaka er mikUvæg.
Avarp: Ágúst Már Grétarsson forseti JC
Breiðholti. Frummælendur: Baldvin Ottós-
son, formaöur landssambands klúbbanna
öruggur akstur. Rögnvaldur H. Haraldsson,
fuUtrúi. Oskar Olason, yfirlögregluþjónn. OU
H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðar-
ráðs. Fundarstjóri Erlendur Kristjánsson, JC
Breiðholti.
ATH. Þingmönnum Reykjavíkur, borgarfuU-
trúum og forustumönnum í umferðarmálum
boðið sérstaklega.
Knattspyrna
Æfingatafla
knattspyrnudeUdar Víkings ’82—’83.
Réttarholtsskóli: Karlaflokkur
,Mfl.sunnudagur
Öldungar sunnudagur
2. fl. sunnudagur
3. fl. sunnudagur
4. fl.sunnudagur
5. fl. laugardagur
6. fl. laugardagur
Kvennaflokkur
Mfl. föstudagur
Yngri flokkur sunnudaga
kl. 16.35-17.50
kl. 17.50-18.50
kl. 15.20-16.35
kl. 14.05-15.20
kl. 12.50-14.05
kl. 12.50-14.30
kl. 14.30-16.10
kl. 21.20-23.00.
kl. 9.30-11.10.
Æfingatafla knattspyrnu-
deildar Þróttar,
gildir frá 10. október
Sunnudaga kl. 9.40—11.10 5. flokkur, ki.
11.10—12.45 M. flokkur, kl. 12.45—13'.50 6.
flokkur, kl. 13.50-15.10 3. flokkur, kl. 15.10-
16.40 4. flokkur, kl. 16.40-18 2 flokkur.
Fimmtudaga kl. 22—23.30 eldri flokkur.
Allar æfingar fara fram í Vogaskóia. Mætið
stundvíslega. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Minningarspjöld
Minningarkort Barna-
spítala Hringsins
f ást á eftirtöldum stöðum:
Versl. Geysir hf., Jóhannes Norðfjörð hf.,
Hverfisgötu 49, Bókabúð Olivers Steins,
Strandgötu 31, Hafnarfirði, Bókaversl. Snæ-
bjamar, Hafnarstræti 9, Bókabúðin Bók,
Miklubraut 68, Bókabúðin Glæsibæ, Versl.
Ellingsen, hf., Bókaútgáfan Iðunn, Bræðra-
borgarstíg 16, Kópavogsapótek, Háaleitis-
apótek, Vesturbæjarapótek, Garðsapótek,
Lyfjabúð Breiðholts, Heildversl. Júlíusar
Sveinbjömssonar, Garðarstræti 6, Mosfells
Apótek, Landspitalinn, Geðdeild Bamaspít-
ala Hrmgssm, Dalbraut 12, Olöf Pétursdóttir,
Smáratúni 4, Keflavík, Kirkjuhúsið, Klappar-
stíg 27.