Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Page 34
34
DV. FIMMTUDAGUR11. NOVEMBER1982
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
„Orson Welles var sá
eini sem hvatti mig”
—segir leikkonan og leikstjórinn Jeanne Moreau
„Mér finnst ég vita meira um
sjálfa mig. Forréttindi aldurs míns
— ég er 54 ára — er aö maöur hefur
meira sjálfstraust. Ég er rólegri en
áöur, veit meira um sjálfa mig og
samt er ég ekki eins egósentrísk og
áöur,” segir Jeanne Moreau, hin
fræga, franska kvikmyndaleikkona.
Þaö eru sennilega fáar leikkonur
sem hafa kynnst eins mörgum af
virtustu leikstjórum okkar tíma og
Jeanne Moreau. Hún byrjaöi sem
sviösleikkona í „Comedie FYancaise”
sem er nokkurs konar þjóöleikhús
þeirra Frakka en síöan lá leiö hennar
inn í kvikmyndirnar. Til aö nefna
nokkur dæmi skulu talin hér upp nöfn
þeirra leikstjóra sem hún hefur leik-
iö hjá. Listin er nánast eins og í upp-
flettibók um bestu kvikmyndaleik-
stjóra heims á síðustu tveimur —
þremur áratugum: Louis Malle
(Atlantic city), Roger Vadim,
Francois Truffaut, Michelangelo
Antonioni, Peter Brook, Luis Bunuel,
Tony Richardson, Jean Renoir,
Rainer Wemer Fassbinder, Joseph
Losey og aö sjálfsögöu Orson Welles.
Afrakstur samvinnu þeirra má sjá í
myndinni Réttarhöldin sem Fjala-
kötturinn sýnir um þessar mundir.
Hún lék í síöustu mynd
Fassbinders, Querelle. Hún segir um
Fassbinder: „Hann leit alls ekki út
fyrir aö vera viö góöa heilsu. En ef
talað er um sköpunargáfu var hann
alveg fullkominn. Þetta var fyrsta
mynd okkar saman og samt var
samstarfið mjög innilegt, ég get ekki
lýst þeirri tilfinningu. I eina skiptiö
sem ég spuröi hann að því til hvers
hann ætlaðist af mér, sagöi hann
„vertubara frábær.”
Jeanne Moreau haföi enga minni-
máttarkennd viö að fara aö leikstýra
myndum sjálf þrátt fyrir að hún
heföi leikiö hjá öllum þessum frá-
bæru leikstjórum. „Orson Wellesvar
eini maöurinn sem hvatti mig til aö
leikstýra. Þaö er ekkert egótripp hjá
mér aö fara aö leikstýra heldur eöli-
leg þróun. Eöa eins og Orson sagöi:
„Þegar þaö er orðið sársaukafullt aö
leikstýra ekki þá á maður aö byrja
aöleikstýra!” ”
Jeanne álítur aö starf hennar sem
leikkonu hafi auögaö hana sem leik-
Jeanne Moreau, ein af fáum leikkonum sem farið hafa út ikvikmynda■
ieikstjórn.
stjóra. „Eg þekki leikara. Ég veit
hvenær eitthvað er orðið sársauka-
fullt. Og þaö er þaö sem leikstjórn
snýst um.”
Myndir þær sem hún hefur sjálf
leikstýrt hafa fengiö góða dóma. Þær
heita Ljósiö og Æska. Síðari myndin
er tileinkuö lækni nokkrum sem
bjargaöi Moreau er hún var meö
krabbamein. Og næsta mynd sem
hún ætlar aö gera er mynd sem hún
ætlar aö gera eftir skáldsögunni
Bekulia eftir Drieu La Rochelle.
Ann nokkur Jillian
mun leika Mae West
í sjónvarpsþætti um ævi stjörnunnar
Mae West kynbomban gamla er
alltaf töluvert vinsæl vestur í Banda-
ríkjunum. Nú er veriö að gera kvik-
mynd um ævi hennar.
Sú sem hreppti aöalhlutverkiö í
þeirri mynd heitir Ann Jillian og er
þekkt vestra fyrir leik í vinsælum
myndaflokkiMaking aliving.
Ann er enginn nýgræöingur í leik-
Mae West. Eru þær ekki likar?
list þó aö þetta sé fyrsta stóra hlut-
verk hennar. Hún byrjaöi að leika 10
ára gömul og lék í fjölmörgum
myndum allt þar til að hún varö 18
ára. Þá uppgötvaði hún aö hún var of
gömul til að leika táning og of ung til
aö leika konu. Hún sneri baki við
leiklistinni og vann á skrifstofu og
hélt síðan áfram á menntabrautinni.
En hún fékk bakþanka og gekk til
liös viö Los Angeles Cicic light Opera
og síöan fór hún inn í sjóv-bissness-
inn á ný. Og nú er hún komin á topp-
inn í hlutverki Mae West.
Bianca Jagger, fyrrverandi eigin-
kona Mick Jagger, hefur breytt um
lífsstíl. Hún hefur um langt skeiö
veriö hluti af alfínasta fólkinu, þeyst
í kringum heiminn í fylgd glaum-
gosa, vakiö eitt kvöldiö athygli á
næturklúbb í Evrópu og hitt kvöldiö í
New York eöa Buenos Aires.
Hún hefur nú snúiö baki viö glaum-
gosunum og snúið sér að stjórnmál-
um.
Er hún var einungis 16 ára gömul
hóf hún aö leggja stund á stjórnmála-
fræöi. Þremur árum síöar hitti hún
og féll fyrir Mick Jagger sem hún
giftist er hún var 21 árs. „Þegar ég
giftist Miek gaf ég upp á bátinn alla
drauma um eigin starfsframa og ein-
beitti mér aö húsmóöurstööu. En ég
lygi ef ég segði áö mér hefði ekki
líkaö vel h jónaband okkar Mick.”
Nú einbeitir hún sér aö mannúðar-
málum, starfar fyrir Rauöa kross-
inn, Amnesty og hjálpar flóttamönn-
um frá E1 Salvador. Og hún lætur æ
sjaldnar sjá sig á næturklúbbunum
enda segir hún að fólk myndi ekki
taka sig alvarlega ef hún starfaöi í
senn aö mannúöarmálum og þeysti
þess á milli stöðugt í tilgangsleysi
Bianca Jagger hefur hellt sór afiifi og sál út i störfað mannúðarmáium. meðhinumfrægu og riku.
Bianca snýr baki
við gbumgosunum
Bandaríska
jasshljómsveit-
in Air á íslandi
— leikur í Gamla Bíói 16. nóvember
Bandariska jass-hljómsveitin Air er
væntanleg hingaö til lands á vegum
félagsskapar sem kallar sig Áhugafólk
um jass. Mun sveitin halda tónleika
hinn 16. nóvember (næstkomandi
þriðjudag) í íslenska óperuhúsinu
(Gamla Bíói) kl.9.
Air skipta þeir Henry Threadgill
(saxófónn, flauta, slagverk) Fred Hop-
kins (bassi) og Steve McCall
(trommur). Upphaf hljómsveitarinnar
má rekja til ársins 1971 en þá komu
þremenningarnir saman í Chicago til
að leika ragtime-tónlist Scott Joplin en
sú tónlist hefur lengi veriö á dagskrá
hjáþeim.
Árið 1975 hófu þeir aö leika saman
reglulega og hljóörita hljómplötur.
Síðan þá hefur Air hlotiö margvíslegar
viðurkenningar og er sennilega virt-
asta hljómsveit heims í frjáls-jassi aö
Art Ensemble of Chicago einni undan-
skilinni. Meðal viðurkenninga sem
hljómsveitin hefur fengiö má nefna að
í kosningum jass-gagnrýnenda hins
virta tímarits Down Beat var hljóm-
sveitin í sjötta sæti yfir bestu jass-
hljómsveitina og þeir Threadgill,
Hopkins og McCall voru allir mjög
ofarlega á lista yfir bestu hljóðfæra-
leikara heims.