Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 37
DV. FIMMTUDAGUR 11..N0VEMBER 1982 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL „SKEMMTI- LEGRA AÐ TEIKNAHOLD- UGANSKROKK íHORAÐAN” —segir Þórdís Eyfeld „Ég hef nú ósköp lítið fengist við þetta áður, bara svolítið fikt, en mér finnst þetta alveg dásamlegt. Sköpunargleðin fær útrás. Sjálfs- traustið vex þegar maður finnur að maður ræður við þetta. Það hefur lengi verið að brjótast í mér að leggja út í myndlist en ég hef aldrei haft nægilega trú á sjálfa mig, ekki fyrr en á þessu námskeiði hjá honum Einari. Nú ætla ég að vinna úr því sem ég er búin að læra og fara svo aftur á stúfana þegar hann auglýsir næsta framhaldsnámskeið. Annars finnst mér svo vanta héma skóla þar sem fólk getur komið eftir geöþótta og fengið módel til að teikna. Það er svo gaman að kljást við form og byggingu mannslíkamans. Ég gleymi mér alveg og þaö skiptir engu hvort það er karl eða kona. Það er formið sjálft sem ræður hverju sinni. Þegar ég stóö sjálf fyrir var ég svolítið þybbin til að byrja meö og þegar ég fór að grennast kvörtuöu teiknaramir. Nú skil ég þá — það hlýtur að vera miklu skemmtilegra að teikna kvenmann með svolitlar línur' heldur en mjóa konu.” — Hefurðu s jálf staðið f yrir ? „Já, ég var teiknimódel við lista- skóla í Kaupmannahöfn. Ég réð sjálf stellingunni, stóð í 10 mínútur, sat í 10 og hvíldist í 5. Eg held að að hljóti að vera mjög erfitt að standa í 20 mínútur samfleytt eins og hann gerir strákurinn héma. ” — Hvort á nú betur við þig að standa fyrir eða teikna sjálf ? „Það er nú kannski ekki sambæri- legt en mér fannst ágætt að standa fyrir. Ég var auövitaö dauðfeimin í fyrstu, ég var allsnakin strax, ekki einu sinni í nærbuxum, en þetta var allt svo eðlilegt og ég vandist þessu nærri samstundis. En mér finnst alveg stórkostlegt að teikna, ég uppgötvaði allt í einu í síðasta tíma að ég var farin að söngla af einskærri lífsgleöi.” „Ég uppgötvaði í síðasta tíma að ég var farin að söngla af einskærri lífsgleði," sagði Þórdís Eyfeld sem langar til að leggja fyrir fullt og fast út á listabrautina. „Konan dreif nwg íþetta” —segir Björn Bjamason „Jæja félagi, svo þú ætlar að fara einföldu leiðina,” sagði Björn Bjarnason og kimdi ofuriítið drýgindalega þegar ég beindi að honum Olympusnum og stillti fók- usinn. Sjálfur arkaði Björn torsóttu leiðina, hann festi sína fyrirmynd á örk með mjúkum blýanti. og þó að iðkendur ljósmyndalistarinnar veröi sjálfsagt ekki alsáttir við þennan greinarmun Björns þá hefur hann óneitanlega nokkuð til sins máls. „Það er nú aðallega tvennt sem veldur því að ég er hingað kominn. I fyrsta lagi er þaö gamall áhugi sem er búinn að leynast í mér. Mig hefur alltaf langað til þess að fá svona tilsögn í teikningu og nú varð loksins afþví.” En hver var seinni ástæöan? „Konan, maður, hún dreif mig í þetta. Hún sá þetta námskeið auglýst, hringdi að mér forspurðum og pantaði fyrir mig pláss. Hún tók af skarið eins og þar stendur.” —Nú ertu búinn að koma hingað 10 kvöld og teikna tvær stundir í hvert skipti. Er konan ánægö með árang- urinn? „Já.hvorthúner!” — Heldurðu að hún sendi þig á framhaldsnámskeiö? „Nei, nú tek ég völdin í mínar hendur og skelli mér á framhalds- námskeið að henni forspurðri. Ég er geysiánægður með þetta, þaö voru alltaf neistar í manni og nú er farið að loga. Ég hef lært mikið á þessu námskeiöi og þar fyrir utan er þetta skemmtilegur hópur að vera með. Eg kem hingað örþreyttur eftir strangan vinnudag, einbeiti mér að teikningunni og slekk á öllu öðru i kringum mig. Eftir tvo tíma er ég afþreyttur og afslappaður og búinn að öðlast einhvers konar sálarró.” — Verður svona námskeið ekki til þess að maður fer að líta á sig sem listamann eða vísi að listamanni? ,JNei, ekki myndi ég orða það þannig, en ég held nú aö fólk sem fæst við svona lagað í sínum frí- stundum hafi lúmskt gaman af því innst inni að líta á sig sem obbolitla listamenn. Og því ekki það? Ég held að það ieynist listamaður í öllum, fólk nýtir bara svo illa hæfileika sína.” „Ég held að það leynist listamaður i öllum, fólk nýtir bara svo iila hæfileika sina," sagði Björn Bjarnason, fulltrúi hjó Dúk hf. Hann hafði lengi þróð að fara ó myndlistarnómskeið en það var eiginkonan sem tók af skarið og ókvað að nú skyldi bóndi hennar nýta betur hæfileikana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.