Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1982, Qupperneq 40
CARLSBERG-umboðið. —Sími 20350. Svissnesk quartz flestum úrsmiðum Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1982. Hormónaneysla íþróttamanna: Lyfin hljóta að vera ólöglega flutt inn — segir landlæknir „Menn geta ekki nálgast hormóna- lyf löglega hér nema að flytja þau inn gegnum lyfjalögin. Þau hljóta því að vera komin erlendis frá,” sagði Olafur Olafsson landlaeknir í samtali við DV í morgun. „Að sögn Skandinava ganga hormónalyf kaup- um og sölum meðal íþróttamanna í Evrópu, sumir þar segja aö þau komi meðal annars frá austantjalds- löndunum. I Skandinavíu hafa komiö upp svona mál annað slagiö 'en ekki alvarleg, held ég.” Landlæknir var spurður hvort ein- hverra sérstakra ráöstafana væri aö vænta af hálfu embættisins vegna hormónamálsins hér. Olafur sagöi: „Þessi mál eru búin að vera lengi til umræðu. Af hálfu íþróttasambands- ins hefur verið haldið uppi mikilli fræðslustarfsemi varðandi þetta og við veitum stuðning okkar. En ég tel að íþróttamenn séu að taka þarna áhættu sem þeim er vel kunnugt um hver er, svo mikið sem um þetta hefur verið rætt.” JBH Pólski læknirinn búinn að fá starf „Pólski læknirinn hefur fengið aö- stoðarlæknisstarf en hann og eigin- kona hans, sem er tannlæknir, hafa ekki fengið endanleg starfsleyfi,” sagöi Jón Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri Eauða krossins, í samtali við DV. Pólsku hjónin komu hingað sem flóttamennísumar. „Það tekur sinn tíma fyrir útlend- inga að fá lækningaleyfi. Heilbrigðis- ráðuneytið veitir leyfin að fenginni umsögn læknadeildar og lækna- félagsins. Það vantar upplýsingar frá Póllandi um nám þeirra og starfsferil,” sagöi Jón. Hugsanlegt er að læknirinn og tannlæknirinn þurfi aðgangast undir einhvers konar próf áður en leyfi er veitt. ás. LOKI Ég heyrí að Vilmundur só að reyna að fá pabba sinn með í fram boð — gríniaust! Þetta er ákveðið af vanhæfum mönnum —segir framkvæmdastjóri Verkfræðingafélagsins um ráðningu norska ráðgjafans Deila er nú risin milli Verk- fræðingafélagsins og sjónvarpsins vegna ráðningar norsks verkfræð- ings sem vera á sjónvarpinu til ráð- gjafar um breytingar á rekstri. Verkfræðingurinn Dagfinn Bern- stein, sem starfar hjá norska sjón- varpinu, kom hingað til lands fyrir rúmum mánuöi. Sjónvarpið sótti ekki um atvinnuleyfi fyrir hann fyrr en nokkru eftir að hann var tekinn til starfa. Verkfræðingafélagið mæltist þá til þess að honum yrði neitað um atvinnuleyfi. — „Þar sem nota átti hann til að bola Herði Frímannssyni, yfirverkfræðingi sjónvarpins, úr starfi, eða svo virtist okkur, ” sagði Hinrik Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Verkfræðingafélagsins, í sam- tali við DV. Hinrik sagði ennfremur að það væri óþarfi að sækja menn til útlanda í störf sem menn hér á landi væru færir um að gegna. „Við erum heldur ekkert á móti því að kalia til sérfræðinga, en það eiga ekki aö vera vanhæfir menn sem ákveöa hvenær það er gert. Hörður Frí- mannsson var ekki spuröur ráða þegar Bernstein var ráðinn,” sagði Hinrik. Pétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri sjónvarpsins, neitaði því að Bemstein ætti á nokkum hátt að bola Herði Frímannssyni úr starfi en viðurkenndi að hann hefði verið ráðinn án samráðs viö Hörð. Sagði Pétur að Bemstein væri tæknilegur ráðgjafi við endurskipulagningu tæknideildar sjónvarpsins. Hann hefði langa starfsreynslu við norska sjónvarpið og því væri fráleitt að tala um að nokkur hér á landi gæti komið ihansstað. Félagsmálaráðuneytið sá ekki ástæöu til að taka mótmæli Verk- fræðingafélagsins til greina og hefur veitt Bernstein atvinnuleyfi en hann mun dveljast hér á landi fram í byr jun desember. ÖEF ínótt féii snjór í fyrsta sinn 6 þessum vetri á sunnanverðu landinu og þar með er haf- in hin srfellda barátta bileigenda við að hreinsa bíla sína áður en lagt er af stað á morgnana. DV-mynd GVA Vilmundur og félagar íhuga sérframboð Vilmundur Gylfason alþingismaður og félagar munu vera að velta fyrir sér möguleikanum á sérframboði til þings ínæstu kosningum. DV tókst ekki að ná tali af Vilmundi í morgun en náinn samstarfsmaður hans staðfesti þetta. „Við viljum reyna að fá fram sigur jafnaðarmanna eins og 1978 og þá er Vilmundur líklegastur til að valda því,” sagði þessi heimild- armaður DV. „En 1978 gerðist það að sigur Alþýðuflokksins var í höfn en þá bmgöust forystumennirnir og „rúUuðu yfir Vilmund”. Nú tapaði Vilmundur varaformannskosningunni. Staðan hefur því ekkert breyst. Engin trygg- ing er fyrir því að aftur verði ekki rúll- að yfir Vilmund. Framboðsfrestur til prófkjörs Alþýðuflokks í Reykjavík rennur út á laugardag. Ég er viss um að Vilmundur mundi mala Jón Baldvin fari hann í prófkjör en fyrir laugardag- inn verðum við að ákveða hvort af sér- framboðiverður.” Aðrir alþýðuflokksmenn og starfs- bræður Vilmundar á Alþingi úr öðmm flokkum tóku i morgun einnig undir það að þeim skildist að Vilmundur íhugaði sérframboð. -HH Áhöf n Frey- faxa sagt upp störfum Allri áhöfn sementsflutningaskips- ins Freyfaxa, sem er í eigu Sements- verksmiöju ríkisins, hefur nú verið sagt upp störfum. Freyfaxi hefur undanfarin sextán ár veríð í flutning- um með sekkjað sement á innan- landsha&iir og á síðustu ámm einnig í vömflutningum frá útiöndum, en nú er fyrirsjáanlegur verkefnaskortur hjáskipinu. Að sögn Friðriks Jónssonar, út- gerðarstjóra Sementsverksmiðju rikisins, em uppsagnimar Öryggis- ráðstöfun en skipið væri enn í sigling- um og því yrði haldið úti eins lengi og unnt væri. Hins vegar ætti Sements- verksmiðjan í vandræðum með rekstur skipsins vegna verkefna- skorts eins og önnur skipafélög i landinu. Sagði Friðrik að næg verk- efni hefðu verið fyrir skipið í sumar en nú lægju aðeins fyrir verkefni fram til næstu mánaðamóta og óvíst hvað yrði eftir það. Því væri fyrirsjá- anlegt að leggja þyrfti skipinu fram á næsta vor og segja upp áhöfninni semíemtólfmenn. Allt sement sem flutt er til Reykja- víkur, ísafjarðar og Akureyrar er flutt ósekkjað í öðru skipi Sements- verksmiöjunnar, Skeiðfaxa, enFrey- faxi getur einungis flutt sekkjað sement. Taldi Friðrik að þróunin yrði í þá átt aö sement yrði í æ ríkara mæli flutt ósekkjað. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort Frey- faxi yrði seldur. ÖEF Fjögurfrímerki áalmennt bréf Nú em uppseld hjá póstþjónust- unnl öll frímerki að verðgildi krónur 3,50, sem er almennt póstburðar- gjald. Þarf í þess stað að notast við þrjú eöa fjögur frímerki. Um miðjan mánuðinn koma út ný frímerki að verðgildi 3 og 3,50 krónur en hins vegar er búist við að almennt póst- burðargjald muni hækka í fjórar krónur í desember. Viröist þannig litiö samræmi á milli ákvarðana um upphæð póstburðargjalda og prent- unar nýrra frímerkja. Eitthvað mun hins vegar vera til af eldri frimerkj- um með f Jögurra króna verögildi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.