Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Side 8
8 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Walesa ætlar að rjúfa þögnina í dag í Gdansk — ávarpar óleyf ilegan útif und og hvetur til endurheimt réttinda verkalýðshreyf ingarinnar Díana, Karl og Wílliam: sonurinn fer með i opinbera heimsókn á næsta ári. Prinsinn á flakki með foreldrunum Karl Bretaprins og Díana prins- essa munu heimsækja Ástralíu og Nýja-Sjáland á næsta ári. Hyggjast þau taka son sinn, William, með í ferðina. Samkvæmt upplýsingum frá Buck- inghamhöll fara þau hjón fram á fastan samastað fyrir William í hvoru landinu um sig, þannig að þau geti skiliö hann eftir í umsjón fóstru sinnar á meðan þau sinna skyldu- störfum sínum. William fæddist 21. júníísumar. Opinber heimsókn Karls og Díönu til Ástralíu stendur yfir 21. mars til 17. apríl. I Nýja-Sjálandi verða þau hjón frá 17. til 30. apríl. Þaö stefnir nú í árekstur milli Lech Walesa, leiðtoga hinnar bönnuöu Ein- ingar, og herlagayfirvalda, en hann hefur í bígerö að ávarpa ólöglegan úti- fund í Gdansk í dag. — Yfirvöld hafa látið á sér skilja að þau muni reyna að ! koma í veg fyrir fundinn. Vitað er að valdamönnum hefur gramist við Walesa fýrir aö krefjast opinberlega þess að allir pólitískir fangar, lokaöir inni eftir gildistöku herlaganna, verði látnir lausir. Hefur hann tvívegis hundsað stefnur fyrir saksóknara. Frést hefur hjá heimilisvinum Walesahjónanna að hann sé ráöinn í að rjúfa þögnina, sem hann hefur haldið síðan honum var sleppt í nóvember úr einangruninni. Ætlar hann að flytja ræöu viö minnisvaröa verkamanna í Lenínskipasmíðastööinni. — Þriggja krossa minnisvarðinn var settur upp að kröfu Einingar 1980 til minningar um verkamenn sem létu lífið í mat- vælaóeirðunum 1970. Walesa hefur heitið því að vitja minnisvaröans 16. desember ár hvert, sem er afmælisdagur óeirðanna. I fyrra gat hann þaö ekki, þá fangi herlagayfirvalda. Hann hefur einnig sagt að við minnisvarðann yrði stofnað nýtt verkalýðsfélag ef pörf krefði. Ræðuna, sem Walesa ætlar að flytja í dag, hefur hánn látið fjölmiðlum í té fyrirfram. Þar segir hann meöal annars: „Við verðum að róa að því öllum árum, opinberlega og lýðræðis- lega, að endurheimta réttindi verka- lýösfélaga okkar.” Vitað er að Walesa hefur ekki sótt um neina undanþágu til útifundarins en yfirvöld hafa sagt að þau muni hindra allan mannsafnað sem kallaður er saman í leyfisleysi. Kommar hafna sölu- skatti Olof Palme Gunnlaugiu- A. Jónsson, fréttaritari DV: Söluskattsdeila sænsku ríkisstjórn- arinnar og kommúnistaflokksins er enn óleyst. Við umræöur í sænska þing- inu í gær gerði Lars Werner, formaður kommúnistaflokksins (VPK), þaö ljóst að flokkur hans gæti alls ekki fallist á frumvarp ríkisstjómar Olof Palme um 2% söluskattshækkun. Werner sagði hins vegar að VPK ætlaði sér ekki aö fella ríkisstjórn sósíaldemókrata og væri flokkur hans reiðubúinn til frek- ari viðræðna við ríkisstjórnina um málið. Einörð afstaöa kommúnista virtist koma Palme og fylgismönnum hans á óvart. Þeir virtust hafa treyst því að kommúnistar gæfu sig þegar á hólm- inn væri komið. Líklegast þykir nú að málamiðlun verði mismunandi söluskattur, þannig að engin söluskattshækkun verði á matvörum og brýnustu lífsnauðsynj- um. Þeim mun hærri söluskattur á munaðarvörum. Atkvæðagreiðsla um málið f er fram í dag. ARZBERG postulín yfllafossbúðin Gjafavörudeild Vesturgötu 2 sími 13404

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.