Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1982, Blaðsíða 10
10 DV. FIMMTUDAGUR16. DESEMBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Stjórnarskiptin á Spáni: GONZÁLEZ BOÐAR HÆGFARA BREYTINGAR Stjórnin sem Felipe González hefur myndaö á Spáni bendir til aö spænskir sósíalistar ætli aö fara sér hægt. Sjálfur viöurkennir González að stefnuskrá hans sé fremur íhalds- söm og virðist kannski í fljótu bragöi ekki svo mjög frábrugöin stefnuskrá fyrrverandi stjórnar miö-demó- krata. En Gonzáles hefur sínar ástæður til að fara varlega í sakirnar. Áöur en hann vann kosningasigur sinn 28. október greip herinn tækifærið til aö sýna hug sinn meö vopnabraki. Viöskilnaöur fyrri stjórnar er heldur ekki til fyrirmyndar, er ljóst var um vorið aö hún myndi tapa kosningun- um fannst henni ekki lengur nein nauösyn á verulegri aögæslu í efna- hagsmálunum. Nýja stjórnin hans González getur státaö af yngstu ráðherrum í Vestur- Evrópu, en meöalaldur þeirra er 40 ár. Af 16 ráðherrum eru 7 hagfræö- ingar og 7 lögfræðingar. Utanríkis- ráöherra er Femando Morán, 56 ára og elstur ráöherranna. Hann hefur notið mikillar virðingar sem starfs- maður utanríkisráöuneytisins, fræði- maöur og höfundur stjómfræöirita. Varnarmálaráöherra er Narcis Serra, borgarstjóri Barcelona, næst stærstu borgar á Spáni. Hann er 39 ára gamall og þar af leiðandi mun yngri en allir hershöföingjar. Herinn gat þó sætt sig við hann vegna frá- bærs dugnaöar í starfi borgarstjóra. Að vera ti/bú- inn tilfórna Alfonso Guerra, 42 ára, verður varaforsætisráöherra. Guerra er jafnframt varaformaöur Sósíalista- flokksins og náinn vinur Gonzálezar. Hann þykir mikill meinlætamaður og afar slunginn við samningaborðin. Sumir hafa óttast ósamkomulag á miili hans og Gonzálezar en González er þar ekki á sama máli. — Sumir segja aö viö séum sín hliðin hvor á peningnum, segir hann. — Það er ekki rétt. Viö erum sama hliöin. Andstæðar skoðanir geta þó reynst stjórninni hættulegar í skauti og hætt viö að fylgjendum tiltölulega íhalds- samrar stefnu og róttækari vinstri- sinnum eigi eftir aö lenda saman. Kannski má segja aö mönnum þyki vafasamt valið á efnahags- málaráðherranum Miguel Boyer, en margir telja hann nánast sósíal- demókrata. Hann er yfirmaður þriggja ráðuneyta og stjómar auk þess óbeint atvinnumálaráöuneytinu en þar ræður Carlos Solchaga ríkjum. Solchaga þykir líka best lýst sem sósíaldemókrata. Boyer þykir þó afar mikilvægur í embætti þetta vegna þeirra efna- hagsörðugleika sem stjórnin tekur í arf. Hann þykir einn besti hagfræö- ingur sem Spánverjar eiga völ á. Margir kannast þó viö orö þau sem hann notar um væntanlega stefnu í efnahagsmálum: — Okkar bíöur erfiöur tími þar sem fólk verður aö vera tilbúið tii fórna. Enda eru á næstunni væntanlegar 10—20% veröhækkanir á ýmsum varningi. Þar á meöal er bensín, gas, tryggingar, brauð, tóbak, lyf og fleira. Viö þetta bætist aö ýmsir gróöa- brallarar gripu til þess ráös að foröa aurum sínum úr landi af hræöslu viö stjórn sósíalista. Búast flestir fjár- málasérfræöingar við því aö stjórnin veröi aö lækka gengið á pesetanum umalltað20%. En þótt Boyer og Solchaga sé lýst González sver að sýne konungi Spáner og stjórnarskránni tryggó og hollustu. Tilhægri við hann stendur konungurinn, Juan Carlos. sem sósíaldemókrötum tilheyra þeir aö minnsta kosti Sósíalistaflokknum. Hins vegar má segja aö lengra hafi verið leitað fanga með tvo ráðherra, Javier Moscoso félagsmálaráöherra og Femando Ledesma dómsmála- ráöherra. Moscoso kemur úr rööum þeirra sósíaldemókrata sem gengu til liös viö sósíalista fyrir kosn- ingamar. Ledesma er talinn óháöur vinstrisinni. Annars er meirihluti ráöherranna nánir samstarfsmenn Gonzálezar innan Sósíalistaflokksins og taldir dyggir fylgismenn hans. Undantekn- ingar em þó vamarmálaráöherrann, Narcis Serra, sem áður er getið, og innanríkisráðherrann José Barrion- uevo. Barrionuevo hélt um tíma með járnhöndum um stjórnartaumana á umferöarlögregliuini í Madrid. En þaö er mun erfiðara að eiga aö stjóma lögreglu sem til hálfs til- heyrir hemum. Einnig bíöur hans það erfiða verkefni að stemma stigu Hinn nýi forsætisráðherra boðar þinginu stefnuskrá sína. fyrir vaxandi hryðjuverkum. Utnefning þessara tveggja, ásamt þeirri staöreynd að flestir ráöherr- anna em nánast óþekktir þykir benda til þess aö Gonzáles vilji efla vald forsætisráöherra sem best. I stjórnarhöllinni Moncloa hefur hann safnaö um sig 200 manna starfsliði og eru þar af margir sérfræöingar. Þaöan verður Spáni stjórnaö næstu árin. Olof Palme var sakaöur um aö hafa þjófstartað er hann felldi gengi sænsku krónunnar. Þótt González felli sennilega einnig gengi pesetans bendir ráöherralisti hans samt til þess aö hann vilji fara varlega í sakirnar og sýna fjölbreyttari hliðar á Sósíalistaflokknum. 800.000atvinnu- tækifæri á 4 árum I setningarræöu sinni í síöustu viku minntist González ekkert á skatta- hækkanir, heldur virkara skatta- kerfi. Rúmlega 2 milljónir manna eru nú atvinnulausar á Spáni og lýsti González yfir því aö hann ætlaöi aö skapa 800.000 ný atvinnutækifæri á næstu 4 árum. Hann vonast líka til aö geta lækkað verðbólguna sem nú er um 15% án þess að auka á atvinnu- leysið. — Veröbólgan skeröir kaupmátt- inn, sagöi hann. — En atvinnuleysi þýöir aö enginn hefur peninga til aö kaupa fyrir. Hann var jafnvel enn varkárari í orðum um utanríkisstefnu sína en sagöi að Spánverjar teldu sig til vesturlandabúa. Hann lofaði aö stjórnin kæmi til meö aö leggja áherslu á inngöngu Spánar í Efna- hagsbandalagið ogmundi aldrei þola neinum erlendum herforingja aö skipa spænskum herforingja fyrir á spænsku landsvæði. Er því búist viö að stjórnin muni nota bresku nýlend- una á Gíbraltar sem bitbein í afstööu sinni til inngöngu Spánar í Nató. Þykir þaö benda til aö spænsku sósíalistamir ætli að fara aö hætti Grikkja og koma sér undan þjóðarat- kvæðagreiöslu um þátttöku landsins íNató. Spænski herinn hefur oft ráðið örlögum landsins og talinn mikill\ dragbítur á hina nýju stjóm sósíalista.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.